Anna Katrín, ein af baráttukonum #höfum hátt og þolandi hins alræmda Robert Downey, segist orðlaus á Facebook yfir ákvörðun Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur að samið við Jón Steinar Gunnlaugasson, fyrrverandi hæstaréttardómara, um aðstoð við umbætur á réttarkerfinu. Jón Steinar hjólaði eftirminnilega í þolendur Roberts Downey og sagði að þeim myndi líða betur ef þær fyrirgæfu honum brotin.
„Þegar ég hélt ég gæti ekki orðið meira orðlaus .Vá hvað ég væri til í að sitjast niður með Áslaugu Örnu í eitt skipti fyrir öll og eiga samtal við hana með #höfumhátt konunum mínum og öllum þeim sem Jón Steinar særði með þessum hræðilegu ummælum um okkur.
En Áslaug virðist vera yfir það hafin að horfast í augu við okkur – sannleikann og raunveruleikann,“ skrifar Anna Katrín.
Hún segist ekki hafa fyrirgefið Jóni þessi ummæli. „Þessi ummæli Jóns stinga mig ennþá í hjartað!! Það stingur líka fast að ung kona í forrétindastöðu líkt og Áslaug Arna skuli ekki sjá skýrar og vera opnari fyrir því að nýta stöðuna sína til þess að standa með konum og börnum í baráttunni gegn kynferðisofbeldi og misnotkun!!“
Anna Katrín vitnar svo í Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur sem skrifar:
„Þetta er maðurinn sem Áslaug Arna ætlar að borga fyrir að skoða “úrbætur” á meðferð sakamála. Þetta eru skoðanirnar sem hann ber á borð fyrir okkur og þolendur ofbeldis. Þetta er viðbjóslegt viðhorf sem finna má víðar í Sjálfstæðisflokknum, m.a hjá Brynjari Níelssyni sem einmitt sagði líka að það væru nú til verri brot gegn börnum en þessi sem RD framdi. Nýlega áréttaði sá maður þessa sóðaþegu skoðun sína Og Áslaug Arna, sem gefur sig út fyrir að standa með þolendum, stendur auðvitað miklu frekar með valdadónakarlaklíkunni sem virðist allsráðandi í Sjálfstæðisflokknum.“































Athugasemdir