Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Magnús með heilaskaða eftir jólatónleika – „Þetta er þrautaganga“

Magnús með heilaskaða eftir jólatónleika – „Þetta er þrautaganga“

„Óttinn er mik­ill því ég á engan rétt eftir í Sjúkra­sjóði Banda­lags háskóla­manna. Því er verið að sækja um eitt­hvað sem heitir end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri fyrir mig. Ég veit ekki hvernig það virkar eða hversu mikil hjálp það er og ég hef haft miklar áhyggjur af fjár­hags­stöðu heim­il­isin,“ segir Magnús Sigurjón Guð­munds­son, betur þekktur sem Maggi Peran, en hann slas­að­ist illa við það að detta í hálku.

„Ég hef jafn­vel velt fyrir mér að ljúga til um heilsu­farið til þess að fá grænt ljós á að hefja vinnu en hef öðl­ast þá sýn í end­ur­hæf­ing­ar­ferl­inu að nauð­syn­legt sé að doka við, hægja á og líta á þetta verk­efni sem lang­hlaup. Sama hvað ég reyni þá kem ég mér ekki út úr stöð­unni með neinum asa. Ég get ekk­ert gert til þess að vera flýta bat­anum. Þetta er þrauta­ganga – einn dag í einu,“ segir Magnús.

Eitt skref og lífið breyttist

Hann er þakk­látur fyrir að vera á lífi í dag. Árið 2020 reynd­ist honum hrika­legt. Jólin 2019 blæddi inn á heila Magnúsar eftir fall í hálku auk þess sem höf­uð­kúpa hans brotn­aði. Líf Magga breytt­ist við sak­lausa ferð á jólatón­leika með kon­unni sinni. Áður hafði lífið leikið við Magga, hann hafði til að mynda barist við offitu en fór í maga­ermi­að­gerð og hrundu af honum 60 kíló í kjöl­farið.

Magnús kallar ekki allt ömmu sína.

Ekki sami maðurinn

„Félags­veran hefur dregið sig í skel. Orku­bolt­inn sem var alltaf með mörg járn í eld­inum og vann best undir pressu á skyndi­lega erfitt með að gera tvennt í einu. Það versta er að ég er ekki sami mað­ur­inn. Finn stundum ekki mun á gleði og hryggð því ég kann síður á til­finn­ing­arnar“ segir Maggi.

Maggi seg­ist eiga mun erf­ið­ara með ein­beitn­ingu og þekki sjálfan sig stundum ekki. Eirðin sé  minni, þrótt­ur­inn er oft á tíðum lít­ill, getan til að hugsa hratt skræld, sjón­úr­vinnsla aug­ans brengluð og jafn­væg­is­skynið er skert. Við þetta má bæta per­sónu­leika­breyt­ingum sem sér­fræð­ingar kalla ákom­inn heilaskaða sem er dulin fötlun.

„Í dag er ég er með stöðugan svima, tíðan höf­uð­verk, við­var­andi svefn­leysi og loks per­sónu­leika­breyt­ingar“ bætir Maggi við.“

Mörg járn í eldinum

Maggi segir sína helstu stykleika fyrir slysið hafa verið að að vinna undir álagi og bregð­ast hratt og örugg­lega við.

„Ég elskaði að vera með mörg járn í eld­inum og var virkur í alls­konar verk­efnum og félags­störfum. Ég var félags­lynd til­finn­inga­vera sem elskaði að vera í kringum fólk og þreifst hvergi betur en þegar ég hafði nóg að gera. Núna átti ég allt í einu erfitt með að fara út í búð að versla því ég réð ekki marg­menni. Allt áreiti var mér erfitt og í fámennum hópum fannst mér ég stundum vera staddur í hring­iðunni á stórum flug­velli. Búð­ar­ferð í Krónuna varð mér ofviða eftir slysið og ég var að ærast yfir hávað­anum.“

„Ég sá stundum allt í móðu eða missti fók­us­inn. Ég var far­inn að nota gler­augu að stað­aldri en það hjálp­aði ekki. Við áreynslu fékk ég þrýst­ing í höfuð og við augn­tóft­ina. Ég missti fók­us­inn og svimi var að koma í tíma og ótíma. Eins og ég væri með sjó­riðu. Einnig hurfu bæði bragð- og lykt­ar­skyn“.

Gríðarlegar skapsveiflur

Maggi seg­ist ekki hafa fundið mun á gleði og hryggð og skap­sveifl­urnar hafi verið miklar. Áður hafði hann verið fljótur upp en fljótur niður en eftir slysið gat hann verið pirr­aður svo vikum skipti yfir ótrú­legri smá­muna­semi eða út af engri ástæðu.

„Ég réð ekki við geðslagið og gamla félags­veran var orðin af ófé­lags­lyndum og hræddum manni. Svefninn var hræði­legur frá slys­inu og þegar ég byrj­aði að vinna þá versn­aði hann enn meira. Stundum svaf ég bara 2-3 tima á nóttu og oft kom það fyrir að ég svaf ekki neitt. Mætti því til vinnu vansvefta og vinnu­tengd verk­efni sem ég hefði auð­veld­lega rúllað upp fyrir slys reynd­ust mér afskap­lega erfið“.

Hafði ekkert að gefa

Maggi hefur átt erfitt með að lesa efni og skilja það þar sem rök­hugsun hvarf.

„Getan til að muna ein­föld­ustu hluti og skipu­leggja verk­efni vinn­unar reynd­ist mér ógnar erfið. Ég upp­lifði mig von­lausan starfs­menn, maka, vin og glat­aðan föður. Ég hafði ekk­ert að gefa – hvorki í vinnu né í einka­líf­inu. Lækn­ir­inn sendi mig í blóðprufur og heilaskanna þar sem skoðuð var horm­óna­starf­semi lík­am­ans og staðan á topp­stykk­inu. Það reynd­ist vera mar við heil­ann og horm­óna­starf­semin var ank­ara­leg“. Send var því inn beiðni á heilaskaðateymi á Grens­ás­deild Land­spít­al­ans og þangað komst Maggi inn fjórum mán­uðum síðar.

Legg áherslu á núið

„Í milli­tíð­inni leit­aði ég til Ástu Árna­dóttur sjúkra­þjálf­ara sem gjör­þekkir svona höf­uð­meiðsl. Ásta reynd­ist mér gulls ígildi og án hennar hjálpar og fræðslu hefði ég aldrei gefið þess­ari vinnu alla þessa athygli. Hún gerði mér ljóst að nauð­syn­legt væri að vinna mark­visst að bat­anum“.

Maggi hefur und­an­farin miss­eri verið í end­ur­hæf­ingu á Grensás þar sem hann tekur hæg skref í átt að bata. Núna ætlar hann að leggja áherslu á að vera í núinu.

Magnús hefur< í end­ur­hæf­ingu til að ná aftur vopnum sínum.

Efst í huga Magnúsar í dag er þakk­læti.

„Ég hef lært á þessu rúma ári hug­tökin þakk­læti og auð­mýkt. Þakklæti fyrir það að vera á lífi. Þakklæti fyrir þá sem standa mér næst og hafa sýnt mér skiln­ing, ást og fús­leika til að rétta mér hjálp­ar­hönd í hví­vetna. Þakklæti fyrir skiln­ing bæði fyrrum og núver­andi vinnu­veit­anda. Auðmýkt yfir því að geta ekki gert margt af því sem ég gat áður,“ segir Maggi og bætir við hverju hann miði að.

„Njóta stund­ar­innar. Lifa holl­ara lífi. Hreyfa mig meira. Borða holl­ari mat. Efla mig and­lega. Sofa betur. Hlusta á ráð­legg­ingar fag­að­ila og hlýða. Gera ræki­leg og sið­ferði­leg reikn­ings­skil í lífi mínu. Sækjast eftir fram­förum en ekki full­komnum.  Ég kann illa að slaka á en verð að hlýða, segir Maggi“.

Var fljótt kippt niður á jörðina

„Ég komst inn á Grensás í októ­ber sl. og ætl­aði bara að drífa end­ur­hæf­ing­una af því ég vissi í raun ekk­ert hvað tæki við. Fag­að­il­arnir voru fljótir að kippa mér niður á jörð­ina og gera mér það ljóst að þetta væri lang­hlaup en ekki sprett­hlaup. Í fyrstu reyndi ég að segja allt það sem ég taldi að þau vildu heyra svo ég gæti útskrif­ast og haldið áfram með lífið. Þau sáu í gegnum mig og sögðu mér að ég þyrfti að gefa bat­anum tíma og hef ég fengið ómet­an­lega hjálp frá heilaskaðateym­inu.

Tekið var á málum Magga af festu. Hann gekkst hann undir rann­sóknir og mark­vissa end­ur­hæf­ingu frá læknum, sjúkra­þjálf­urum, sál­fræð­ingum, iðju­þjálfa. Þá gekkst hann undir tauga­sál­fræði­legt mat. Í ljós kom að hann með eft­ir­heila­hrist­ings­heil­kenni og áfallastreituröskun. Auk þess hafði sjónin snar­versnað en það merki­leg­asta var að sjón­skekkjan var farin! Hafði senni­lega horfið við fallið.

Verð að stilla álagið

„Sjón­úr­vinnslan var mér erfið og þegar ég var að vinna að verk­efnum sem kröfð­ust þess að ég var að fók­usa á smátt letur og svo líta upp þá fór allt af stað. Mig sundl­aði og ég mér fannst eins og ég væri að missa með­vit­und. Sviminn kom og fór og ég átt­aði mig ekk­ert á hvað ég gæti gert til að sporna við því. Þórdís sjúkra­þjálf­ari á Grensás kenndi mér að stilla álagi á lík­amann þannig að ég réði betur við þetta,“ segir Magnús.

Maggi fékk ný gler­augu sem hafa hjálpað mikið í hans nýja lífi.

„Við tóku æfingar á lík­ama og með hjálp iðju­þjálfa öðl­að­ist ég ný vopn í bak­poka reynsl­unnar til þess að búa mig undir dag­legt amstur á nýjan hátt. Þar fékk ég stuðn­ing og æfingar í því að skipu­leggja dag­inn þannig að ég nái betur utan um verk­efnin. Þar skipti ég deg­inum í margar smáar lotur með reglu­legri hvíld. Ég gæti þess að fara ekki í aðstæður sem setja mig út af lag­inu og stíla inn á að versla ekki á háanna­tíma. Ég þarf að loka að mér þegar ég þarf að ein­beita mér og ég þarf að æfa mig í lestr­ar­þoli og getu til að vinna þó umhverf­is­áreiti sé til staðar. Mér fer fram þó enn sé langt í land“.

Nýlega sagði Maggi starfi sínu lausu sem stöðv­ar­stjóri hjá Íslands­pósti. „Ég ját­aði mig sigr­aðan því ég veit að ég þarf mun meiri hjálp og tíma til að gefa lík­ama mínum færi á að jafna sig. Við tekur umsókn í VIRK og þar fæ ég von­andi að halda áfram með skrefin í átt að bata. En í raun veit ég voða lítið um VIRK.“

Gamla Peran er horfin

„Ég er ekki sami Maggi Pera og ég var og verð vænt­an­lega aldrei. Sál­fræði­við­tölin á Grensás hafa verið mér það bjarg­ráð sem ég er þakk­lát­astur fyrir. Sóley sál­fræð­ingur hefur hjálpað mér að vinna með til­finn­ingar sem hafa sprottið fram á sjón­ar­sviðið. Reiði, skömm, dep­urð, von­leysi, rör­sýni og botn­laust magn af sjálfs­nið­ur­rifi. Ég fór í ákveðið sorg­ar­ferli þegar ég þurfti að kveðja gamla mann­inn og bjóða þann nýja vel­kom­inn. Þegar ég horfði í spegil þá hataði ég allt sem ég sá. Maðurinn sem var með nokkuð sterka sjálfs­mynd og með­vit­aður um styrk­leika og veik­leika sína sá allt í einu enga styrk­leika. Mér fannst ég ekki eiga neina von. Lífið væri búið. Ég væri eng­inn akkur fyrir vinnu­veit­endur mína, fjöl­skyldu eða vini. Ég væri flatur og von­laus fýlu­poki sem væri einskis nýtur. Með hjálp Sóleyjar sál­fræð­ings þá öðl­að­ist ég smá neista og vinn í því að gera þennan neista að skíð­log­andi báli. Nú byrjar nýtt líf og nú þarf ég að átta mig á hvað nýi Magnús vilji gera í líf­inu. Hvernig vinna muni henta mér. Hvernig verk­efni ég ráði við. Æfa mig svo og taka eitt skref í einu. Vegna ótt­ans um fjár­hags­stöð­una þá setti ég kald­hæðn­is­legt tíst á Twitter um að ég myndi opna síðu á Onlyfans til að bera björg í bú. Verð þó að hryggja aðdá­endur þunn­hærðra mið­aldra manna – því það tíst var ein­ungis létt glens segir Maggi og glottir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ