Bubbi Morthens segir það ólíðandi að ríkisstjórnin skuli opna landið nú loksins þegar sér til sólar. Hann segir á Facebook að það sé glórulaus ákvörðun og ekki ólíklegt að hún sé tekin af annarlegum ástæðum. Enda kemur COVID að utan líkt og allir vita.
„Það er algerlega ólíðandi að ríkistjórnin skuli opna landið og setja alla landsmenn í hættu, sem og gæði hins daglega lífs. Íslenskir tónlistarmenn hafa verið nánast atvinnlausir í 1 ár. Öll menning nánast legið niðri. Pólitík og kosningar eiga ekki að stjórna ákvörðun ráðherra þegar fólk hér inannlands er loksins að sjá til sólar,“ segir Bubbi.
Ríkisstjórnin kynnti í gær að hún hyggðist hleypa inn í landið fólki frá löndum utan Schengen, að því gefnu að það framvísi COVID-vottorði. Óhætt er að segja að fáir utan ferðaþjónustunnar fagni þessu.
Hann taggar svo heilbrigðisráðherra og aðra stjórnmálamenn og biðlar til almennings að láta í sér heyra svo hægt sé að koma í veg fyrir stórslys. „ Hvað gengur ykkur til Svandís Svavarsdóttir? Ég hvet alla láta í sér heyra.“































Athugasemdir