Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þú getur sparað 64 þúsund á ári – VERÐKÖNNUN – 233 prósenta verðmunur á smurþjónustu

Þú getur sparað 64 þúsund á ári – VERÐKÖNNUN – 233 prósenta verðmunur á smurþjónustu

Munur á dýr­ustu og ódýr­ustu smur­þjón­ust­unni er 233 pró­sent. Það leiddi verð­könnun vik­unnar í ljós. Neyt­and­inn getur sparað sér allt að 50 þús­und á ári, sé skipt við  ódýr­ustu þjón­ust­una að því gefnu að bif­reiðin þarfn­ist smurn­ingar þrisvar á ári. Þurfi hún að fara fjórum sinnum á ári er sparn­að­ur­inn rúm 64 þús­und.

Að þessu sinni kann­aði Mannlíf verð á smur­þjón­ustu. Hringt var í 15 fyr­ir­tæki sem bjóða slíka þjón­ustu. Ákveðnar for­sendur voru gefnar til þess að kom­ast sem næst réttu verði. For­send­urnar voru þessar: Toyota Corolla árgerðir 2004 til 2010, 1000 CC, 3 lítrar af olíu (10/40), bara skipt um olíusíu, farið yfir gír­kassa, drif og þetta hefð­bundna sem er athugað með þeagr bíll fer í smurn­ingu. Það gátu ekki allir aðilar gefið verðið upp nákvæm­lega, sumir gáfu upp verð­bil. Það er skilj­an­legt að ekki sé hægt að svara upp á punkt og prik þegar um svona þjón­ustu er að ræða, margt spilar inn í. Þó gaf dýr­asti stað­ur­inn fasta tölu en ekki verð­bil og sömu­leiðis sá ódýr­asti. Það ætti því ekki að koma að sök við sam­an­burð hæsta og lægsta verðs.

Mannlíf leitaði til gæðastjóra

Það sem vert er þó alltaf að hafa í huga er það að ekki nota allir aðilar sömu olíu, né sömu olíus­í­urnar og þess háttar. Það gæti verið gæða­munur sem vert er að skoða sam­hliða verð­inu áður en pant­aður er tími í smurn­ingu. Mannlíf ræddi við Ólaf Björn Jónsson gæða­stjóra hjá Heklu. Hann sagði að það skipti höf­uð­máli að góð olía og góðar síur væru not­aðar þegar hugað væri að þessum málum. Ólafur nefndi sem dæmi að bif­reiðar frá þeim (Heklu) þyrfti ekki að smyrja nema um það bil einu sinni á ári, eða eftir 15.000 kíló­metra. Sem dæmi má nefna að hjá Toyota er mælt með að smyrja á 8.000 kíló­metra fresti. Ólafur benti enn­fremur á að því betri olía sem væri notuð því betra fyrir umhverfið. Minni úrgangs­olía kemur auð­vitað frá bíl sem þarf að smyrja með lengra milli­bili og því minni olíu þarf að farga.

Niðurstöður verðkönnunar vikunnar

Vélrás var með hæsta verðið 23.000 krónur en Tækni­bílar Technik það lægsta 6.900 krónur. Munurinn er gríð­ar­legur eða 233 pró­sent. Ef vél bíls­ins þarfn­ast smurn­ingar þrisvar á ári og ódýrasta þjón­ustan valin, er hægt að spara tæpar 50 þús­und. Ef smyrja þarf vél­ina fjórum sinnum á ári sparar neyt­and­inn um 64 þús­und krónur. Flesta eldri bíla þarf sem dæmi að smyrja á 5000 KM fresti, svo þetta er ansi fljótt að koma.

Afslættir

Mjög mis­jafnt var hvort eða hvernig afslættir væru í boði. Sjö af 15 fyr­ir­tækjum eru með afslátt í gegnum FÍB með­lima­kort. Sömu­leiðis voru sjö sem veittu eldri borg­urum og öryrkjum afslátt. Tvær stöðvar veita afslátt í gegnum Orku­lyk­il­inn. Enn önnur verk­stæði sögð­ust halda verð­inu niðri fyrir alla í stað þess að gefa afslátt.

Leiðrétting

BJB púst hafði sam­band við Mannlíf, en svo virð­ist sem ekki hafi verið gefið upp rétt verð þegar hringt var í fyr­ir­tækið þann 18.mars síð­ast­lið­inn. Engu að síður er þetta ekki rétt verð ef marka má orð fyr­ir­tæk­is­ins. Rétt skal vera rétt og er verðið hjá þeim 13.551 krónur.

Nafn Verð
Smur­stöðin Klöpp 13.900
N1 12.789
Skelj­ungur Skóg­ar­hlíð 11.325
Titancar 7.900 – 9.900
Tækni­bílar Technik 6.900
Klettur 12.000-15.000
Smur­stöðin Garðabæ 11.325
Smur 54 15.000-16.000
Púst­þjón­usta BJB 13.551
Smur og við­gerð­ar­þjón­ustan 12.000-16.000
Kvikkfix 11.700
Motul smur­þjón­ustan 15.000
Nesdekk 15.000
Smur­stöðin Lauga­vegi 15.789
Vélrás 23.000

Ertu búin/n að sjá síð­ustu verð­könnun vik­unnar ?

Ef ekki þá er hún HÉR

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð