Bára nokkur vekur athygli á því innan hópsins Hver hendir svona? að Góði hirðinn hafi til sölu veglega hasspípu. Svokallað bong eða vatnspípu til að reykja kannabis. Hún virðist talsvert notuð og kostar 1250 krónur. Margir skemmta sér dátt yfir þessu í athugsemdum við færslu Báru.
„Hver hendir svona fínu gler bongi? með slatta af leifum í ..frekar spes að skella þessu bara fram í sölu,“ spyr Bára. Þessu svara nokkrir: „Einhver sem er mjög saklaus eða með húmor.“ Ein kona virðist dæmi um það fyrrnefnda og segir: „Mér sýnist þetta vera blómavasi“
Einn maður sér svo gott til glóðarinnar. „Ætli sé gott skaf í henni?“ Kona nokkur veltir svo fyrir sér hvernig pípan endaði hjá hirðinum. „Mamman að taka til undir rúmi hjá barninu hennar sem er ekki enn flutt að heiman?“































Athugasemdir