Strax í morgun var fjöldi manns mættur til að leggja leið sína upp að eldgosinu í Fagradalsfjalli. Veðurspáin gerði ráð fyrir þokkalegu veðri þar í dag og virðist sem fólk hafi ákveðið að láta ekki segja sér það tvisvar og drifið sig af stað í birtingu.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem teknar voru í morgun var komin ágætis bílaröð við Suðurstrandarveg um klukkan níu.

Félagar í björgunarsveitinni Þorbirni luku við að stika ákjósanlegustu gönguleiðina frá Suðurstrandavegi að gosstöðvum í gær. Svo nú ætti enginn að týnast.
Fyrir vel búið fólk tekur það eina og hálfa klukkustund að ganga stikuðu leiðina. En hún er um 3,5 km að gosinu, sem sagt sjö km fram og til baka.
Gasmengunar getur orðið vart í Geldingadölum og er því eindregið varað við því að fara þangað niður. Sér í lagi ef það er hægur vindur eins og útlit er fyrir að verði í dag.
Mannlíf er á staðnum að fylgjast með gangi mála og tók meðfylgjandi myndir.































Athugasemdir