Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gummi í Byrginu – Jesús, fjármálasvik og BDSM kynlíf

Gummi í Byrginu – Jesús, fjármálasvik og BDSM kynlíf

Það var í maí árið 2008 að Guð­mundur Jónsson var dæmdur í þriggja ára fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­brot í starfi. Auk þess var hann dæmdur til að greiða 12 millj­ónir í sak­ar­kostnað og miska­bætur.

Guð­mundur var betur þekktur sem Gummi í Byrginu og veit eng­inn nákvæma tölu fórn­ar­lamba hans.

Byrgið var með­ferð­ar­úr­ræði, stofnað af Guðmundi, og nokkrum öðrum ein­stak­lingum árið 1996. Öll áttu þau sam­eig­in­legt að vera fyrr­ver­andi fíklar. Starf­semin flakk­aði nokkuð á milli staða eftir því sem hún stækk­aði og árið 2004 var Byrgið að Efri-Brú í Gríms­nesi með 30-35 ein­stak­linga í með­ferð í einu. Jafnt karla sem konur. Frá upp­hafi var Guð­mundur fram­kvæmda­stjóri Byrg­is­ins.

Vistmenn rukkaðir

Byrgið naut góðs af starfi sjálf­boða­liða og var fjár­magnað með styrkjum frá ein­stak­lingum, fyr­ir­tækjum og skatt­greið­endum. Ríkið styrkti Byrgið um að minnsta kosti 226 millj­ónir króna á tíma­bil­inu 1999 til og með árs­ins 2007 auk þess sem vist­menn þurftu einnig að greiða fyrir vist sína.

Fjár­málaum­sjón Byrg­is­ins þótti oft vafasöm og var var tvisvar gerð úttekt á þeim, sú fyrri á árunum 2001/2002 og sú seinni á árunum 2006/2007. Í báðum skipt­unum þótti bók­hald og fjár­mála­stjórn mjög aðfinnslu­verð. Ekki var haft fyrir að skila árs­skýrslum. Samt sem áður hélt hið opin­bera áfram að útvista fíklum til Byrg­is­ins og greiddi vel fyrir.

Með­ferðin í Byrginu byggð­ist á 12 spora kerfi AA-sam­tak­anna og byggð­ist á stífri dag­skrá sem hófst snemma á morgn­ana og stóð langt fram á kvöld, strangar reglur giltu um þrif og heim­sóknir tak­mark­aðar. Ekki var um sér­stök með­ferð­ar­úr­ræði eða geð­ræna með­ferð að ræða, heldur lögð áherslu á guðsótta og sam­eig­in­legan stuðn­ing.

Engar kröfur um þekkingu

Skjól­stæð­ingar Byrg­is­ins komu úr hópi þeirra við­kvæm­ustu í sam­fé­lag­inu, oft ein­stak­lingar sem höfðu verið lengi í fíkni­efna­neyslu sem höfðu gert margar árang­urs­lausar til­raunir til að hætta. Þetta var fólk sem var illa haldið and­lega, lík­am­lega og félags­lega. Margir voru heim­il­is­lausir.

Þetta fólk var sett í umsjón aðila sem enga form­lega, né óform­lega, menntun hafði fengið í að sinna þeim fjöl­breytta vanda sem hrjáir ofan­greindan hóp. Við nán­ari grennslun kom í ljós að Byrgið hafði í ein­hverjum til­fellum séð um afeitr­anir, sem eiga ein­göngu að vera á hendi fag­manna.

Sprengjan fellur

Það er síðan í árs­lok 2006 að frétta­skýr­ing­ar­þátt­ur­inn Kompáss kastaði fram sprengju. Um var að ræða ásak­anir á hendur Guðmundi varð­andi fjár­mála­mis­ferli og kyn­ferð­is­legt sam­neyti við vist­menn Byrg­is­ins. Voru heim­ild­ar­menn jafnt starfs­menn, vist­menn og aðstand­endur vist­manna.

Kompáss tók við­tal við fjórar stúlkur sem sögð­ust hafa átt í kyn­ferð­is­legu sam­bandi við Guðmund á meðan á með­ferð þeirra stóð. Ein þeirra var undir lög­aldri. Allar áttu þær sam­eig­in­legt að Guð­mundur nýtti sér and­lega ann­marka þeirra til kyn­lífs

Einnig var borið upp á Guðmund að hann hefði gefið þeim stúlkum sem hann átti í sam­bandi við, dýr föt og jafn­vel bíla. Hann mun einnig hafa nýtt fé Byrg­is­ins til lóða­kaupa.

Guð­mundur brást við með að neita alfarið öllum ásök­unum og ásak­aði heim­ild­ar­menn um lygar og að aðstand­endur Kompáss hefðu gefið þeim eit­ur­lyf til að ljúga upp á hann. En dag­inn eftir lét hann af störfum sem for­stöðu­maður Byrg­is­ins en kærði einnig Kompáss til lög­reglu.

Í kjöl­farið komu fleiri fram með sögur af athæfi Guð­mundar. Þjóðin fékk áfall.

Svindl á svindl ofan

Nokkrum dögum síðar kom ung kona fram undir nafni í við­tali við Stöð 2. Hún sagð­ist hafa átt í sam­bandi við Guðmund í um tvö ár sem væri nýlokið. Hún sak­aði hann um trún­að­ar­brest og að hann hefði sagt öðrum skjól­stæð­ingum Byrg­is­ins frá per­sónu­legum sam­skiptum þeirra. Einnig sak­aði hún hann um að hafa svikið af henni fjórar millj­ónir króna sem hún greiddar frá trygg­inga­fyr­ir­tæki. Konan kærði Guðmund þann 22. des­em­ber 2006.

Fimm dögum síðar kemur í ljós að læknir hafi sent land­lækni bréf árið 2002 þess efnis að þrír vist­menn Byrg­is­ins hafi orðið þung­aðar af völdum starfs­manna. Það er kolólög­legt að starfs­menn hafi sam­ræði við vist­menn á með­ferð­ar­stofnun en þrátt fyrir það fékk Byrgið að starfa áfram óáreitt. Í boði skatt­greið­enda.

Þann 29. des­em­ber kom fram kona á miðjum aldri sem sagð­ist hafa gerst ábyrgð­ar­maður fyrir láni sem Guð­mundur fór fram á til upp­bygg­ingar Byrg­is­ins. Lánið var tekið árið 1999 og greiddi Guð­mundur af lán­inu í örfáa mán­uði en hætti svo. Konan missti hús­næðið í kjöl­farið.

Mynd­bandið sem setti inter­netið á hlið­ina

Alls kærðu átta konur Guðmund. Mynd­band­skeið þar sem hann sást stunda kyn­líf með skjól­stæð­ingi, tengt ofbeldi og drottnun, kom fljót­lega fram. Myndin flaug um lendur Inter­nets­ins á ógn­ar­hraða og hrundu net­þjónar lands­ins þegar lands­menn flykkt­ust að tölvum sínum.

Aðspurður sagð­ist Guð­mundur ætla að kæra stúlk­una á mynd­band­inu, ungan vist­mann, fyrir nauðgun. Sjálf hafði hún þá þegar kært hann fyrir nauðgun.

Ríkið lok­aði budd­unni með hraði og stofn­aði áfallateymi fyrir fórn­ar­lömb Guð­mundar.

Guð­mundur ját­aði aldrei neitt né sýndi iðrun. Hann kom fram í fjöl­miðlum þar sem hann kvart­aði sárt undan illri með­ferð og kvað málið hafa dregið tengda­föður sinn til dauða.

End­an­lega var skellt í lás hjá Byrginu þann 15. jan­úar 2007.

Ekki er vitað um hvar Guð­mundur Jónsson er staddur í dag né hvað hann hefur fyrir stafni

.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ