Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Munda Pálín eina konan á Íslandi sem var tvöfaldur morðingi: „Ég var alltaf hrókur alls fagnaðar”

Munda Pálín eina konan á Íslandi sem var tvöfaldur morðingi: „Ég var alltaf hrókur alls fagnaðar”

Í febr­úar 1991, stakk Munda Pálín Enoks­dóttir sam­býl­is­mann sinn, Óskar Þórð­ar­son, til bana á heim­ili sínu í Reykja­vík. Hún hringdi í kjöl­farið á Klepps­spít­ala og ját­aði á sig verkn­að­inn.

Þar með var Munda eina konan á Íslandi sem hefur framið tvö mann­dráp.

Saga Mundu er átak­an­leg saga fátæktar, geð­rask­ana, ofbeldis, nauð­gana, ógæfu og örvænt­ingar.

Fátækt, basl og barnadauði

Munda fædd­ist inn í blá­fá­tæka sjó­manns­fjöl­skyldu árið 1939, ein níu barna en tvö dóu ung. Þegar hún og systir hennar fermd­ust saman var engin ferm­ing­ar­veislan. Það var ekki til pen­ingur fyrir henni. Lífið var basl á basl ofan. Munda ólst upp í Reykja­vík en fjöl­skyldan flutti til Grinda­víkur þegar hún var 10 ára gömul. Síðar kom í ljós að Munda var bráð­vel gefin, hafði greind­ar­vísi­tölu upp á 122 stig, ljóð­ræn og vel lesin, en geð­sjúk­dómar og óregla komu í veg fyrir að hún rataði réttan veg í líf­inu.

Þegar Munda var 16 ára gömul trú­lof­að­ist hún pilti í pláss­inu en sam­bandið var stirt, erfitt og ofbeld­is­fullt. Þau eign­uð­ust þrjú börn. Eitt and­að­ist tveggja daga gam­alt og annað fékk heila­himnu­bólgu við eins árs ald­ur­inn og varð dreng­ur­inn þroska­haml­aður í kjöl­farið.

„Erfitt að vera geðveik í Þingeyjarsýslu“

Eftir skiln­að­inn við Grind­vík­ing­inn réð Munda sig sem ráðs­konu norður í land þar sem tveir bræður réðu búi. Hún var 21 árs. Hún gift­ist öðrum þeirra og stóð það sam­band í 11 ár. Hún eign­að­ist önnur þrjú börn með honum. Árið 1965 fer Munda að finna fyrir sjúk­dómi sínum og fer í kjöl­farið til Reykja­víkur og á Klepp. Þar var hún í tvo mán­uði og tók trú áður en hún var send aftur norður, lyfja­laus.  Í við­tali við Helg­ar­póst­inn árið 1984 segir hún að trúin hafi smám saman verið barin út henni. „Mér var sagt að þetta væri bara geð­veiki og rugl.” Hún náði aftur sam­bandi við guð sinn ára­tug síðar. Munda sagði það hafa verið erfitt að vera geð­sjúk­ling í Þing­eyj­ar­sýslu, hún hafi verið litin horn­auga af sam­sveit­ungum.

Árið 1968 þoldi Munda ekki lengur við og fór til Reykja­víkur.

Nauðgunartilraun og sjálfræðissvipting

„Þá tók við sukk og svínarí, guð­laust líf­erni”. Munda var í mörgum sam­böndum en engum alvar­legum. Og sukkið jókst, jarð­sam­bandið rofn­aði og ógæfan magn­að­ist. „Ég var aldrei alkó­hólisti, missti aldrei ráð og rænu. Ég var alltaf hrókur alls fagn­aðar.”

Eftir mikla fyll­er­í­is­skemmtun árið 1973 hélt Munda í partí í Árbæj­ar­hverfi þar sem 16 ára piltur reyndi að nauðga henni í stiga­gangi. Hún tók upp vasa­hníf og lagði pilts­ins þegar hann nálg­að­ist kyn­færi hennar. Málið vakti gríð­ar­lega athygli í fjöl­miðlum þar og var mikið um rætt að kona á fer­tugs­aldri hefði ráð­ist á 16 ára dreng. Hún var hand­tekin síðar um nótt­ina og kærð fyrir lík­ams­árás en nauðg­un­ar­til­raunin var aldrei kærð.

„Fimm lög­reglu­þjónar báru mig inn í klef­ann. Ég var klædd út öllum föt­unum.” Í kjöl­farið var Munda svipt sjálf­ræði og send á Klepp. Aftur. Sagði hún lög­regl­una hafa veifað ögrandi svipt­ing­ar­skjöl­unum framan í hana þegar hún lá í böndum aftan í lög­reglu­bíl. „Kærði ég naugð­un­ina? Nei, ég var geð­veik og vit­laus og mátti ekki lyfta litla fingri mér til sjálfs­bjargar. Það eru fleiri sem hafa nauðgað mér en ekki fengið nein ámæli fyrir það. Það er kannski annað mál að nauðga geð­veikri konu en venju­legri konu á Hverf­is­göt­unni. Ég var söku­dólg­ur­inn, hent í fang­elsi og inn á Klepp. Nú finnst mér eins og þjóð­fé­lagið hafi nauðgað mér.”

„Hrein og klár slagsmál“

Við útskrift nokkrum mán­uðum var Mundu sleppt af Kleppi og fór hún fljót­lega í hálf­gild­ings sam­búð að Suð­ur­lands­braut. „Hann var drykk­felldur og hafði af mér mikið fé. Sjálf hafði ég fasta vinnu, átti bíl og hafði hús­næði.”

Fimmtu­dag­inn 24. októ­ber 1974 var ekk­ert sjón­varp í boði eins og þá var reglan. En það var til nóg af áfengi. „Þetta voru slags­mál, hrein og klár slags­mál.” Veitti hún sam­býl­is­manni sínum, Jóhann­esi Þor­valds­syni, áverka með hníf með því að skera hann á háls og stinga hann fyrir ofan við­bein og herða­blað, og stuttu síðar réðst á hún á hann aftur með vasa­hníf og litlum skærum og stakk hann.

Í des­em­ber 1975 komst rétt­ur­inn að þeirri nið­ur­stöðu að slags­málin hefðu leitt til dauða Jóhann­esar. Þetta var mann­dráp, ekki morð. Hún var sýknuð af völdum and­legra ann­marka og talin ófær um að hafa stjórn á gjörðum sínum. Var Mundu gert að sæta örygg­is­gæslu. Eftir atburð­ina á Suð­ur­lands­braut var Munda send í varð­hald í Síðu­múlafang­elsi þar sem hún dvaldi í eitt og hálft ár.

„Klefinn: Stein­bekkur, gluggi sem sést út um. Glugginn svo hátt að það þarf að standa á bekknum. En það þýðir ekk­ert að horfa út um hann, það sést ekk­ert. Ég man eftir sól­skins­dögum í fang­els­is­garð­inum. En ég var búin að vera inni í heilt ár áður en ég fékk að fara þangað.”

Beygð og buguð

Munda var ein­mana og van­sæl og þjökuð af and­legum sjúk­dómum. Hún tók trúna aftur. Hún var síðar send á geð­sjúkra­hús í Svíþjóð þar sem hún dvaldi í þrjú ár áður en hún kom aftur heim. Munda losn­aði úr haldi árið 1984. Við tók mikið basl og sjálf­ræð­is­svipt­ingin hindr­aði hana í mörgu. Hún sagði kerfið hafa hana í hendi sér og gæti gert við hana hvað það sem því sýnd­ist.

Munda var beygð og buguð. „Maður upp­götvar að ætt­ingjar manns elska mig ekki, móðir manns elskar mann ekki, kærast­arnir elskar mann ekki, nágrann­arnir elska mann ekki, mað­ur­inn manns elskar mann ekki, ekki tengda­fólkið og það sem verst – að hata sjálfan sig. Hvar er þá ást að finna? Er það á Klepps­spít­ala?”

Seinna manndrápið

Sex árum síðar var Munda komin komin í sam­búð með Óskari Þórð­ar­syni. Í febr­úar 1991 stakk hún hann til bana á heim­ili sínu eftir ofbeld­is­fullt rifr­ildi.  Hún var aftur talin ósak­hæf vegna geð­rösk­unar og var dæmd til að sæta örygg­is­gæslu á við­eig­andi stofnun.

Hún eyddi ævinni meira og minna inni á stofn­unum og síð­ustu árunum á rétt­ar­geð­deild­inni að Sogni.

Munda tjáði til­finngar sína í eft­ir­far­andi ljóði:

„Hví eru hjörtu svo köld.

Hóta járnum á mig.

Hin gráu synda­gjöld

gína söm við sig –

Er svo með þig?”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ