Þýskur fjárhundur, eða Schafer eins og tegundin er yfirleitt kölluð, týndist við Holtavörðuheiði á dögunum. Sagt er að hundurinn, sem heitir Jago, hafi sloppið þegar aðili sem var að flytja hann tók pissustopp skammt frá Staðarskála.
Auglýst var eftir hundinum og buðust margir til þess að aðstoða við leitina eða hafa augun hjá sér þegar það væri á ferð sinni um svæðið.
Einnig hafa margir reynt að falast eftir frekari upplýsingum um hvar hundurinn hafi nákvæmlega týnst þar sem heiðin og svæðið í kring sé ansi stórt.
Virðast hins vegar eigendur hundsins ekki kæra sig um aðstoð ókunnugra og vilja sjálf sjá um leitina. Skrifar ein á síðunni Hundasamfélagið á Facebook: „Hellingur af fólki sem þekkir vel til á svæðinu bauðst til að leita og bað um betri upplýsingar en fengu lítil sem engin svör og útúrsnúninga. Það eitt og sér setur upp stórt spurningarmerki.“
„Af einhverjum ástæðum hafa eigendur hundsins verið tregir til að þyggja þá aðstoð sem boðist hefur og hafa heldur ekki séð ástæðu til þess að fara og leita að honum sjálf. Þar af leiðandi verður ekki skipulögð leit af okkar hálfu hér í Hundasveitinni,“ skrifar Dóra sem er ein þeirra sem er í forsvari fyrir Hundasveitina. Hundasveitin er hópur á Facebook sem tekur að sér að skipuleggja leit að týndum hundum.
Rúna sem ábyrgð virðist hafa á hundinum skrifar: „Takk allir sem eru búnir að hjálpa til við að leita að Jago, leit verður haldið áfram af fólki á okkar vegum. Þið hin sem trúið og berið áfram lygar og óhróður, skammist ykkar !“
Segir Rúna jafn framt að búið sé að fljúga með dróna um svæðið í leit að hundinum og um leið og sjáist til hundsins verði hægt að fara af stað með skipulagða leit. Segir hún svæðið of stórt og erfitt yfirferðar til að mögulegt sé að fara leita á því án nokkurra vísbendinga.
Allir nærliggjandi bæir hafa verið upplýstir um hvarf hundsins, lögreglan og einnig snjómokstursmenn á svæðinu.































Athugasemdir