Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fjölmiðlastjörnur gærdagsins – „Meðan fullorðna fólkið hældi mér stríddu jafnaldrarnir mér“

Fjölmiðlastjörnur gærdagsins – „Meðan fullorðna fólkið hældi mér stríddu jafnaldrarnir mér“
Einar Ólafsson var barna­stjarna.

Öll þekkjum við þær stundir þegar þjóðin sam­ein­ast agn­dofa yfir frétt eða atviki sem síðan gleym­ist í tím­ans rás. Sumt var fyndið, annað sorg­legt en öll áttu þeir ein­stak­lingar sem komu að málum, það sam­eig­in­legt að vera aðal­um­ræðu­efni í kaffi­tíma lands­manna á ein­hverjum tíma­punkti.

Áttavillti ferðamaðurinn

Banda­ríkja­mað­ur­inn Noel Santillan stal athygli land­ans ræki­lega árið 2016  þegar hann bank­aði upp á á Siglu­firði eftir fimm klukku­stunda stans­lausan akstur og bað um leið­bein­ingar að Hótel Frón.

Mistökin voru grát­lega hlægi­leg. Hann setti inn í leið­sögu­tækið Lauga­vegi með því að setja „R” inn í nafnið, en Laug­ar­vegur er á Siglu­firði en Hótel Frón er aftur á móti við Laugaveg í Reykja­vík. Noel tók mis­skiln­ingnum af æðru­leysi og sneri óhræddur aftur til Íslands ári síðar; öðl­að­ist nokkra frægð sem „Átta­villti ferða­mað­ur­inn” og fór í fjölda við­tala og lék í aug­lýs­ingu fyrir Hótel Siglu­fjörð.

Því má við bæra að Noel villt­ist aftur í þess­ari ferð á leið sinni í Bláa lónið og með sama leið­sögu­tækið. Noel til varnar má benda á að Lauga­vegur var rangt staf­settur á bók­un­ar­síðu hans. Ekki er vitað  til að Noel hafi komið aftur til Íslands en hann á fjölda íslenskra vina á Facebook. En það voru fleiri átta­villtir en Noel.

Enginn útskýrði mótlætið

Ég vil ganga minn veg, söng Einar Ólafsson snemma á átt­unda ára­tugnum en lagið hefur nokkrum sinnum hlotið þann vafa­sama heiður að þykja eitt versta lag Íslands­sög­unnar. Einar var í kjöl­farið nefndum Einar átta­villti og hafður að háði og spotti á meðal lands­manna. Einar var aðeins barn að aldri, en hann hafði sungið opin­ber­lega frá fimm ára aldri. Hann sagði í við­tali við Morg­un­blaðið mörgum árum síðar að þessi upp­lifun hefði haft stefnu­mót­andi áhrif á líf sitt; það hafi tekið hann hátt í þrjá ára­tugi að gera upp við for­tíð­ina. Athyglin var bæði jákvæð og nei­kvæð.

„Meðan full­orðna fólkið hældi mér stríddu jafn­aldr­arnir mér upp til hópa. Sú stríðni jókst með árunum og end­aði með ein­elti. Tíu ára strákur hefur ekki hug­mynd um hvernig hann á að bregð­ast við mót­læti af þessu tagi og eng­inn útskýrði það fyrir mér. For­eldrar mínir vissu ekki hvernig átti að taka á þessu og kenn­ar­arnir ekki heldur. Springi blaðra í skóla­stofu í dag fær allur bekk­ur­inn áfalla­hjálp. Því var ekki að heilsa á þessum tíma; mér hefði lík­lega ekki veitt af áfalla­hjálp. Þegar mér leið verst lang­aði mig helst að skríða niður í næsta nið­ur­fall.“

Einar var lengi að sætta sig við þetta tíma­bil í lífi sínu, en tókst það á end­anum: „Í dag er ekk­ert mál fyrir mig að ræða þetta. Ég er sáttur.“

Nakti kassakallinn

Þjóðinni brá í brún þegar 23 ára mynd­list­ar­nemi, Almar Atlason, ákvað að vera nak­inn í kassa í eina viku nak­inn; í gler­kassa í Lista­há­skól­anum árið 2015. Var gjörn­ing­ur­inn partur af loka­verk­efni hans við skól­ann. Margir leiddu hug­ann að praktískum atriðun eins og hvernig hann hyggð­ist nær­ast eða gera þarfir sína. Almar sagð­ist ætla myndi láta það ráð­ast og gæti fólk komið með mat til sín með því að setja hann í gegnum lúgu á kass­anum.

„Full­komið stjórn­leysi,“ kall­aði Almar Almar vist­ina í kass­anum. Kassa­ver­unni var streymt á YouTube við miklar vin­sældir – inn­an­lands sem utan­lands. Almar hélt út vist­in­ina við miklar vin­sældir og fékk við­ur­nefnið „Nakti kassa­kall­inn”.

Almar var ekki alveg búinn með djarfa list því á lista­sýn­ingu í Tjarn­ar­bíó fjórum áður síðar var hann með lista­verkið „Merking“ – en þá gafst sýn­ing­ar­gestum færi á að tjá sig með því að setja var­an­legt mark, í formi húð­flúrs, á bak hans.

Alþýðuhetjan af Landssímanum

Litli Lands­síma­mað­ur­inn varð alþýðu­hetja á „núll­komma­einni“ árið 2002 þegar hann kom á fram­færi upp­lýs­ingum um vafa­sama notkun stjórn­enda Lands­síma Íslands á fjár­munum rík­is­fyr­ir­tækis til fjöl­miðla.

Síðar kom í ljós að mað­ur­inn hét Halldór Örn Egilson, og missti hann starfið eftir ítar­lega leit fyr­ir­tæk­ins að upp­ljóstr­ar­anum. Halldór hafði upp­lýst um greiðslur til handa Friðriki Pálssyni, stjórna­for­manni Lands­sím­ans, en Þórarinn Viðar Þór­ar­ins­son, þáver­andi for­stjóri Lands­sím­ans mun hafa hyglt Friðriki meðal ann­ars með millj­óna króna greiðslum fyr­ir­tæk­is­ins til ráð­gjafa­fyr­ir­tækis í eigu Friðriks, Góðráða.

Einnig kom í ljós að Lands­sím­inn hafði ítrekað beint við­skiptum sínum til Hótel Rangár, sem var og er í eigu Friðriks. Þórarinn sjálfur fékk rán­dýra teng­ingu í sum­ar­bú­stað sinn við Þing­valla­vatn.

Friðrik  brást illa við þessum upp­ljóstr­unum um hann og Þórarinn Viðar; hófst þegar í stað leit að hverjum þeim sem flett hefðu getað upp Góðráðum í bók­halds­kerfum Símans. Nokkrum dögum síðar fannst starfs­mað­ur­inn sem prent­aði út gögnin. Halldór gaf sig þá fram og sagð­ist hafa beðið hinn um að prenta út. Hann var lát­inn fjúka sam­dæg­urs en hinn fékk áminn­ingu.

Bæði Blaða­manna­fé­lagið og almenn­ingur brugð­ust hin reið­ustu við og kraf­ist var laga um vernd heim­ild­ar­manna. „Hvað átti „Litli Lands­síma­mað­ur­inn“ að gera? Átti hann að kvarta við Friðrik Pálsson, eða átti hann að fara ofar og kvarta við Sturlu Böðv­ars­son þáver­andi sam­göngu­ráð­herra, eða fara til Rík­is­end­ur­skoð­unar? En eins og menn vita höfðu þessir ágætu herrar hringt í Rík­is­end­ur­skoðun til að fá stimpil á þennan gern­ing.

„Litli Lands­síma­mað­ur­inn“ hafði allar ástæður til að van­treysta þessum yfir­mönnum sínum og því kemur hann máli sínu eðli­lega til fjöl­miðla,“ sagði Þór Jónsson vara­f­rétta­stjóri Stöðvar 2 á sínum tíma.

Halldór Örn er enn afar dug­legur að benda á það sem miður fer í sam­fé­lag­inu á sam­fé­lags­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð