Jóhann Páll Jóhannsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar og fyrrverandi blaðamaður, segir það grafalvarlegt að ríkisstjórnin ætli að halda leynd yfir gögnum sem varða sóttkvíarhótel. RÚV greindi frá því fyrr í dag að heilbrigðisráðuneytið hefði ákveðið að leynd ríki yfir þeim gögnum sem liggja til grunvallar ákvörðun stjórnvalda um að skikka fólk frá rauðum og gráum ríkjum í sóttkvíarhús við komuna til landsins.
Jóhann Páll segir að ríkisstjórnin verði að birta þessi gögn tafarlaust. „Þetta eru grundvallarupplýsingar um stærsta hagsmunamál þjóðarinnar á þessum tímapunkti. Ríkisstjórnin ætti að láta birta gögnin tafarlaust á stjórnarráðsvefnum,“ segir Jóhann Páll.
Gögnin eru samkvæmt RÚV „minnisblað frá heilbrigðisráðherra til ríkisstjórnar, sameiginlegt minnisblað þriggja ráðherra til ríkisstjórnar um opinberar sóttvarnaráðstafanir á landamærum og minnisblað frá skrifstofu löggjafarmála í forsætisráðuneytinu til forsætisráðherra þar sem lagt er mat á lögmæti aðgerðanna á landamærum.“
Hann segir að það sé lítið mál að hylja persónugreinanlegar upplýsingar. „Ef þar er að finna upplýsingar sem eru persónugreinanlegar eða lög standa til þess að fari leynt af öðrum ástæðum er hægðarleikur að afmá þær – en það er nákvæmlega ekkert í upplýsingalögum sem réttlætir þessa algjöru upplýsingaleynd,“ segir Jóhann.
Hann segir að svona hverfi samstaða þjóðarinnar. „Leyndarhyggjan grefur líka undan tiltrú á yfirvöld og samstöðu um nauðsynlegar sóttvarnaraðgerðir. Það er hættulegt. Birta gögnin asap takk!“































Athugasemdir