Þrjár systur Freyju Egilsdóttur Mogensen, sem myrt var hrottalega í Danmörku 2. febrúar síðastliðinn, minnast litlu systur sinnar með hlýjum orðum í dag. Þær segja Freyju verða sárt saknað og hún ávallt elskuð.
Freyja var stúlka frá Selfossi sem elskaði flatkökur og íslenska náttúru. Hún flutti til Árósa í Danmörku árið 1999 og bjó þar fram í andlátið. Síðustu vikur hennar hér á jörðu saknaði hún heimalandsins og mátti skynja að hana langaði heim. Fjölskylda Freyju var yfirbuguð af sorg af þeim fregnum að hún hafi verið myrt.
Sjá einnig: Sorgarsaga Freyju – „Erum í áfalli“-Stúlkan frá Selfossi elskaði flatkökur og íslenska náttúru
Freyja lætur eftir sig þrjú börn: Alex fæddur 1993, Lúkas fæddur 2001 og Emma fædd 2015. Útför Freyju hér á landi fer fram síðar að sögn systranna þriggja sem fara hlýjum orðum um Freyju í minningargrein í Morgunblaðinu í dag. Freyja heitin var yngst þeirra systra.

„Á erfiðum tímum er gott að finna fyrir hlýhug og umhyggju frá fjölskyldu, vinum og nærumhverfi. Við þökkum því góða fólki sem hugsaði til okkar og gaf okkur styrk. Það var mikið fjör og gleði að fá kornabarn í hópinn þegar við hinar systurnar vorum komnar, eða nánast komnar, á unglingsaldur. Hún var einstaklega ljúft barn og mikill gleðigjafi sem gerði alla daga betri, segja þær Dísa María, Ásthildur og Sólrún. Og þær bæta við:„Freyja var lífsglöð, hún gladdi fólk með nærveru sinni og fann til með því fólki sem átti erfitt. Hún var mjög listræn, elskaði tónlist og málaði litskrúðugar myndir sjálfri sér og öðrum til ánægju. Við minnumst Freyju umfram allt fyrir hjartahlýju og jákvæðni til lífsins. Freyju verður sárt saknað og hún ávallt elskuð.“

Ríflega fimmtugur sambýlismaður Freyju, Flemming Mogensen, 51 árs Dani, játaði á sig hrottalegt morðið á FreyjuFreyja var aðeins 43 ára að aldri er hún lést á Austur-Jótlandi. Frænka Flemmings, Camilla Diana Mogensen, segir fjölskylduna í gífurlegu áfalli eftir hinn sorglega atburð. „Við erum, öll fjölskyldan, í mjög miklu áfalli,“ sagði Camilla í samtali við Mannlíf.































Athugasemdir