Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hafdís segir lækninn hafa vitað en ekkert sagt: „Vó, 20 ár af lífi manns“

Hafdís nokkur leitar á náðir á Facebook-hóps­ins Lög­fræð­inörd með mál sem virð­ist algjör­lega ein­stakt og óþekkt hér á landi. Hún seg­ist tala fyrir hönd sjúk­lings sem fékk ekki að vita í um 20 ár að hann hafði verið greindur með alvar­legan og arf­gengan sjúk­dóm. Svo virð­ist sem læknir við­kom­andi hafi ein­fald­lega ekki sagt sjúk­lingnum frá grein­ing­unni. Hafdís segir þetta hafa haft gíf­ur­leg áhrif á lífs­gæði sjúk­lings­ins, líkt og gefur að skilja.

Hafdís seg­ist vilja kanna rétt­ar­stöðu þessa ónefnda sjúk­lings en frá hennar bæj­ar­dyrum eru máls­vextir svo: „Sjúk­lingur kemst að því nýverið, að hafa verið greindur með alvar­legan og arg­fengan sjúk­dóm ,fyrir 20+ árum, án þess að hafa fengið vit­neskju um þetta á sínum tíma og hvað þá við­eig­andi með­höndlun. Þessi til­tekni ein­stak­lingur er með annan sjúk­dóm, á loka­stigi, sem er af öðrum toga en hefur þó áhrif á sömu líf­færi. Sjúk­ling­ur­inn eign­ast barn áður en þetta grein­ist og það barn fær þennan sjúk­dóm og er látið af völdum hans. Sjúk­lingur eign­ast svo annað barn eftir grein­ingu en veit ekki af grein­ing­unni. Sér­fræði­læknir sjúk­lings­ins óskaði nýverið eftir erfða­rann­sókn á sjúk­dómnum sem barnið dó úr en það kom sjúk­lingnum á óvart, því við­kom­andi hafði ekki fengið þá grein­ingur sjálfur,“ skrifar Hafdís.

Hún telur einu mögu­legu skýr­ing­una á þessu að lækn­ir­inn hafi ekki látið sjúk­lingin vita. „Það virð­ist því vera ljóst að umræddur læknir vissi af þess­ari grein­ingu en hafði aldrei minnst á það við sjúk­ling­inn. Erfða­fræði­teymið kynnti nið­ur­stöður sínar fyrir sjúk­lingnum og sagði að þessi grein­ing hefði legið fyrir, fyrir 20+ árum. Það liggur í augum uppi að þetta hefur haft gíf­ur­leg áhrif á lífs­gæði sjúk­lings­ins. Að mér vit­andi, hefur ekk­ert sam­bæri­legt mál verið sótt.“

Hún seg­ist í áfalli eftir að hafa frétt af mál­inu. „Þar sem sjúk­ling­ur­inn hefur verið algjör­lega óvinnu­fær árum saman, langar mig að vita hvort og þá hvert sé hægt að leita, til þess að fá lög­fræði­að­stoð „pro bono“. Ber læknum ekki skylda að upp­lýsa sjúk­linga sína og gera þeim fylli­lega grein fyrir nið­ur­stöðum grein­inga? Ég taldi þetta vera borð­leggj­andi en ég er svo rasandi yfir þessum fréttum að ég taldi best að leita til sér­fræð­ing­anna sem hér eru.“

Lög­fróðir svara henni í athuga­semdum og sumir eru for­viða eins og hún. „Vó, 20 ár af lífi manns,“ skrifar einn til dæmis meðan kona nokkur seg­ist hafa lent í ekki ólíku máli sjálf. „Úff, hárin risu. Langar að senda sam­úðar, sam­stöðu og bar­áttu­kveðjur til við­kom­andi. Ég þurfti að taka svona slag fyrir 16 árum því læknir a barna­spít­al­anum upp­lýsti okkur for­eld­rana ekki um það að hún hafi greint hjarta­galla hjá syni okkar. Þessi galli var þess eðlis að barnið hefði ekki séð full­orð­insár án við­gerðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ