Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

AFHJÚPUN – Lauma sér inn á öldunarstofnanir á fölskum forsendum og svína á gamla fólkinu

AFHJÚPUN – Lauma sér inn á öldunarstofnanir á fölskum forsendum og svína á gamla fólkinu

Athygli Mannlífs var vakin á því fag­lærðir aðilar í hár­greiðslu, fóta­að­gerða- og snyrtifræði réðu sig sem starfs­menn í umönnun aldr­aðra sem dvelja á öldr­unar- og hjúkr­un­ar­heim­ilum. Þessir aðilar byðu svo skjól­stæð­ingum upp á þjón­ustu sína, hár­greiðslu og fót­snyrt­ingu/fóta­að­gerðir og oft á hærra verði en á stofum úti í bæ. Þá leikur grunur á að um sé að ræða ,,svarta vinnu“ í flestum til­fellum og enn­fremur að við­kom­andi nýti aðstöðu og annað inni á heim­il­unum end­ur­gjalds­laust. Tekið skal fram að þessir aðilar sinna sínu starfi sem umönn­un­ar­að­ilar með sóma og ekk­ert upp á þann þátt að klaga. Málið snýst um að þarna er verið að smeygja sér inn á stofn­an­irnar á fölskum for­sendum.

Stjórnendur meðvitaðir

Eftir að Mannlíf birti grein um að verið sé að okra á eldri borg­urum hvað varðar fót­snyrt­ingar/fóta­að­gerðir sjá grein hér, höfðu starfs­menn öldr­un­ar­heim­ila sam­band og sögðu frá hlutum sem hafa við­geng­ist innan veggja heim­il­anna og staðið yfir í fjöl­mörg ár. Stjórn­endur vita af þessu sem og annað starfs­fólk en það er mjög erfitt að taka  á mál­unum þegar um sam­starfs­fólk er að ræða og skellt er skolla­eyrum við kvört­unum.

Aukið álag

Þessir ein­stak­lingar sem virð­ast vera að ráða sig í ummönnun á fölskum for­sendum, taka ein­ungis við pen­ingum og nota aðstöðu sem eru fyrir hendi á stofn­un­unum án end­ur­gjalds svo sem hand­klæði og annað sem til þarf. Það, meðal ann­ars, veldur því að skjól­stæð­ingar eru með lausafé inni á her­bergjum sínum og þá einna helst í nátt­borðs­skúffum. Svartir sauðir leyn­ast stundum í mörgu fé og upp hafa komið fjöl­mörg mál þar sem pen­ingar hverfa frá fólk­inu. Þetta ástand hefur í för með sér auka álag og ósann­gjarna ábyrgð á starfs­fólk þess­arra stofn­ana.

Þetta höfðu við­mæl­endur Mannlífs sem vinna á  heim­ilum og spít­ölum er sinna öldruðum meðal ann­ars, um málin að segja :

„Við höfum kvartað í gegnum tíð­ana því mörgum okkar finnst þetta allt annað en í lagi auk þess eru skjól­stæð­ingar okkar með lausafé inni hjá sér til þess að geta greitt þessum aðilum fyrir þjón­ust­una. Upp hafa komið til­vik þar sem pen­ingar hverfa og hverjum er kennt um það? Okkur, og það erum við alls ekki sáttar eins og gefur að skilja. Við höfum ekki viljað hafa þetta hang­andi yfir höfðum okkar. Sumir skjól­stæð­ingar eða aðstand­endur þeirra biðja um að lausafé og önnur verð­mæti séu geymd í læstum lyfja­skápum í umslagi. Þetta er undir öllum kring­um­stæðum aukið álag á starfs­fólkið, við viljum ekki bera ábyrgð á fjár­munum skjól­stæð­ing­anna og eigum alls ekki að þurfa þess.“

„Við megum alls ekki fara ofan í nátt­borðs­skúffu skjól­stæð­inga okkar en stundum þurfum við að sækja hluti fyrir þá, greiðu eða annað slíkt og þá blasa bara við manni pen­inga­seðlar. Þá segi ég, æi ekki vera með þetta hér.“

„Þetta er ekki aðeins í gangi á einni stofnun heldur mjög mörgum, stjórn­endur vita mæta vel af þessu en gera ekk­ert í mál­unum“

„Stjórn­endur og yfir­menn vita af þessu enda fer það ekki fram­hjá neinum að starf­semin er í gangi beint fyrir framan augun á fólki. Þetta þykir bara í lagi, er þaggað niður.“

„Það er alls ekki þannig að skjól­stæð­ing­arnir hagn­ist eitt­hvað á því að eiga við­skipti við þá sem stunda þetta, borga meira en á stofum úti í bæ ef eitt­hvað er.“

„Við viljum að þetta sé stöðvað því þetta er rangt á svo margan hátt. Ég og fimm aðrar sem ég hef unnið með hafa kvartað undan þessu en skolla­eyrum er bara skellt við þessu af stjórn­endum.“

„Ég hef unnið við umönnun aldr­aðra í tugi ára og þetta er alls ekk­ert nýtt. Ég vona að þessi skrif ykkar muni hafa áhrif og eitt­hvað verði loks­ins gert til úrbóta. “

„Þær rukka gamla fólkið um mjög háar upp­hæðir sem það greiðir þegj­andi og hljóða­laust og við sem reynum að standa upp fyrir fólkið og láta vita, fáum enga athygli, mál­inu er alltaf eytt. „

„Þetta eru fóta- og snyrti­fræð­ingar og hár­greiðslu­konur, en tals­vert fleiri hár­greiðslu­konur  stunda þetta en þær sem eru í fót­snyrt­ing­unni. „

Þetta er síður en svo í lagi og á þessu þarf að taka og stöðva. Þeir aðilar sem þetta stunda eiga einnig  að sjá sóma sinn í að stein­hætta að fara svona að hlut­unum, eins og kettir í kringum heitan graut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð