Það var í hámarki góðærisins í maí 2007 að kínverskur smáhundur hvarf á Akureyri. Hundsins var eðlilega sárt saknað af eigendum. Hópur fólks leitaði um allt. Heitið var háum fundarlaunum þeim, sem kæmi hundi heim. Öðru hvoru sást til hundsins á næstu dögum og vikum en aldrei náðist að hafa hendur í hári hans.
Hundurinn hét Lúkas. Smám saman varð til stóra Lúkasarmálið sem skók kaffistofur, landsmanna en fyrst og fremst netheima. Sjaldan eða aldrei hefur dómstóll götunnar reitt jafn hátt til höggs.
Nákvæmar og hrottalegar lýsingar
Stóra Lúkasarmálið má í upphafi rekja til Bíladaga á Akureyri sem haldnir voru í júní 2007. Sú saga fór á kreik að hópur drengja á aldrinum 16 til 21 árs hefði fundið litla hundinn, komið honum fyrir í íþróttatösku og leikið sér síðan að því að sparka úr dýrinu líftóruna. Sagan flaug um á ógnarhraða og voru lýsingarnar bæði nákvæmar og hrottalegar. Kristjana Margrét Svansdóttir, eigandi Lúkasar, leitaði í kjölfarið til lögreglu og kærði meint dýraníð.
Bloggheimar og kommentakerfið fjölmiðlanna nötruðu yfir meðferðinni á Lúkasi. Þjóðin var sameinuð í sorginni og var kertum fleytt jafnt á Akureyri og í Reykjavík í minningu litla varnarlausa hundsins sem hafði látið líf sitt á svo sviplegan og harðsvíraðan hátt. Mátti víða sjá tár á hvammi þegar Lúkas var kvaddur hinstu kveðju við flökt kertaljósanna í miðsumarnóttinni.
Að minnsta kosti einn af meintum drápurum Lúkasar var nafngreindur sem höfðupaur snemma í ferlinu og fór þar með af stað eitthvað það makalausasta mannorðsmorð sem um getur í íslenskri internetsögu.
Sumarið breyttist í martröð
Piltinum og foreldrum hans var hótað, það var setið um heimili hans og jafnvel ráðist á hann með ofbeldi í matvöruverslun.
Meðal þeirra gríðarlega fjölda hótana sem honum voru eftirfarandi:
„Ég er persónulega búinn að setja menn á þig… ég veit hvar þú ert og hvert þú ferð“
„Vona að þeir sem hafa hótað þér standi við hótanir sínar.“
Pilturinn heitir Helgi Rafn Bynjarsson og breyttist sumarið sæla 2007 á örskotsstundu í martröð fyrir hann. Eðlilega tók þetta mál mjög á Helga sem þorði vart út úr húsi, missti vinnuna og þurfti að leita sér aðstoðar. Hann sagði síðar þetta hafa verið versta sumar lífs síns.
Liðu vikurnar, ekki fannst hræ hundsins og tók lögregluna á Akureyri að gruna að hugsanlega væri ekki allt með felldu varðandi meinta árás á Lúkas litla. Sá grunur fékkst staðfestur nokkrum dögum síðar þegar tilkynningar fóru að berast um að Lúkas „sálugi” hefði sést sprelllifandi á vappi ofan við bæinn.
Reyndist sagan af ofbeldisfullum dauða hundsins hafa verið lygasaga sem öðlaðist sitt eigið líf á spjallþráðum netsins.
„Er búin að fá ógeð“
Lúkas var með afbrigðum mannafælinn og illa gekk að festa hendur á honum. Á endanum tókst að egna fyrir hvutta með æti og var honum skilað þjökuðum, en annars nokkuð heilum, til eigenda sinna. Enga áverka af mannavöldum var að finna á dýrinu.
Kristjana Margrét eigandi Lúkasar var kát með komu hvutta en lýsti einnig yfir reiði í garð þeirra sem höfðu logið til um afdrif hundsins, jafnvel í skýrslutöku hjá lögreglu.
„Ég er löngu búin að fá ógeð á þessu. Ég skil ekki fólk sem er það sjúkt að hafa ekkert betra að gera en að eltast við fólk sem er búið að týna hundinum sínum,“ segir Kristjana í viðtali við Vísi.
„Þeir eru búnir að hafa alla að fífli. Lögreglan er meira að segja búin að kafa eftir hundinum. Og þvílík mannorðssverting fyrir strákinn [Helga]. Það er búið að reka hann úr vinnu en ég ætla að vona að vinnan sjái sóma sinn í að ráða hann aftur,“ sagði hún.
Helgi Rafn hlaut umsvifalaust uppreist æru og kærði í kjölfarið ríflega 70 manns fyrir hótanir og mannorðsníð. Málið mallaði innan kerfisins í nokkur ár áður þeim átta, sem lengst höfðu gengið í árásum sínum gegn Helga, var boðin sátt gegn greiðslu sektar.
Árið 2013 sýndi leikfélagið Norðurbandalagið leikritið Lúkas, sem byggt var á málinu, við góðar móttökur. Helgi Rafn var gestur á frumsýningarkveldinu.
Lúkas, frægasta gæludýr Íslandssögunnar, drapst af völdum veikinda í ferbrúar 2011.































Athugasemdir