Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Arndís eignaðist tvö börn í fangelsinu – „Hafði mikinn kynþokka til að bera“

Arndís eignaðist tvö börn í fangelsinu – „Hafði mikinn kynþokka til að bera“

Arndís Jóns­dóttir var blá­fá­tæk vinnu­kona á ofan­verðri 18.öld. Hún var hund­elt af yfir­völdum síns tíma, hlaut tvo útlegð­ar­dóma, einn dauða­dóm og tvo fang­els­is­dóma, þann síð­ari til ævi­langrar þrælk­un­ar­vinnu. Mál hennar komu inn á borð þriggja sýslu­manna, lög­réttu, land­fó­geta, stift­amt­manns, dóms­mála­stjórn­ar­innar í Danmörku og loks kon­ungs.

Hún varð síðar þekkt undir nafn­inu Barna-Arndís og skráði Guðni Jónsson pró­fessor sögu hennar um miðja síð­ustu öld.

Ekki er vitað til þess að Arndís hafi nokkurn tíma gert manni mein. Hún var hund­elt af yfir­völdum fyrir að lifa kyn­lífi utan hjóna­bands með þeim afleið­ingum að hún eign­að­ist átta börn, þar af fimm með kvæntum mönnum. Hvergi er þess getið að barns­feðrum hennar hefði verið gert að sæta refs­ingu.

Saga Arndísar er átak­an­leg saga konu sem stóð varn­ar­laus gegn valda­mönnum sem töldu sig hafa skil­yrð­is­laus yfir­ráð yfir ákvörð­unum hennar, lík­ama og lífi.

Dauðadómur og fangelsisvist

Arndís fædd­ist 1745 á Gamla-Hrauni á Eyr­ar­bakka. Liðlega tví­tug að aldri réð hún sig sem vinnu­konu í Skafta­fells­sýslu og eign­ast þar tvö börn árið 1768 og 1770. Bæði kenndi hún kvæntum bónda, Sigurði Þor­steins­syni í Kotey. Bæði hlutu þau hór­dóms­sekt en Arndís var gerð brott­ræk úr sýsl­unni. Hún fór heim til for­eldra sinna, ólétt að þriðja barn­inu sem hún kvað annan giftan bónda í Skafta­fells­sýsl­unni, Odd nokkurn Eyj­ólfs­son, eiga.

Gamla tugt­húsið þar sem Arndís þurfti að dúsa sökum hór­dóms­brota hýsir nú Stjórn­ar­ráðið.

Þegar hér var komið við sögu þóttu hór­dómur Arndísar það alvar­legur að hún var dæmd til drekk­ingar fyrir brot með kvæntum mönnum. Athygli vekur að menn­irnir fengu engar sakir á sig. Dómnum var hnekkt og Arndís gert að sækja fang­els­is­vist í Hegn­ing­ar­hús­inu við Arnarhól sem nú hýsir Stjórn­ar­ráðið. Ekki tókst þó betur til en að Arndís átti tvö börn meðan á fang­els­is­vist­inni stóð og kenni þau bæði sam­fanga sínum, hinum víð­fræga Arnesi Pálssyni úti­legu­manni og félaga Fjalla-Eyvindar.

Ævilöng þrælkunarvinna

Arndís sat í fjögur ár í fang­elsi áður en hún henni var sleppt, óléttri af sínu sjötta barni sem var á ábyrgð Ara Pét­urs­sonar, ókvænts Norð­lend­ings sem hafði stundað sjó­róðra á Arn­ar­hóli. Arndís fór aftur heim til for­eldra sinna, nú lið­lega þrí­tug að aldri.

Enn á ný er settur fram mála­til­bún­aður á hendur Arndísi og hún gerð útlæg úr Sunn­lend­inga­fjórð­ungi.

Árið 1780 flytur Arndís að Hval­eyr­ar­koti í Hafn­ar­firði og eign­ast dóttur með kvæntum hús­bónda sínum, Nikulási Bárð­ar­syni. Þau eign­uð­ust annað barn tveimur árum síðar. Kært mun hafa verið með þeim hjúum en var þeim stíað í sundur af yfir­valdi.

Arndís hafði þar með eign­ast átta börn án þess að hafa hlotið vígslu heilags hjóna­bands.

Þetta gat yfir­valdið ekki liðið lengur. Krafðist land­fó­geti þess að Arndís yrði tekin af lífi eftir Stóra­dómi en rétt­ur­inn hunds­aði það og dæmdi Arndísi til að þræla ævi­langt í spuna­hús­inu í Kaup­manna­höfn.

Hafði mikinn kynþokka

Mál Arndísar áttu enn eftir að flæjast. Arndís sá fram á ævi­langa þrælkun og sult þegar fram steig sex­tugur ekk­ill, Magnús Pálsson, og fal­að­ist eftir að kvæn­ast Arndísi. Í kjöl­farið var farið fram á kon­ung­lega náðun. Náðunin fékkst en það flækti þó málin að á meðan náð­un­ar­ferlið var í gangi lést fyrr­nefndur Magnús. Yfirvöld vissu ekk­ert hvaða skref ætti að stíga næst varð­andi hór­dóms­kon­una Arndísi og ákváðu að láta kjurt liggja.

Lýkur þar með tveggja ára­tuga ofsóknum yfir­valda á hendur Arndísi.

Árið 1788 stóð Arndís á end­anum fyrir framan prest og ját­að­ist Jóni Jónsson að Eiði í Mos­fells­sveit og áttu þau eina dóttir. Jón lést um aldur fram og ekki fer neinum frek­ari sögum af Arndísi.

Arndís Jóns­dóttir lést árið 1806.

Í lok frá­sagnar segir Guðni orð­rétt: „Engin lýs­ing er til á Arndís Jóns­dóttur. En á því getur eng­inn vafi leikið að hún haft mik­inn kyn­þokka til að bera. Í rétt­ar­bókum er hvergi svo mikið sem gefið í skyn að hún hafi verið neinn vönt­un­ar­maður til skiln­ings eða gáfna, enda svarar hún jafnan ein­arð­lega og afdrátt­ar­laust þeim spurn­ingum sem fyrir hana eru lagðar. Allt bendir því til að hún hafi síst staðið að baki öðrum kyn­systrum sínum í hennar stétt, hvorki að sál­ar­gáfum né lík­am­legu atgervi, og ytri aðstæður eða til­viljun hafi ráðið mestu um það hve ham­ingjan reynd­ist henni hverful. Ef hún hefði gifst ung, mundi saga hennar senni­lega í engu orðið frá­brugðin sögu ann­arra kvenna sam­tíð­ar­innar og nafn hennar ekki orðið annað en liður í heið­ar­legri ætt­ar­tölu síð­ari tíma manna.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ