Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hulda veit það er aðeins ein leið frá sjúkdómi Ægis sonar síns: „Ég sit hér með tárin í augunum“

Hulda veit það er aðeins ein leið frá sjúkdómi Ægis sonar síns: „Ég sit hér með tárin í augunum“
Það er samt ein­hver kraftur inni í mér sem ég get ekki útskýrt sem nær að rífa mig ótrú­lega mikið upp en maður þarf á sama tíma að passa sig af því að þetta getur ekki gengið enda­laust. Ég þarf tíma fyrir mig og hvíla mig aðeins. Kúnstin er að vera góður við sjálfan sig.

Ægir Þór Sæv­ars­son er níu ára strákur búsettur á Höfn sem greind­ist sex ára gam­all með Duchenne-vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn. Mamma hans, Hulda Björk Svans­dóttir, talar hér um Ægi, gleði og sorg og áhrif þess að eiga lang­veikt barn á sam­skipti sín við eldri börn sín. „Þegar ég hugsa til baka þá fórum við aðeins að fjar­lægj­ast. Þau vita auð­vitað að ég elska þau og maður reynir alltaf að gera sitt besta en það er örugg­lega viss höfnun sem þau ganga í gegnum. Ég held að það sé erfitt að vera systk­ini lang­veiks barns. Þau vantar mömmu sína eða pabba.“ Hulda talar líka um and­lega og lík­am­lega líðan sína. „Svo er það stressið en stundum er eins og það sé allt titr­andi inni í mér. Þetta er rosa­lega vond og óþægi­leg til­finn­ing og stundum hefur þetta mikil áhrif á svefn­inn. Svo verð ég svo við­kvæm. Mér finnst ég stundum fá rosa mik­inn kraft en svo koma dagar þegar ég er örþreytt.“ 

Andlit Huldu Bjarkar Svans­dóttur birt­ist á tölvu­skjánum. Hún heilsar glað­lega.

„Mér finnst ég þekkja þig,“ segir blaða­maður sem hefur síð­ustu ár fylgst af og til með henni á Facebook-síð­unni „Stuðn­ingur fyrir Ægi Þór Sæv­ars­son“. Meðlimir eru tæp­lega 4000 víða um heim. Á síð­unni vekur Hulda Björk athygli á bar­áttu fjöl­skyld­unnar í tengslum við Duchenne-vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn sem yngri sonur hennar, Ægir Þór, er með.

Það fylgir því sorg að eiga lang­veikt barn. Þetta er upp og niður.

„Maður verður stundum pínu vand­ræða­legur,“ segir hún. „Þetta er ynd­is­legt. Við Ægir vorum nýlega í verslun til að kaupa bún­inga fyrir dans­vídeó. Ég var að fara að borga og þá spurði afgreiðslu­konan hvort ég ætl­aði að nota þetta í föstu­dags­fjörið.

„Ha?“ sagði ég.

„Já,“ sagði hún. „Ég er alltaf að fylgj­ast með þér. Ég ætla að gefa ykkur þetta.“

Og afgreiðslu­konan gaf Huldu bún­inga sem hún og Ægir voru svo í í einu dans­mynd­band­inu sem þau birta á síð­unni en mynd­böndin eru jú gerð til að vekja athygli á bar­átt­unni.

„Sem betur fer er Ægir til í þetta með mér; það væru ekk­ert allir krakkar til í þetta. Hann er held ég alveg ein­stakur. Ég segi það oft að Ægir hafi átt að koma til okkar. Hann er að kenna okkur margt og mikið.“

Hulda fær stundum þjóð­þekkt fólk til að dansa og má þar nefna Pál Óskar, Sóla Hólm, Katrínu Jak­obs­dóttur og Gísla Ein­ars­son frétta­mann. Þá tók sporið á sínum tíma einn virt­asti sér­fræð­ingur í heimi hvað varðar Duchenne, dr. Mendell.

Margir Duchenne-strákar, en sjúk­dóm­ur­inn leggst nær ein­göngu á drengi, eru á ein­hverfu­róf­inu og sumir eru mjög ein­hverfir; þeir tala jafn­vel ekki og eru með mik­inn skynúr­vinnslu­vanda. Ægir er svo hepp­inn að hann dansar á gráu svæði en það er alveg nóg og hamlar honum stundum og hefur áhrif á dag­legt líf hans og sam­skipti hans við aðra.

„Það er svo gaman að dansa með Ægi. Það er eitt það skemmti­leg­asta sem ég geri. Við dönsum líka stundum þótt það sé ekki tekið upp og birt á síð­unni. Ég held að það hjálpi Ægi – hann verður lipr­ari. Hann finnur til sín þegar fólk dansar með; það hefur áhrif á sjálfs­traust hans. Sóli Hólm sagði honum að hann væri aðdá­andi hans og væri búnn að fylgj­ast með honum. Ég sá hvað þetta gaf Ægi mikið. Hann tal­aði um þetta allan dag­inn og sagði „veistu hvað, það hefur eng­inn áður sagt mér að hann sé aðdá­andi minn“.

Hulda segir að það sé svo­lítið erfitt að hafa sett Ægi svona í sviðs­ljósið.

„Mér finnst hins vegar kost­irnir vera það miklir að mér fannst það vega á móti því ef þetta myndi eitt­hvað skaða hann af því að ég sé hvað þetta hefur góð áhrif á sjálfs­traust hans. Nú vill hann vera youtuber og er búinn að gera nokkur mynd­bönd. Ég sé hvað hann eflist. Ég held að þetta sé gott fyrir hann.“

Stóri bróðir prjónaði trefil

Hulda Björk, sem er heima­vinn­andi en leik­skóla­kenn­ari að mennt, er gift Sævari Rafni Guð­munds­syni vél­stjóra og búa þau á Höfn ásamt þremur börnum sínum, tví­burunum Degi og Hafdísi, sem eru tví­tug, og Ægi sem er níu ára.

„Með­gangan gekk ótrú­lega vel. Mér leið svo vel. Mig lang­aði bara alltaf að vera ólétt. Mér hafði líka liðið svona vel þegar ég gekk með tví­burana.

„Mér fannst vera svo erfitt að segja krökk­unum, tví­burunum, frá grein­ingu Ægis á sínum tíma. Ég var svo rosa­lega brotin og átti svo erfitt með að segja þeim þetta.

Ég var sett 23. nóv­em­ber en hann var ekki til­bú­inn. Við Sævar vorum í Kópavogi að bíða hjá for­eldrum mínum og ég hafði verið að horfa á sjón­varpið. Ég stóð upp og þá fór vatnið um hálf­tvö um nótt­ina. Ægir var fæddur um hálf­fimm. Fæðingin gekk ótrú­lega hratt og vel. Það leit allt svo ótrú­lega vel út og þetta gat ekki verið betra. Þetta var ynd­is­legt.“

Jú, stór og mynd­ar­legur strákur fædd­ist aðfara­nótt 26. nóv­em­ber árið 2011.

„Hann var bara bolti. Hann fædd­ist stór en hann hefur nú ekki verið stór síðan, þessi elska. Hann var með smá dökkt hár og hann var ofboðs­lega krafta­legur. Hann var ótrú­lega góður. Hann grét lítið og svaf svaka­lega mikið eftir fæð­ing­una og var eins og hugur manns strax. Ofsalega rólegt og gott barn.“

Stóru systk­ini hans voru stolt og glöð yfir litla bróður.

„Þau voru nátt­úr­lega ótrú­lega spennt og fannst þetta vera æðis­lega gaman og voru oft að pota í bumb­una og kyssa hana á meðan ég var ófrísk. Þau spáðu mikið í hvort þetta væri stelpa eða strákur. Hún vildi fá stelpu en hann strák. Það var ekki búið að segja þeim hvort barnið væri stelpa eða strákur þegar þau komu upp á fæð­ing­ar­deild og ég gleymi ekki svipnum á Hafdísi þegar hún fatt­aði að þetta væri strákur. Ég spurði hana hvort henni þætti vera leið­in­legt að þetta væri strákur. „Nei, ég er bara svo ógeðs­lega glöð,“ sagði hún.

Hulda hlær.

„Það var þessi inni­lega gleði.

Dagur hafði prjónað trefil handa Ægi sem hann gaf honum; hann prjón­aði svo sætan hvítan og bláan trefil handa honum en hann hafði aldrei prjónað neinn skap­aðan hlut; hann var búinn að rekja upp og alls konar. Þetta voru því­líkar æfingar hjá honum.“

Hann kom keyr­andi um dag­inn með vin sinn í fang­inu; þetta má ekki en ég gat ekki skammað hann. Þetta var svo gaman og æðis­legt; þeir voru svo glaðir. Þetta var dásam­legt.

Hún hlær.

„Það var ynd­is­legt. Hann spurði hvort ég héldi að tref­ill­inn myndi passa.“

Árin liðu og segir Hulda að tví­burarnir hafi ekki séð sól­ina fyrir Ægi.

„Hann naut þess að hafa þau en þau voru alltaf eitt­hvað að dedúa við hann. Hann var hepp­inn. Það var við­brigði fyrir þau þegar hann fædd­ist að því leyti að hafa ekki athygli mína óskipta og nú þurfti ég stundum að segja þeim að bíða svo sem þegar ég var að gefa Ægi að drekka. Stóri strák­ur­inn minn var svo mik­ill mömmusnúður og þarna breytt­ist það auð­vitað aðeins. Ég held að hann hafi fundið mest fyrir því að hafa mig ekki alveg eins mikið og áður en dóttir mín er aðeins sjálf­stæð­ari og öðru­vísi. En þau voru ynd­is­leg við Ægi og vildu allt fyrir hann gera. Hann var eins og lítil dúkka hjá þeim. Það var ekk­ert vesen með hann. Hann var svo rólegur og góður.“

Duchenne

Hulda fór að taka eftir því að hreyfi­þroski Ægis var ekki eins og henni fannst hann eiga að vera. Hún segir að hann hafi ekki skriðið eins og flest börn heldur ýtt sér áfram á rass­inum og svo segir hún að hann hafi ekk­ert verið að príla; hún tengdi það við að hann var alltaf svo góður.

„Hann byrj­aði aðeins að reyna að ganga þegar hann var eins árs en svo datt hann og þá hætti hann alveg að gera það og fór ekk­ert að ganga aftur fyrr en hann var 14-15 mán­aða. Hann gekk hins vegar aldrei mikið eftir að hann fór að ganga og hann grét þegar við fórum með hann í göngu­ferðir. Ég skildi aldrei í þessu. Ég mátti til dæmis aldrei nudda fæt­urna á honum þegar hann var pinku­lít­ill; hann varð alltaf brjál­aður ef ég kom við fæt­urna á honum. Ég hugsa stundum til baka: Guð minn góður, maður var að pína hann að ganga. Hann fór svo í leik­skóla og þurfti stundum að ganga úr íþrótta­hús­inu í leik­skól­ann sem er svo­lít­ill spotti og alltaf grét aum­ingja barnið. Ég hélt hann væri kannski bara latur. Ég var að ýta á hann að ganga og vera dug­legur en svo var kannski greyið barnið alltaf að deyja í fót­unum.“

Tíminn leið. Og Hulda sá að Ægir var á eftir jafn­öldum sínum og grun­aði að hann væri með barna­gigt. Hulda og Sævar fóru með Ægi í hreyfi­þroska­grein­ingu hjá sér­stökum sjúkra­þjálf­ara þegar hann var þriggja og hálfs og kom í ljós að hann væri tveimur og hálfu ári á eftir jafn­öldrum sínum. Huldu grun­aði að það væri eitt­hvað meira að og fóru þau svo með Ægi til Gests Páls­sonar barna­læknis.

„Hann hefur örugg­lega séð strax hvað var að og vildi svo að Ægir færi í blóðprufu. Okkur var síðan sagt að hitta barna­tauga­lækni á Land­spít­al­anum og þá fengum við fljót­lega að vita að Ægir væri með Duchenne-vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn.

Þá breytt­ist lífið.

Ég ætl­aði að vera rosa sterk. Ég hafði verið heima­vinn­andi hús­móðir og mikið með þau og ég var klett­ur­inn þeirra en allt í einu var klett­ur­inn klof­inn.

Við vorum á ferða­lagi þegar lækn­ir­inn hringdi í okkur og hann vildi hitta okkur til að segja okkur nið­ur­stöð­urnar en mað­ur­inn minn vildi fá að vita nið­ur­stöð­una strax. Við þurftum síðan að fara á næsta tjald­stæði og ég hafði á leið­inni gúglað Duchenne en ég hefði ekki átt að gera það. Það var bara hræði­legt. Ég hafði ekki hug­mynd um hvað þetta þýddi. Þetta varð sífellt verra eftir því sem ég las meira. Ég var örugg­lega í tauga­á­falli. Maður var dof­inn. Ég man ekki eftir þessu ferða­lagi. Ég man ekki einu sinni hvert við fórum. Það er mjög mikið í móðu.“

Síðan eru liðin nokkur ár.

Ægir er dug­legur strákur og kvartar sjaldan. Hann fer lengri ferðir á litlu mót­or­hjóli og er líka far­inn að fara í skól­ann og víðar í raf­magns­hjóla­stól. For­eldrar hans hafa frá því hann greind­ist barist fyrir strák­inn sinn og nú bíða þau eftir að hann geti kom­ist í klíníska til­raun erlendis.

Þau týndust svolítið

Það að eiga lang­veikt barn hefur áhrif á lík­ama og sál for­eldr­anna og sam­skipti innan fjöl­skyld­unnar. Hulda birtir reglu­lega efni á fyrr­nefndri Facebook-síðu og nýlega birti hún í raun opið bréf til eldri barna sinna. Það er svohljóð­andi:

Mér fannst ég vera að sinna tví­burunum og gera ýmis­legt með þeim en það hefur ekki verið nóg. Það er pott­þétt. Það kvikn­aði mik­ill bar­áttu­neysti í mér og ég dreif mig áfram eins og geð­sjúk­lingur og tví­burarnir týnd­ust svo­lítið þá.

Getið þið fyr­ir­gefið mér?

Til elsku barn­anna minna

Mig langar að segja fyr­ir­gefðu við ykkur því und­an­farin ár hef ég klúðrað mörgu sem við­kemur ykkur. Ég verð bara að við­ur­kenna það og horfast í augu við það eins erfitt og sárt og það er. Ég sé hvernig ykkur líður, ég finn hvernig sam­skiptin okkar hafa breyst og þið hafið fjar­lægst mig, ég sé sárs­auk­ann ykkar þó þið viljið ekki alltaf við­ur­kenna hann. Ég finn hann í hjart­anu mínu. Mér finnst eins og það sé gjá á milli okkar sem ég hef búið til sjálf og mig langar svo mikið að brúa hana aftur og tengj­ast ykkur betur. Það er aldrei of seint að biðj­ast afsök­unar og reyna að bæta sig í líf­inu. Til þess að eiga mögu­leika á því að bæta sam­skiptin okkar verð ég að opna hjartað mitt enn frekar og vera heið­ar­leg og biðj­ast fyr­ir­gefn­ingar. Játa að ég hef verið eig­in­gjörn og hugsað meira um Ægi en ykkur og hvað ég þarf að gera fyrir hann. Það er svo erfitt að vera mamma, það er enn erf­ið­ara að vera mamma þegar barnið manns veik­ist af lífs­hættu­legum sjúk­dómi. Það fór öll athyglin á bróður ykkar og þið voruð á hlið­ar­lín­unni bara 16 ára ung­lingar að reyna að finna ykkar stað í líf­inu og skilduð ekk­ert hvað var að ger­ast. Þetta hlýtur að hafa verið ykkur afar erfitt að sjá mig svona nið­ur­brotna og í þús­und molum, ég sem hafði alltaf verið til staðar fyrir ykkur.

Ég hef því miður ekki getað verið til staðar fyrir ykkur síð­ustu ár og mér þykir það svo óend­an­lega leitt. Ég hef ekki sinnt ykkur nógu vel því ég hef verið svo upp­tekin við að sinna Ægi og reyna að finna hjálp fyrir hann. Nánast allur minn tími og orka hefur farið í Ægi. Ég gerði það ekki með­vitað, það gerð­ist bara. Fyr­ir­gefið þið, ég veit þið þurftuð líka á mér að halda en ég gat ekki gefið ykkur það sem þið þurftuð.

Þetta var mjög erfitt tíma­bil. Þau hrein­lega misstu mig svo­lítið þá. Ég var svo­lítið týnd, sorgin var svo mikil og ég grét mikið.

Fyr­ir­gefið þið hvað ég hef verið stjórn­söm og oft erfið í sam­skiptum, ég var bara að reyna að ná ein­hverri stjórn í líf­inu mínu sem varð allt í einu stjórn­laust. Þegar Ægir greind­ist missti ég alger­lega fót­anna og mér fannst ég hafa enga stjórn. Þegar ég missti svona gjör­sam­lega stjórn­ina fannst mér ég verða að ná ein­hverri stjórn á því sem ég gæti þá mögu­lega stjórnað og því beind­ist þessi stjórn­semi gegn ykkur og mér þykir það óend­an­lega leitt.

Ég sit hér með tárin í aug­unum og finnst ég vera ömur­leg­asta mamma í heimi því ég hef brugð­ist ykkur. Það eina sem ég get gert er að segja fyrig­efðu og lofa að ég muni reyna að bæta mig. Ég ætla að láta af stjórn­sem­inni og vera til staðar fyrir ykkur þegar þið þurfið. Nú eruð þið orðin full­orðin og þurfið ekki eins mikið á mér að halda. Þið eruð að aðgreina ykkur meira og verða sjálf­stæð­ari en þannig er bara gangur lífs­ins. Ég vil samt að þið vitið að í huga mér verðið þið alltaf litlu ynd­is­legu börnin mín og skiptið mig jafn miklu máli og Ægir. Ég elska ykkur af öllu hjarta og ég biðst afsök­unar ef ég hef látið ykkur finn­ast þið vera minna elskuð og afskipt. Ég er stolt af ykkur og vona að þið getið verið stolt af mér líka. Þið vitið von­andi innst inni að ég myndi gera allt fyrir ykkur og að allt sem ég hef gert fyrir ykkur er vegna þess hvað ég elska ykkur mikið. Ég er alltaf að reyna að gera mitt besta og ég vona að þið sjáið það. Við gerum öll mis­tök en aðal­málið er að læra af þeim og ég er á þeirri veg­ferð að reyna að læra af mínum mis­tökum. Ég mun örugg­lega hrasa aftur en ég get lofað ykkur því að ég mun alltaf standa upp og reyna mitt besta fyrir ykkur.

Elska ykkur að eilífu

Ykkar dramat­íska og stjórn­sama móðir

Þessi pist­ill snerti við blaða­manni sem hafði í kjöl­farið sam­and við Huldu sem var til í við­tal.

Ég trúi því að það sé eitt­hvað gott kær­leiks­afl þarna úti sem er að fylgj­ast með okkur og ég trúi því sann­ar­lega að það sé í kringum Ægi. Það er svo margt gott í kringum hann og margir að passa hann.

„Mér fannst vera svo erfitt að segja krökk­unum, tví­burunum, frá grein­ingu Ægis á sínum tíma. Ég var svo rosa­lega brotin og átti svo erfitt með að segja þeim þetta. Og við hjónin vorum svo tætt. Ég gat ekki annað en grátið þegar ég sagði þeim frá þessu. Ég ætl­aði að vera rosa sterk. Ég hafði verið heima­vinn­andi hús­móðir og mikið með þau og ég var klett­ur­inn þeirra en allt í einu var klett­ur­inn klof­inn. Þau voru 14 ára og á kyn­þroska­aldri og ég held að það sé erf­iður aldur til að fara í gegnum svona þó það sé erfitt á hvaða aldri sem er. Ég var sjálf ein­hvern veg­inn að reyna að halda mér á floti; ég fer næstum því að gráta núna þegar ég tala um þetta. Þetta var mjög erfitt tíma­bil. Þau hrein­lega misstu mig svo­lítið þá. Ég var svo­lítið týnd, sorgin var svo mikil og ég grét mikið.

Við fengum sem betur fer fljót­lega von um að Ægir ætti mögu­leika á með­ferð og gæti fengið lyf sem fram­leitt er í Banda­ríkj­unum og þá kvikn­aði á ein­hverjum rofa hjá mér. Ég ætl­aði ekki að hætta að berj­ast fyrir Ægi fyrr en hann fengi lyfin. Ég fór í það á fullu. Mér fannst ég vera að sinna tví­burunum og gera ýmis­legt með þeim en það hefur ekki verið nóg. Það er pott­þétt. Það kvikn­aði mik­ill bar­áttu­neysti í mér og ég dreif mig áfram eins og geð­sjúk­lingur og tví­burarnir týnd­ust svo­lítið þá. Þetta var svo­lítið erfitt fyrir mann­inn minn sem er sjó­maður og hann gat tak­markað gert eitt­hvað með þeim.

Mér fannst sér­stak­lega sam­band mitt við eldri son minn breyt­ast svo­lítið af því að hann hafði alltaf verið svo­lítið meira mömmusnúður heldur en stelpan mín. Ég held að hann hafi fundið svo­lítið mikið fyrir þessu. Þegar ég hugsa til baka þá fórum við aðeins að fjar­lægj­ast. Þau vita auð­vitað að ég elska þau og maður reynir alltaf að gera sitt besta en það er örugg­lega viss höfnun sem þau ganga í gegnum. Ég held að það sé erfitt að vera systk­ini lang­veiks barns. Þau vantar mömmu sína eða pabba. Þau voru að lifa sínu lífi og voru með sínar áhyggjur og það var margt að ger­ast á ung­lings­ár­unum.

Það heggur hins vegar svo­lítið nærri mér að ég hef að und­an­förnu séð breyt­ingu á Ægi til hins verra og svo að vita að ungir strákar með Duchenne hafa dáið

Það var mælt með því að við fengjum fjöl­skyldu­ráð­gjafa en krakk­arnir voru ekki til­búnir í það. Þau hafa kannski orðið svona hrædd. Ég veit það ekki. Ég velti þessu svo­lítið fyrir mér. Þau lok­uðu á þetta og hafa ekki mikið viljað tala um þetta og ég held að það sé kannski eðli­legt. Ég hef stundum sagt við þau að við pabbi þeirra séum til staðar ef þau vilja ræða um þetta en þau verða að vera til­búin til að gera það. Það er bara þannig. Það er ekk­ert rétt varð­andi það hvernig fólk gengur í gegnum svona ferli. Sumir loka kannski á af því að þeir geta ekki höndlað ástandið. En ég finn að þetta hefur haft mikil áhrif á krakk­ana og sér­stak­lega kannski sam­band þeirra við mig. Eins og ég segi – þau týnd­ust svo­lítið.

Ég hef senni­lega alltaf verið frekar stjórn­söm; ég ætla ekk­ert að skafa utan af því. Ég hef alltaf þurft að halda utan um hlut­ina en það fór í „over­drive“ eftir að Ægir greind­ist af því að líf mitt varð stjórn­laust. Og þá fór ég að reyna að stjórna tví­burunum meira og skipta mér af þeim en ekki á réttan hátt. Það er það síð­asta sem þarf að gera við ung­linga – það á frekar að vera til staðar og hlusta og ég fann kergju í sam­skipt­unum. Það er auð­vitað ógeðs­lega pirr­andi að mamma manns sé alltaf að stjórna manni og skipta sér af manni.“

Ægir hefur spurt mig um dauð­ann og hvort það sé hættu­legt að vera með Duchenne og hvort það sé hægt að deyja úr Duchenne. Ég reyndi að skýra þetta út fyrir honum á almennan hátt og sagði að allir geti dáið hvenær sem er. Hann veit að hann er með Duchenne og að vöðvarnir hans eru ekki sterkir en hann gerir sér ekki grein fyrir meiru.

Hulda seg­ist hafa verið í mik­illi sjálfs­vinnu varð­andi sam­skipti sín við tví­burana og spá í alls konar hluti af því að þetta sé svo mik­ill og stór pakki.

„Þetta er ekki bara Ægir heldur er þetta helj­ar­innar margt sem öll fjöl­skyldan þarf að fara í gegnum. Ég hef spáð í hvernig ég hafi brugð­ist tví­burunum í þessu öllu saman og hvernig ég geti breytt því og brugð­ist öðru­vísi við þannig að ég brúi þessa gjá sem hefur mynd­ast. Þeim finnst ég vilja stjórna og skipta mér af þeim þótt ég sé margoft búin að segja þeim að ég elski þau bara svo mikið að ég vilji allt gera fyrir þau. En þau heyra það ekki heldur sjá bara að það er verið að skipta sér af þeim. Ég þarf að sýna þeim að ég geti sleppt aðeins af þeim tök­unum og hlusta á þau; ég hef kannski ekki hlustað nógu mikið á þau af því að ég var svo drifin af þessu með Ægi og sá kannski ekk­ert annað. Ég kannski hlust­aði á þau en heyrði ekki í þeim. Og þau eru kannski brennd vegna þess að ég hef ekki verið til staðar að því leyti. Þannig að þetta er marg­slungið.“

Hún segir að sár­indi séu örugg­lega til staðar.

„Ung­lingar eru nátt­úr­lega bara drama.“

Hún hlær.

„Og ég er kannski dramat­ísk að eðl­is­fari. Þeim fannst ég bregð­ast of mikið við og þá varð ég ógeðs­lega sár og benti á að ég væri mamma Ægis og spurði hvort þau gætu ekki skilið hvað þetta væri alvar­legt fyrir mig. Mér fannst þau ekki skilja það. Það er ekki hægt að skilja hlut­ina nema að ganga í gegnum þá sjálfur. Börnin mín munu skilja þetta þegar þau eign­ast sjálf börn. Þegar ég eign­að­ist tví­burana þá einmitt gerði ég mér grein fyrir hvað mamma og pabbi höfðu gert fyrir mig og fann fyrir svo miklu þakk­læti en ung­lingar spá ekki í slíka hluti. Þráð­ur­inn í manni er styttri þegar maður er í þessu ferli og í þessu áfalli og þegar til­finn­ing­arnar eru svona sterkar. Ég svaf stundum lítið og það var svo margt sem hafði áhrif á það hvernig ég brást við og ég hafði litla þol­in­mæði fyrir því þegar eitt­hvað var sagt við mig eða þegar ein­hver skildi mig ekki og þá hef ég kannski sagt eitt­hvað við tví­burana sem þeir brugð­ust illa við. Við höfum kannski ekki náð að skilja hvert annað nógu vel. Ætil það sé ekki málið. Kannski geri ég of miklar vænt­ingar til þeirra um að þau skilji þetta; þetta er tví­eggjað sverð.“

Hulda vill bæta sam­skiptin við eldri börnin.

„Mig langar til að hlusta betur og vinna betur í mínum við­brögðum – hvernig ég bregst við þeim þegar þau tala við mig og gefa þeim líka meiri tíma þegar þau vilja. Ég vil vera til staðar fyrir þau og hlusta á þau. Mig langar til að bæta þessi sam­skipti svo mikið. Ég veit að við getum það alveg og við höfum átt góð sam­skipti en þetta er samt ekki alveg eins og maður vill hafa þetta. Ég finn oft að ég hef fjar­lægst tví­burana og það er sárt.“

Hún seg­ist hafa nýlega upp­lifað skip­brot í tengslum við sam­band sitt við tví­burana og þess vegna ákveðið að skrifa pistil­inn.

Ég reyni ekk­ert að vera að hugsa almennt um fram­tíð­ar­horf­urnar en þetta er eitt­hvað sem maður veit. Það er bara ein leið í þessum sjúk­dómi. Ferlið í sjúk­dómnum er þannig að fólk nær lík­am­legri getu upp á visst stig, síðan er stöðnun og síðan er það niður á við. Það er bara spurn­ing hvenær það ger­ist.

„Mér fannst ég vera ömur­leg mamma og mér fannst ég hafa brugð­ist þeim og að ég væri algjör­lega búin að klúðra þessu. Ég sá allt sem fór úrskeiðis; maður fer oft í þetta nei­kvæða í stað þess að sjá þetta góða. Það var svo sárt þegar mér fannst ég hafa brugð­ist þeim. Það var rosa­lega erfið til­finn­ing af því að ég get ekki tekið þetta til baka. Ég hugs­aði með mér hvort ég væri búin að missa þau frá mér „for­ever“; ég fór alveg þangað. Þessar til­finn­ingar hellt­ust yfir mig. Mig lang­aði svo til að spóla til baka. Ég get ekki lagað ein­hver mis­tök sem ég hef gert en ég get reynt að bæta mig og vera betri mamma fyrir þau í dag. Og það ætlar ég sann­ar­lega að gera.“

Stundum örþreytt

Áfallið var mikið þegar Ægir fékk grein­ing­una en Hulda seg­ist þó halda að áfallið sé þó að koma svo­lítið fram núna.

„Kannski er það bara það sem er að ger­ast. Mér hefur oft fund­ist þetta vera súr­r­eal­ískt; að þetta væri ekki ég þegar ég væri að tala um þetta og í við­tölum þá finnst mér stundum eins og ég sé að horfa niður á ein­hverja aðra mann­eskju sem er að tala um þetta. Að þetta séum ekki við.

Við höfum ennþá sterka von um að Ægir fái hjálp og það gaf mér svo rosa­legan kraft og mér fannst ég vera ósigr­andi. Áfram gakk. Það er sann­fær­ing innra með mér um að það verði í lagi með Ægi. Ég veit að það verður í lagi með Ægi. Kannski myndi ein­hver segja að þetta væri leið lík­am­ans til að verja mann gegn áfall­inu. Það má alveg segja það. En þetta hjálpar mér rosa­lega mikið. Það heggur hins vegar svo­lítið nærri mér að ég hef að und­an­förnu séð breyt­ingu á Ægi til hins verra og svo að vita að ungir strákar með Duchenne hafa dáið.“

Hulda hefur hitt sál­fræð­ing og sjúkra­hús­prest síðan Ægir fékk grein­ing­una og segir að það hjálpi sér mikið.

„Það fylgir því sorg að eiga lang­veikt barn og maður er alltaf að fara upp og niður. Það eru litlar áminn­ingar á hverjum degi sem minna mann á það sem barnið er til dæmis að missa af. Ægir situr til að mynda stundum við glugg­ann og fylgist með krökkum sem eru að leika sér úti og hann getur ekki alltaf tekið þátt.

Nú pípir hann hérna fyrir utan,“ segir Hulda en Ægir er búinn í skól­anum. „Ég verð að sýna þér hann.“

Hún fer fram með sím­ann og á skjánum birt­ist glókoll­ur­inn hennar í raf­magns­hjóal­stól.

„Hérna er hann mættur. Hæ, Ægir. Það er blaða­kona sem er að tala við mig og spyrja um þig. Viltu koma inn? Settu trax­inn (raf­magns­hjóla­stól­inn) hjá bíl­skúrnum og komdu.“

Ægir leggur raf­magns­hjóla­stólnum. Og mamma hans fer aftur inn.

„Hann fékk trax­inn síð­asta vor; hann er á þessu og svo eigum við líka raf­magns­mót­or­hjól. Þetta gefur honum svo mikið frelsi. Mér fannst vera erfitt þegar hann fór að ferð­ast um á trax­inum en það þýddi áfanga í sjúk­dómnum. Oh my god; er komið að þessu? Honum fannst þetta hins vegar vera svo flott að það er ekki annað hægt en að gleðj­ast með honum. Þetta er eins og bíll fyrir hann. Hann kom keyr­andi um dag­inn með vin sinn í fang­inu; þetta má ekki en ég gat ekki skammað hann. Þetta var svo gaman og æðis­legt; þeir voru svo glaðir. Þetta var dásam­legt.“

Ég vil líka nefna þraut­seigju og gleði; Ægir sér ekki vanda­mál í neinu þó hann sé með þennan sjúk­dóm. Hann kennir mér að vera glöð á hverjum degi og að elska skil­yrð­is­laust. Og að gefa hjarta sitt. Og að lífið er bara núna. Þessi klisja er svo sönn.

Það heyr­ist að Ægir er kom­inn inn.

„Komdu bara inn, ástin mín, og þvoðu þér.“

Örlítið heyr­ist í glókoll­inum frammi.

„Þegar hann er að prakk­ar­ast þá horfir maður meira í hina átt­ina; það er svo gott að sjá „rebel“ í honum – að hann ætli að gera eitt­hvað og geti það. Það er pínu erfitt að skamma hann fyrir það.“

Hulda talar um hve ljúfur og góður Ægir sé en að það fari í skapið á honum þegar hann taki stera en hann tekur stóran skammt um helgar; 19 töflur.

„Helg­arnar eru oft erf­iðastar. Þá sefur hann minna og verður svo reiður ef eitt­hvað ger­ist; ef hann rekur sig í þá lemur hann í hlut­inn. Hann seg­ist sjálfur ekki geta stjórnað skap­inu.“

Mig langar til að bæta þessi sam­skipti svo mikið. Ég veit að við getum það alveg og við höfum átt góð sam­skipti en þetta er samt ekki alveg eins og maður vill hafa þetta. Ég finn oft að ég hef fjar­lægst tví­burana og það er sárt.

Ster­arnir hafa þessi áhrif.

„Margir Duchenne-strákar, en sjúk­dóm­ur­inn leggst nær ein­göngu á drengi, eru á ein­hverfu­róf­inu og sumir eru mjög ein­hverfir; þeir tala jafn­vel ekki og eru með mik­inn skynúr­vinnslu­vanda. Ægir er svo hepp­inn að hann dansar á gráu svæði en það er alveg nóg og hamlar honum stundum og hefur áhrif á dag­legt líf hans og sam­skipti hans við aðra. Ég þarf mikið að vera til staðar og hjálpa honum með það. Ég til dæmis þjálfa hann í hvernig eigi að bregð­ast við. Aðrir krakkar læra af reynsl­unni og hætta að gera það sem þeir eiga ekki að gera en það hefur ekki verið þannig hjá honum. Það ger­ist kannski aftur og aftur en ég sé að sumt síast inn. Hann er hepp­inn og ekki hepp­inn. Það er gott að vera á gráu svæði en stundum er það pínu erfitt.

„Ægir,“ kallar Hulda, „ertu að þvo þér? Þú mátt fara inn í gesta­her­bergi og horfa á sjón­varpið í smá­stund á meðan ég klára að tala við hana. Nei? Hvað ætlar þú að gera? Ætlar þú að byrja að lesa?“

Það eru svo margir sem vilja Ægi vel. Maður verður svo auð­mjúkur á þessu öllu. Það er ótrú­legt.

Hulda hlær.

„Það þarf að vera rútína hjá honum. Það er alltaf byrjað að lesa þegar hann kemur heim. Ef hann ákveður eitt­hvað þá gerir hann það. Hann er rosa harður við sig. Hann er með mik­inn sjálf­saga. Þetta er ekki endi­lega það sem maður sér krakka gera. Hann er skemmti­legur karakter.“

Ægir birt­ist á skjánum.

„Hæ,“ segir hann.

Hann er spurður hvaða bók hann sé að lesa. Hann fer fram og nær í bók um Kidda klaufa.

„Hann var að lesa Vél­menna­árás­ina eftir Ævar Þór Bene­dikts­son. Ævar sendi honum allar bæk­urnar sínar árit­aðar. Hann er ynd­is­legur. Það eru svo margir sem vilja Ægi vel. Maður verður svo auð­mjúkur á þessu öllu. Það er ótrú­legt.“

„Ég ætla að þvo mér,“ segir Ægir og fer fram.

„Hann þvær sér svo vel,“ segir Hulda. „Hann er orð­inn svo þurr á hönd­unum. Hann segir við alla sem koma hingað inn „ertu búinn að þvo þér?“. Það er alveg passað upp á það.“

Hulda talar svo áfram um and­lega líðan sína. Óttann.

„Ég finn svaka­legan mun á mér miðað við áður en hann fékk grein­ing­una. Ég get nefnt ein­beit­ing­una sem dæmi. Ég er örugg­lega með snert af athygl­is­bresti þó ég hafi ekki verið greind en það hefur alveg snar­versnað. Ég á rosa­lega erfitt með að ein­beita mér og ég bara gleymi hlutum sem eru ekki lífs­nauð­syn­legir. Stundum er ég hlaup­andi um eins og haus­laus hæna. Svo er það stressið en stundum er eins og það sé allt titr­andi inni í mér. Þetta er rosa­lega vond og óþægi­leg til­finn­ing og stundum hefur þetta mikil áhrif á svefn­inn. Svo verð ég svo við­kvæm. Mér finnst ég stundum fá rosa mik­inn kraft en svo koma dagar þegar ég er örþreytt. Maður er þá svo þreyttur að það er ekki hægt að lýsa því. Þetta byrj­aði fyrir rúm­lega hálfu ári. Þetta er ekki þreyta sem ég þekkti áður.

Fólk setur sig svo mikið í síð­asta sæti en ég er með­vituð um að reyna að passa mig á því að fara ekki í þetta skip­brot og klessa á þennan svaka­lega vegg sem fólk er að segja mér frá.

Lífið heldur áfram hjá ölllum en ég er ennþá föst á þessum stað og með allar þessar til­finn­ingar og ég þarf stundum að fá að tala um það. Maður vill ekki vera þessi „leið­in­legi“ sem er alltaf að tala um veika barnið og að vona að allir séu að vor­kenna manni. En það er stundum rosa­lega gott að finna að maður geti stundum í góðra vina hópi talað um þetta. Það hjálpar mér mikið en maður þarf stundum að finna að ein­hver taki utan um mann eða skilji mann. Stundum þarf ég mikið svo­leiðis. Og ég hef verið dug­leg að biðja vini mína um það. Fólk getur ekki vitað hvernig mér líður þannig að ég hringi í fjöl­skyldu mína og bið þau um að vera dug­leg að hringja í mig. Þau hafa gert það og stutt mig ótrú­lega mikið. Maður setur sig svo mikið í síð­asta sæti en ég er með­vituð um að reyna að passa mig á því að fara ekki í þetta skip­brot og klessa á þennan svaka­lega vegg sem fólk er að segja mér frá. Ég hug­leiði á hverjum degi og ég reyni að hreyfa mig en matar­æðið hefur farið í klessu af því að ég nota mat sem huggun. Ég borða þegar mér líður illa og hugsa ekki nógu vel um mig lík­am­lega. En ég er virki­lega að reyna að sinna and­legu hlið­inni. Ég syng mikið og er komin í kvenna­kór­inn á Horna­firði sem gefur mér mikið; ég get þá farið á æfingar og gert eitt­hvað allt annað og hugsað um eitt­hvað allt annað. Þetta hefur mikil áhrif á mig. Það er samt ein­hver kraftur inni í mér sem ég get ekki útskýrt sem nær að rífa mig ótrú­lega mikið upp en maður þarf á sama tíma að passa sig af því að þetta getur ekki gengið enda­laust. Ég þarf tíma fyrir mig og hvíla mig aðeins. Kúnstin er að vera góður við sjálfan sig.“

Hún tal­aði um þreytu sem hún hafði ekki kynnst áður.

„Ég hef farið í tékk og blóðprufur. Hjart­slátt­ur­inn hefur hækkað um 10 slög í hvíld og ég er alltaf í um 80 núna. Þetta er klár­lega streita. Ég hef ekki farið í hjarta­skoðun; ég þyrfti að gera það. Mig langar til að vera um tíma á heilsu­stofn­un­inni í Hvera­gerði.

Streitan hefur áhrif á svo mikið. Ég er til dæmis 100 sinnum verri af exemi en ég var. Allt sem maður er með verður ýkt­ara. Maður reynir að róa sig en það er erfitt að ráða við svona streitu. Ég er búin að vera í þessum hvirf­il­vindi síðan 2016 og það tekur sinn toll. Maður hefur visst mik­inn kraft. Ég hef mik­inn kraft en ég þarf að passa mig; ég get ekki keyrt mig út enda­laust. En það er svo­lítið erfitt að passa upp á sjálfan sig; það er svo auð­velt að setja sig í síð­asta sæti.“

Við höfum ennþá sterka von um að Ægir fái hjálp og það gaf mér svo rosa­legan kraft og mér fannst ég vera ósigr­andi. Áfram gakk. Það er sann­fær­ing innra með mér um að það verði í lagi með Ægi.

Sitji guðs englar

Síðustu ár hafa verið eins og skóli og lær­dóm­ur­inn eftir því.

„Ég hef lært að það þarf að gefa sér tíma þegar maður lendir í svona. Það er auð­velt að sog­ast inn í þessa hring­iðu og gleyma sér og hjóna­band­inu. Ég held að við mömmur lang­veikra barna förum svo rosa­lega „all in“; það er til dæmis algengt að for­eldrar lang­veikra barna skilji. Við mömm­urnar förum svo í stríðs­mömmugír­inn og gerum allt fyrir barnið og systk­ini lenda á hlið­ar­lín­unni sem og eig­in­mað­ur­inn kannski líka. Feðurnir fara stundum á hnef­anum í gegnum svona. Maður þarf að passa að vera góður við sjálfan sig og alla aðra og sýna sam­kennd af því að það getur verið ein­hver þarna úti sem er að ganga í gegnum eitt­hvert hel­víti sem maður veit ekk­ert um. Og það þarf að spyrja fólk hvernig það hafi það. Allir þessir litlu hlutir skipta máli. Ég vil líka nefna þraut­seigju og gleði; Ægir sér ekki vanda­mál í neinu þó hann sé með þennan sjúk­dóm. Hann kennir mér að vera glöð á hverjum degi og að elska skil­yrð­is­laust. Og að gefa hjarta sitt. Og að lífið er bara núna. Þessi klisja er svo sönn.“

Duchenne er ban­vænn sjúk­dómur og segir Hulda að þegar drengir með sjúk­dóm­inn, en nær ein­göngu strákar / karlar eru með sjúk­dóm­inn eins og þegar hefur komið fram, séu orðnir 9-12 ára þá séu farnar að koma í ljós breyt­ingar til hins verra í fram­gangi hans. Hún segir að oft séu þeir komnir í hjóla­stól í kringum 12 ára. Hún seg­ist vita um að menn hafi lifað til um fer­tugs en að við­kom­andi séu þá oft­ast komnir í önd­un­ar­vél og rúm­fastir.

Ég hef farið í tékk og blóðprufur. Hjart­slátt­ur­inn hefur hækkað um 10 slög í hvíld og ég er alltaf í um 80 núna. Þetta er klár­lega streita. Ég hef ekki farið í hjarta­skoðun; ég þyrfti að gera það. Mig langar til að vera um tíma á heilsu­stofn­un­inni í Hvera­gerði.

„Ég reyni ekk­ert að vera að hugsa almennt um fram­tíð­ar­horf­urnar en þetta er eitt­hvað sem maður veit. Það er bara ein leið í þessum sjúk­dómi. Ferlið í sjúk­dómnum er þannig að fólk nær lík­am­legri getu upp á visst stig, síðan er stöðnun og síðan er það niður á við. Það er bara spurn­ing hvenær það ger­ist. Það virð­ist vera svo­lítið ein­stak­lings­bundið en það eru miklar vonir og fram­farir í lækna­vís­ind­unum og ef Ægir kemst í þessa klínísku til­raun þá er ég sann­færð um að við séum að horfa á allt annað dæmi fyrir hann.“

Hulda er spurð hvað dauð­inn sé í huga hennar.

„Ég hugsa að við förum eitt­hvert annað þegar við deyjum. Ægir hefur spurt mig um dauð­ann og hvort það sé hættu­legt að vera með Duchenne og hvort það sé hægt að deyja úr Duchenne. Ég reyndi að skýra þetta út fyrir honum á almennan hátt og sagði að allir geti dáið hvenær sem er. Hann veit að hann er með Duchenne og að vöðvarnir hans eru ekki sterkir en hann gerir sér ekki grein fyrir meiru. Ég er ekki til­búin til að segja honum meira að svo stöddu. Maður þarf auð­vitað að útskýra þessa hluti fyrir honum þegar hann hefur meiri þroska til að skilja. Þegar við ræðum almennt um dauð­ann þá segi ég við hann að við munum hitt­ast aftur. Ég trúi því að við förum eitt­hvert annað. Verðum á ein­hverju sviði. Ég trúi því að það sé eitt­hvað gott kær­leiks­afl þarna úti sem er að fylgj­ast með okkur og ég trúi því sann­ar­lega að það sé í kringum Ægi. Það er svo margt gott í kringum hann og margir að passa hann.“

Huldu er bent á að kannski komi það góða upp í fólki sem þekkir jafn­vel ekki Ægi þegar það les um hann og horfir á mynd­böndin.

Þegar við ræðum almennt um dauð­ann þá segi ég við hann að við munum hitt­ast aftur. Ég trúi því að við förum eitt­hvert annað. Verðum á ein­hverju sviði.

„Einmitt. Ég veit að það eru margir þarna úti sem biðja fyrir honum sem er ynd­is­legt.“

Ægir kemur aftur inn í fal­legri peysu; Hulda segir að það sé galdra­peysa. Hann er með sól­gler­augu skreytt banda­ríska fán­anum.

Hulda tal­aði um bænir. Blaða­maður spyr hver sé upp­á­halds­bæn hans.

„Hvað meinar þú?“ spyr hann.

„Eins og við segjum „Láttu guðs ljósið þitt loga við rúmið mitt“ og „Legg ég nú bæði líf og önd“ og þetta allt saman,“ segir Hulda. „Er ein­hver bæn sem þér finnst best?“

„Ein bæn?“ segir Ægir.

„Sem þér finnst gott að segja. Eitthvað sem þú manst eftir?“ spyr Hulda.

„Amen,“ segir Ægir.

„Það er ekki bæn,“ segir Hulda. „Það er bara síð­asta orðið í bæn­inni. Ertu að meina Fað­ir­vorið?“

„Nei, ég veit ekki,“ segir Ægir.

Hann fer aftur fram. Í galdra­peysu og með sól­gler­augu. Lítill glókollur sem svo margir fylgj­ast með. Og sem margir biðja fyrir.

Hulda er beðin um að velja bæn sem myndi vera í lok við­tals­ins.

Hún velur bæn eftir sálma­skáldið.

Legg eg nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesú, í þína hönd.
Síðast þegar eg sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ