Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðrún svalt eftir alvarlegt bílslys: „Reyndi sjálfsmorð nokkrum sinnum“

Guðrún svalt eftir alvarlegt bílslys: „Reyndi sjálfsmorð nokkrum sinnum“

„Þegar við lentum í bílslys­inu misstum við bæði bíl­inn og heils­una,“ segir Guðrún Dóra Ingv­ars­dóttir, 41 árs gam­all öryrki. Hún er gift en barn­laus. Guðrún Dóra er búin að vera öryrki frá því hún var tví­tug eftir að hafa lent í nokkrum slysum auk þess þess að glíma við and­leg veik­indi, kvíða og þung­lyndi.

Hún segir að allt hafi verið gríð­ar­lega erfitt í kringum þennan tíma. Þau hjónin voru með þung lán og yfir­drátt­ar­heim­ildir.

„Staðan var rosa­lega erfið. Við vorum líka komin í net­gíró sem lék okkur afar grátt. Við fengum bætur eftir slysið sem við gátum nýtt í að borga niður eitt­hvað af skuld­unum en langt því frá allt,“ segir hún.

Slysið varð mán­uði eftir að þau gengu í hjóna­band. Miklir erf­ið­leikar dundu á nýgiftu hjón­unum.

Lítið að hafa eftir tuttugasta

„Ég hef upp­lifað að borða bara súpu, núðlur og brauð og vil aldrei standa aftur á þeim stað í líf­inu. Ég er í pínu­lít­illi vinnu núna til að rífa upp strípaðar örorku­bæt­urnar en það má ekki vera mikið til að þær fari ekki að skerð­ast. Það er bót í máli að mað­ur­inn minn er í vinnu, það bjargar okkur. Ég gæti þetta aldrei ein“.

Ég gat ekki einu sinni farið í sund til að hressa mig við því ég átti ekki fyrir mið­anum ofan í laug­ina.

Guðrún Dóra fær 290 þús­und krónur á mán­uði sem hún segir ill­mögu­leg að lifa af.

„Það er mikið talað um ein­stæða for­eldra og fjöl­skyldur en barn­laus hjón vilja gleym­ast jafn­vel þótt að fjár­hags­staða þeirra geti einnig verið mjög erfið”.

Hún segir þau hjón hafa gengið í gengum skelfi­lega tíma árin 2016 og 2017.

„Eftir bílslysið misstum við bæði vinn­una og vorum alls­laus. Ég veit hrein­lega ekki á hverju við lifðum, þetta voru brauð, súpa og núðlur eftir að við höfðum for­gangs­raðað hvaða reikn­inga við ættum að borga. En eftir 20. hvers mán­aðar var lítið sem ekk­ert að hafa”.

Enginn skömm að fá hjálp

Guðrún Dóra kyngdi stolt­inu og leit­aði til hjálp­ar­sam­taka.

„Mér var léttir að leita hjálpar og finnst eng­inn skömm að því. Aftur á móti skerð­ist ýmis­legt þegar maður er giftur, ég fæ til dæmis ekk­ert frá Mæðra­styrks­nefnd þar sem þau álíta að mað­ur­inn minn sé of launa­hár. Við föllum á milli skips og bryggju”.

Hún segir þau hjón hafa soltið á þessum árum. „Maðurinn minn greind­ist með syk­ur­sýki. Lyfin hafa líka verið okkur dýr en Áslaug í Mat­ar­hjálp aðstoð­aði okkur einu sinni við að fá hjálp við að greiða fyrir syk­ur­sýkispenna sem hann þarf á að halda, þeir kost­uðu 30 þús­und krónur sem við áttum ekki til”.

Við höfum líka reynt að njóta lífs­ins án þess að eyða miklu til. Okkur finnst gaman að ferð­ast til útlanda.

Reyndi að taka líf sitt

Þegar aðstæður hjóna voru sem verstar leið Guðrúnu Dóru afar illa.

„Von­leysið var svo mikið, ég vissi hrein­lega ekk­ert hvað ég ætti að gera. Ég gat ekki einu sinni farið í sund til að hressa mig við því ég átti ekki fyrir mið­anum ofan í laug­ina. Ég var and­vaka nótt eftir nótt og reyndi nokkrum sinnum að fremja sjálfs­morð. Í dag er ég hjá geð­lækni og það hefur hjálpað mér heil­mikið og í fyrra byrj­aði ég að fara í bata­mið­stöð­ina á dag­deild Klepps”.

Hún mætir einnig stundum í klúbb­inn Geysi þar sem þeir sem stríða við and­lega og lík­am­lega örorku geta fengið stuðn­ing. „Það er gott að geta talað við fólk þar“.

Guðrún Dóra seg­ist finna vel fyrir ölluð þeim verð­hækk­unum sem verið hafa. „Ég kaupi helst unnar mat­vörur, fersk­metið er dýrt. Við leyfum okkur þó eitt og það er að fara í Mat­stöð­ina á Höfða­bakka öðru hvoru og fá þessa líka fínu þriggja rétta mál­tíð sem á 1.990 krónur fyrir öryrkja. Það er alltaf gott að fara þangað og okkur hlakkar alltaf til“.

Hreint út sagt lamandi

Guðrún Dóra og maður hennar fluttu búferlum árið 2018. Þá var þung­lyndið orðið svo lam­andi að það liðu þrjú ár áður en hún fékk sig til að taka upp úr köss­unum með hjálp vin­konu.

„Kerfið er allt í rugli og neyðin víða mikil. Það þarf svo lítið til að fylla mann kvíða, til dæmis ekki annað en að þvotta­vélin bili því maður á ekki fyrir við­gerð­inni. Þetta kerfi er allt í rugl­inu og allt of margir sem sjá ekki fram á að gefa fætt sig og fjöl­skyldu sína. Þetta er hreint út sagt lam­andi, maður ein­angrar sig, hættir að vilja fara út á meðal fólks auk þess sem ég grennt­ist um 54 kíló á þessum tíma. Þau eru nú reyndar öll að koma aftur og meira til“.

Ég var and­vaka nótt eftir nótt og reyndi nokkrum sinnum að fremja sjálfs­morð.

Eftir að hafa fengið vinnu hefur staðan breyst hjá þeim hjónum. Með elju og þraut­semi sjá þau fram á að geta hægt og rólega borg­aði niður skulda­súp­una.

„Skuld­irnar eru að smá­grynnka og nú er draum­ur­inn að geta losnað við yfir­drátt­inn sem hangir alltaf yfir okkur. Það bjargar okkur að vera í eigin hús­næði. Við höfum líka reynt að njóta lífs­ins án þess að eyða miklu til, við eigum vini víðs vegar um landið sem við heim­sækjum og koma til okkar þegar þeir koma til Reykja­víkur. Okkur finnst gaman að ferð­ast til útlanda og við ætlum að reyna að kom­ast til Hel­skinki þegar við getum því við urðum bæði fer­tug í fyrra. Helst langar okkur á þung­arokks­tón­leika, sem við höfum bæði gaman af”.

Þau náðu einnig að kaupa sér not­aðan bíl sem Guðrún Dóra er afar þakk­lát fyrir.

Öllu fögru lofað

Guðrún Dóra hefur ekki gleymt þeim sem komu henni til hjálpar á hennar erf­ið­ustu tímum. „Ég hef upp­lifað að hafa það nokkuð gott en ég hef líka upp­lifað sára fátækt. Og núna þegar ég get séð af smá aur gef ég til baka það sem ég get í það hjálp­ar­starf sem hjálp­aði mér á sínum tíma. Ég kaupi líka til dæmis þrjár auka jóla­gjafir, eina undir tréð í Smára­lind, aðra undir tréð í Kringl­unni og eina sem við sendum á Mat­ar­hjálp. Við erum núna nýbyrjuð á svoköll­uðu „umslaga­kerfi” þar sem við setjum ákveðna upp­hæð í umslag og sú upp­hæð á að end­ast okkur út mán­uð­inn. Ég von­ast til að það komi til með að ganga vel“.

Hún segir stjórn­völd verða að girða sig í brók og sinna öryrkjum og eldri borg­urum í neyð, gjáin milli ríkra og fátækra sé alltaf að stækka. „Það er öllu fögru lofað fyrir kosn­ingar sem síðan er svikið,” segir Guðrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ