Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kristín áhrifavaldur fengið nóg og sakar kollega sína um vörusvik og blekkingar

Kristín áhrifavaldur fengið nóg og sakar kollega sína um vörusvik og blekkingar

Kristín Sam­ú­els­dóttir er áhrifa­valdur sem hefur verið að vekja þarfa athygli á stóru vanda­máli sem við­geng­ist hefur í alltof langan tíma, blekk­ingar áhrifa­valda þegar kemur að því að aug­lýsa varn­ing og fleira fyrir fyr­ir­tæki sem kaupa þá þjón­ustu af þeim. Kristín sem er eins og áður sagði áhrifa­valdur sjálf leggur, sér­staka áherslu á húð­um­hirðu og förðun. Hún er förð­un­ar­fræð­ingur, ljós­mynd­ari og starfar við mark­aðs­setn­ingu. Kristín hefur meðal ann­ars fjallað um vanda­málið á Instagram­reikn­ingi sínum, Ksam.beauty. Mannlíf ræddi við Kristínu um blekk­ingar áhrifa­valda og áhrif þeirra á fyr­ir­tæki, þá sjálfa og síð­ast ekki síst neyt­endur.

Kristín Sam­ú­els­dóttir hefur fengið nóg af blekk­ingum áhrifa­valda
Hér má sjá nýlegt dæmi um hvernig áhrifa­valdur hefur gjör­breytt lit peysu sem verið var að aug­lýsa. Peysan er græn­leit en áhrifa­vald­ur­inn setti filt­era og peysan varð föl­bleik

 Fyr­ir­tæki verða að vera vak­andi  

Fyr­ir­tæki þurfa að hugsa þetta betur og þurfa að vera vak­andi fyrir vanda­mál­inu. Auðvitað er eðli­leg­ast að fyr­ir­tækin leggi lín­urnar með hag neyt­enda og við­skipta­vina sinna í for­gangi. Til dæmis með því að banna notkun á filt­erum. Áhrifa­vald­arnir eru að vinna fyrir fyr­ir­tækin en fyr­ir­tækin ekki fyrir þá. Það að ekki sé vandað til verka getur skapað mjög nei­kvæða ímynd á fyr­ir­tækjum sem láta þetta við­gang­ast og það er raunin í mörgum til­fellum. Það að gæta ekki að því að vörur sem aug­lýstar eru séu sýndar í eins sönnu ljósi og unnt er flokk­ast sem blekk­ingar og jafn­vel vöru­svik. Neyt­endur eiga skilið að fá að sjá það sem aug­lýst er án filt­era og ann­arra blekk­inga. Fyr­ir­tæki virð­ast oft ein­ungis spennt fyrir því að vinna með ákveðnum nöfnum og beygja sig og bugta til þess að fá sam­starf við þá aðila. Þarna stendur hníf­ur­inn í kúnni, það er ekki verið að hugsa um það að leggja línur fyrir áhrifa­valdana um hvað má og hvað má ekki. Það er hrein­lega engu lík­ara en að stjörnu­rykið sé svo blind­andi í augum þeirra sem vilja velja þessa leið til mark­að­setn­ingar, að allt annað stein­gleym­ist. Það verður að setja skýrar kröfur á áhrifa­valda, fyr­ir­tækin eiga að stjórna ekki áhrifa­vald­arnir. Þeir sem velja það að aug­lýsa vörur, þjón­ustu og hvað sem svo það er gera sér lík­lega enga grein fyrir því að ímynd þeirra er að hljóta skaða af og í mun meiri mæli en nokkur gerir sér grein fyrir.

Kannanir Krist­ínar sýna glöggt að fólk er ekki sátt

Áhrifavaldar bera mikla ábyrgð

Áhrifa­vald­arnir sjálfir verða líka fyrir nei­kvæðum áhrifum og fólk hættir að treysta þeim og nennir ekki að fylgj­ast með þeim lengur. Trú­verð­ug­leiki þeirra áhrifa­valda sem stunda það að blekkja fylgj­endur sína, verður að engu. Kristín seg­ist vita ótal dæmi þess að fólk hafi hrein­lega gef­ist upp á að fylgj­ast með áhrifa­völdum sem leggja slík vinnu­brögð í vana sinn. Áhrifa­valdar verða að gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem þeir bera gagn­vart versl­unum, fyr­ir­tækjum og neyt­endum. Það er stór hópur áhrifa­valda sem nota slík vinnu­brögð en virð­ast alltaf kom­ast upp með það. Það verður að taka á þessu því af hlýst ekk­ert annað en nei­kvæð við­brögð og missir á trausti og trú­verð­ug­leika. Hér bera fyr­ir­tæki og versl­anir alla ábyrgð því það er þar sem lín­urnar eiga að vera lagðar til grund­vallar aug­lýs­ingum sem gerðar eru í þeirra nafni. Fyr­ir­tæki eiga ekki að aðlaga sig áhrifa­vald­inum heldur á hann að aðlaga sig að þeirra þörfum og kröfum. Ef við­kom­andi vill ekki ganga að kröfum fyr­ir­tæk­is­ins þá fer hann bara eitt­hvað annað.

Fjöldi fylgj­enda segir ekk­ert til um það hvort aug­lýs­ingar frá áhrifa­vald­inum séu í lagi eða ekki. Fjöldi fylgj­enda segir heldur ekki til um þann hóp sem hefur gef­ist upp á því að fylgj­ast með slæ­legum vinnu­brögðum áhrifa­valda og hreinni blekk­ingu sem er verið að beita fylgj­endur/neyt­endur.

Þetta er alls ekki góð þróun og getur vel laskað sjálfsí­mynd fólks

Skaðar þá sem gera vel

Áhrifa­valdar sem kjósa önnur og betri vinnu­brögð verða líka fyrir skaða þegar fólk hættir að taka mark á aug­lýs­ingum sem birt­ast eftir þessum leiðum. Þessu verða þeir áhrifa­valdar og fyr­ir­tæki sem nýta þessa þjón­ustu að átta sig á. Þarna er verið að tala um stóran hóp fólks sem jafn­vel hefur sitt aðal lífs­við­ur­væri af því að vinna að svona mark­aðs­setn­ingu. Þetta er alls ekki sann­gjarnt  fyrir þá sem virki­lega leggja á sig vinnu við að sinna starf­inu sínu og vilja gera vel við sína fylgj­endur og auð­vitað þá sem þeir eru í sam­stafi við. Setjum upp dæmi ef fyr­ir­tæki sendi inn aug­lýs­ingu til birt­ingar í dag­blaði og það væri verið að aug­lýsa hvíta skó og inn­send mynd með aug­lýs­ing­unni væri auð­vitað af þessum hvítu skóm. Þegar dag­blaðið birtir aug­lýs­ing­una væri búið að eiga við mynd­ina og skórnir orðnir grænir. Fyr­ir­tækið yrði ekki sátt, enda ekki með neina græna skó í sölu hjá sér. Neyt­endur yrðu heldur ekki glaðir ef þeir flýttu sér margir í búð­ina til að tryggja sér par af þessum grænu skóm, sem auð­vitað væru svo ekki til. Þetta er alls ekki flókið dæmi og þessarri þróun verður að snúa við.

93 pró­sent vilja að notkun feg­urða filt­era verði bönnuð þegar kemur að aug­lýs­ingum
Áhrifa­valdar sem stunda svona blekk­ingar verða að hætta því og fyr­ir­tæki sem vinna með þeim verða að setja þeim stól­inn fyrir dyrnar hvað þetta varðar
Peysan eins og hún lítur út í raun og veru

Neytendur vilja þetta alls ekki

Þessi mál eru komin út í alltof miklar öfgar og það er brýn þörf að vinda ofan af vanda­mál­inu. Á meðan þessu er svona háttað er það ekki jákvætt og alls ekki eðli­legt þegar litið er til aug­lýs­inga almennt. Neyt­endur verða að geta treyst því að áhrifa­vald­ur­inn sé að sýna rétta mynd af því sem verið er að aug­lýsa og gefi ítar­legar og greina­góðar upp­lýs­ingar um vör­una frekar en sýna leikni sína í filt­era notkun, það á heima ann­ars staðar. Það vill eng­inn láta blekkja sig það er stað­reynd. Vörusvik og blekk­ingar eru aldrei í lagi, ekki heldur ef áhrifa­valdar fram­kvæma verkn­að­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ