Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðrún Hafsteinsdóttir er neytandi vikunnar: „Passa að kaupa ekki mat fyrir ruslatunnuna“

Guðrún Hafsteinsdóttir er neytandi vikunnar: „Passa að kaupa ekki mat fyrir ruslatunnuna“

Neytandi vik­unnar að þessu sinni er Guðrún Haf­steins­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Suð­ur­kjör­dæmi. Hún bar sigur úr býtum í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í sínu kjör­dæmi og mun leiða list­ann í kosn­ingum til Alþingis í haust. Guðrún er rúm­lega fimm­tug og starfar í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu Kjörís í Hvera­gerði. Samtals eiga hún og sam­býl­is­maður hennar Hans Kristján Ein­ars­son Hagerup gull­smiður sex börn. Þau eru þó oft­ast þrjú í heim­ili en yngsti fjöl­skyldu­með­lim­ur­inn stundar mikið íþróttir og borðar þar af leið­andi mikið. Guðrún segir að það fjölgi hratt við eld­hús­borðið þegar öll börnin og tengda­börnin þeirra mæta. Þá eru þau alls 13.

Hve miklu eyðir fjöl­skyldan í mat og aðrar rekstr­ar­vörur heim­il­is­ins á mán­uði oghvar verslar hún helst?

„Við verslum helst í Bónus í Hvera­gerði enda eina versl­unin hér í bænum. Við eyðum um 130 – 150 þús­und á mán­uði í mat og rekstr­ar­vörur heim­il­is­ins.“

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi?

„Mesti sparn­að­ur­inn hjá okkur felst í að passa upp á það að kaupa ekki mat fyrir rusla­tunn­una. Við þolum ekki að henda mat. Það hefur fækkað aðeins í heim­il­is­haldi og þá vill það henda að brauðið myglar og mjólkin súrnar því maður hefur verið að kaupa inn af gömlum vana.“

Leggur þú fyrir, og hvaða leiðir notar þú ef svo er ?

„Ég hef alltaf lagt fyrir. Ég er ein af þeim sem sakna skyldu­sparn­aðar ung­linga því þegar ég keypti mína fyrstu íbúð átti ég fyrir útborgun í formi skyldu­sparn­aðar. Ég legg alltaf fyrir hluta launa, er með sparn­að­ar­reikn­ing sem milli­fær­ist inn á um hver mán­að­ar­mót. Þessi reikn­ingur er hugs­aður til að mæta óvæntum útgjöldum eða stórum fram­kvæmdum á heim­il­inu.“

Telur þú álagn­ingu versl­ana sann­gjarna og gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu ?

„Ég bjó í Þýska­landi um 5 ára skeið og þar lærði maður fljótt þýska spar­semi og að gera verð­sam­an­burð. Þjóð­verjar vita upp á hár hvar er hag­stæð­ast að versla á hverjum tíma og þeir kaup þá mjólk­ina á einum stað og kjötið á ein­hverjum öðrum og svo er gengið á milli búða því ann­ars fer sparn­aður í óþarfa bens­ín­kostnað. Svo er ég einnig alin upp af spar­samri móður og það situr í gena­meng­inu. Mér finnst mjög gaman af því að spara og spá í sparnað.“

Verðtryggð lán, óverðtryggð lán eða engin lán ?

„Það fer allt eftir aðstæðum hvers og eins. Ég er alin upp við það að sá sem er skuldar er ekki frjáls maður en auð­vitað höfum við flest hver þurft að efna til skulda um ævina og þá sér­stak­lega í kringum hús­næð­is­kaup og er ég þar engin und­an­tekn­ing. Þegar ég tók hús­bréf á sínum tíma á húsið mitt voru afföllin um 20 pró­sent sem þýddi að af hverri milljón sem fékkst að láni fékk maður aðeins 800.000 inn á reikn­ing­inn sinn en skuldin var eftir sem áður milljón. Á þeim tíma átti maður ekk­ert val og tók ég verð­tryggð lán á húsið mitt. Ef ég væri að gera þetta í dag hugsa ég að ég myndi taka óverð­tryggt lán en þá verður maður að vera í þeirri stöðu að geta þolað sveifl­urnar.“

Umhverfisvernd, skiptir hún þig máli ?

„Umhverf­is­vernd skiptir mig mjög miklu máli. Þegar ég bjó í Þýska­landi fyrir 20 árum lærði ég að flokka allt mitt sorp og hef gert það allar götur síðan. Í Hvera­gerði er allt sorp flokkað og svo hefur verið um ára­bil. Ég er til að mynda með 12 rusla­tunnur heima hjá mér. Almennt sorp, sem ég get ekki flokkað. Lífrænt sorp. Plast. Járn. Pappír. Raf­hlöður. Gler. Lyf. Ljósa­perur og þrýsti­brúsar. Fatnaður til end­ur­vinnslu. Fatnaður fram­halds­líf og kerti ég safna þeim og gef í kerta­vinnslu. Þegar maður býr í litlu sam­fé­lagi eins og Hvera­gerði er að þá er auð­velt að minnka kolefn­is­sporið og ganga eða hjóla í sínum erinda­gjörðum.“

Hvaða mál og málaflokkar telur þú að þurfi að leggja meiri áherslu á ?

„Ég hef talað fyrir því í minni kosn­inga­bar­áttu að taka upp eitt sam­ræmt flokk­un­ar­kerfi sorps á Íslandi. Það yrði frá­bært og ég get þá hætt að flytja rusl á milli lands­hluta því á mörgum stöðum er það hrein­lega ekki flokkað.“

Mannlíf hefur boðið fólki úr öllum flokkum að taka þátt í Neytanda vik­unnar, kosn­inga­út­gáfu og von­ast er til þess að sem flestir taki þátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ