Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Íbúar í Grafarvogi ævareiðir eftir árás á sjö ára barn: Krefjast rafrænnar vöktunar

Íbúar í Grafarvogi ævareiðir eftir árás á sjö ára barn: Krefjast rafrænnar vöktunar
Skjáskot / Reykja­vík­ur­borg

Mikill uggur og reiði er meðal íbúa í Graf­ar­vogi í dag eftir að upp­lýst var að maður reyndi að ræna sjö ára stúlku. Hafa umræður spunn­ist í íbúa­hóp hverf­is­ins um nauð­syn kerf­is­bund­innar raf­rænnar vökt­unar og þykir mörgum nóg um komið af seina­gangi borg­ar­yf­ir­valda. Rétt eftir kvöld­verð­ar­leytið í gær varð sjö ára gömul stúlka fyrir þeirri skelfi­legu lífs­reynslu að ókunnur maður reyndi að nema hana á brott þar sem hún var við leik á leik­velli í botn­götu Folda­hverfis.

Engin vitni urðu að atburð­inum en litla stúlkan gat gefið lýs­ingu sem sam­svarar því að mað­ur­inn, sem að sögn er Íslend­ingur, sé dökk­hærður með brún augu, á milli 170 og 180 cm á hæð, en hann var íklæddur gráum íþrótta­buxum og grárri peysu.

Reyndi að ræna sjö ára stúlku: „Fór að gráta og spark­aði í pung­inn á honum“

Reiði er ríkj­andi í íbúa­hóp Graf­ar­vogs­búa eftir atvikið sem eðli­lega hefur sett dag­legar venjur for­eldra úr nokkrum skorðum nú í sum­ar­byrjun og spyr íbúi í Graf­ar­vogi nú í dag því hug­myndin Eft­ir­lits­mynda­vélar í hverfið hafi fengið afger­andi kosn­ingu án fram­kvæmda á vef Reykja­vík­ur­borgar árið 2019 hjá íbúum hverf­is­ins í Betri Reykja­vík. “EKKERT hefur gerst síðan,” segir íbúi og vísar til árs­ins 2019. “Hver er skýr­ingin á því?”

Kosn­inga­til­lagan eins og hún lítur út á vef borg­ar­innar í dag, en íbúar í Graf­ar­vogi segj­ast lang­þreyttir á svara­leysi

Annar íbúi Graf­ar­vogs svarar um hæl á íbúa­síðu og segir að verk­efni borg­ar­innar hafi ein­ungis snúið að mynda­vélum sem fylgd­ust með ferðum inn í sjálfan Graf­ar­vog­inn. “Þar eru ekki nema 3 leiðir inn og út,” má lesa á íbúa­síð­unni. “Löngu kom­inn tími til að þetta komi.”

Hið rétta er þó að verk­efnið Rafræn vöktun í Graf­ar­vogi átti, sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem koma fram á vef Reykja­vík­ur­borgar, að koma til fram­kvæmda árið 2019 en síðan eru liðin 2 ár.  Lilja Sig­ur­jóns­dóttir,  sem sendi inn til­lög­una til borg­ar­innar seg­ist á íbúa­síð­unni örmagna á að reyna að afla upp­lýs­inga hjá yfir­völdum. “Ég hef oft sent fyr­ir­spurnir og fæ engin svör, þegar ég hef fengið ein­hver við­brögð frá borg­ar­stjóra þá er það  bara verið að segja að þetta sé ekki á þeirra könnu og benda á ein­hvern annan og engin svör!” Lilja, sem er orðin lang­þreytt á svara­bresti ráða­manna klykkir út með orð­unum: “Frábært lýð­ræði hér í Reykja­vík **kald­hæðni**” og taka aðrir íbúar undir.

Hér má sjá hug­mynd­ina sem Lilja sendi inn árið 2019 í hug­mynda­söfnun íbúa í Graf­ar­vogi

Ein­hverjum þykir nóg um komið og svarar því að “verkið virð­ist hafa verið stöðvað vegna póli­tískrar and­stöðu hjá ráða­mönnum Reykja­vík­ur­borgar” og segir málið hafa verið tekið upp á fundi íbúa­ráðs fyrir einu og hálfu ári síðan. “… og þar mætti einn af borg­ar­full­trúum meiri­hlut­ans til að tala verkið niður.”

Þessi er staða verk­efn­is­ins í dag og árið er 2021 – til­laga var sam­þkkt í maí 2019 og er enn í skoðun hjá borg­ar­stjóra

Ekki kemur fram hvaða borg­ar­full­trúi hafi átt hlut að máli á umræddum fundi en leiðir íbúi þó getum að því ráða­menn borg­ar­innar hafi lít­inn skiln­ing á því að um lýð­ræð­is­lega kosn­ingu meiri­hluta íbúa Graf­ar­vogs hafi verið að ræða. “Hvorki hann né emb­ætt­is­maður sem var til svara vildi hlusta á þau rök að íbúar hefðu valið verk­efnið á lög­legan hátt í kosn­ingu og það ætti að koma til fram­kvæmda. Alveg stórfurðu­legt mál og ég bara skil ekki svona ein­streng­ings­lega stjórn­sýslu.”

Þrátt fyrir nokkrar til­raunir náði blaða­maður ekki sam­bandi við tengilið verk­efnis hjá Reykja­vík­ur­borg en rit­stjórn hefur sent form­lega fyr­ir­spurn til borg­ar­yf­ir­valda í þeirri von að svör taki að rata í hendur íbúa Graf­ar­vogs, sem eðli­lega eru ugg­andi eftir atvika­röð gær­dags­ins og vilja auka öryggi barna í hverf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ