Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Dagur B. vill ekki fjármagna þjóðarleikvang – Margir á því að hann þurfi ekki að vera í Reykjavík

Dagur B. vill ekki fjármagna nýjan þjóðarleikvang í Laugardal.
Dagur B. vill ekki fjár­magna nýjan þjóð­ar­leik­vang í Laug­ar­dal.

Það lítur ekki út fyrir að nýr þjóðar­leikvangur fyrir knatt­spyrnu hér á landi rísi á næstunni. Dagur B. Eggertsson hefur sagt að hann sé ekki klár í að taka þátt í fjár­mögnum á nýjum þjóðar­leikvangi í knatt­spyrnu í Laugardal.

Reykja­víkurborg er eigandi Laugar­dalsvallar en áform um að breyta honum og bæta hafa í fjöldamörg ár verið á teikniborðinu; málið er í algerri biðstöðu. Talið er að slíkur leik­vangur myndi aldrei kosta minna en fimmtán milljarða króna.

Völlurinn umræddi þykir ekki standa undir nútíma­kröfum um þjóðar­leikvang; þykir sjúskaður, gamaldags og að hlaupa­brautin eyðileggi alla stemmningu á leikjum landsliða karla og kvenna í fótbolta.

Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra var eitt sinn einn allra efnilegasti knattspyrnu­maður Ísland – varnar­tröll mikið að burðum og lék með Stjörnunni – en skoski leik­maðurinn James Bett eyðilagði feril Bjarna með hræðilegri tæklingu á sínum; ökkla­brotnaði Bjarni mjög illa og náði sér aldrei á strik eftir það og þurfti ungur að árum að leggja skóna á hilluna.

Bjarni hef­ur sagt að enginn botn sé kominn í sam­tal á milli ríkisins og Reykja­víkurborgar um nýjan þjóðar­leikvang.

Þá hefur formaður KSÍ, Guðni Bergsson, sagt um mögulegan nýjan þjóðar­leikvang, að málið sé alfarið á borði Reykja­víkurborgar.

Talsverð umræða hefur verið um málið á samfélags­miðlum og mikið rætt um að slíkur leik­vangur þurfi alls ekki að vera stað­settur í Reykjavík.

Maður að nafni Sæþór Jensson ritar til dæmis þetta um málið:

„Garðabær. Yrði flott fyrir nýjan völl,“ og segir að Reykja­víkurborg myndi missa miklar tekjur ef lands­liðið (Laugar­dalsvöllur og KSÍ) færi burtu úr Reykjavík; að ef „KSÍ færi úr Reykjavík“ til Garða­bæjar myndi sambandið borga skatta sína í Garðabæ.

Bjarni Benediktsson er borinn og barn­fæddur Garð­bæingur og myndi líkast til ekkert hafa á móti því að nýr þjóðar­leikvangur yrði byggður í heimabæ sínum en um það hefur Bjarni hins vegar ekkert tjáð sig um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra