Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Linda hatar að fá vondan mat þegar svöng og horfir aldrei á sjónvarp

Linda hatar að fá vondan mat þegar svöng og horfir aldrei á sjónvarp

Mat­ar­gyðjan Linda Bene­dikts­dóttir er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Ætli sé ekki óhætt að segja að það séu fáir ef nokkur Íslend­ingur sem ekki hefur gert eða smakkað eitt­hvað eftir upp­skrift Lindu Ben, slíkar hafa vin­sældir hennar verið.
Enda virð­ist allt sem frá henni kemur smakk­ast guð­dóm­lega.
Djöfla­tertan hennar fræga er ein af vin­sæl­ustu upp­skrift­unum, fast á hæla hennar koma lík­leg­ast mjúku kanilsnúð­arnir með glassúri, bæði ómót­stæði­lega gott. En á vef Lindu, linda­ben.is, má finna þessar upp­skriftir, ásamt fjölda ann­arra.
Fyrir sein­ustu jól gaf Linda einnig út bók­ina Kökur, sem er upp­full af ljúf­fengum upp­skriftum. Linda er líka mik­ill fag­ur­keri og sést það vel á bók­inni, en hún er ein­stak­lega fal­leg og vönduð og hlaut hún til­nefn­ingu frá virtum erlendum bóka­sam­böndum fyrir fal­leg­ustu bakst­urs­bók í heimi árið 2020.
Mannlíf komst að því að Linda horfir eig­in­lega aldrei á sjón­varp, drekkur hvorki kók né pepsí og segir sinn helsta ókost vera óstund­vísi.

Fjöl­skyldu­hagir? Í sam­búð með Ragnari, saman eigum við tvö börn, 7 ára strák og 1 árs stelpu.

Menntun/atvinna? Mennt­aður líf­efna­fræð­ingur, starfa sem upp­skrifta­höf­undur, mat­ar­stílisti og áhrifa­valdur.

Upp­á­halds Sjón­varps­efni? Horfi eig­in­lega aldrei á sjón­varp, en dett inn í Bachelor af og til.

Leikari? Enginn sér­stakur.

Rit­höf­undur? Þeir sem skrifa um eitt­hvað gagn­legt, ég er ekki skáld­sögu týpan.

Bók eða bíó? Hljóðbók.

Besti matur? Fer algjör­lega eftir skapi, ekki hægt að gera upp á milli, en ég elska gott pasta.

Kók eða Pepsí? Hvorugt, alltaf sóda­vatn.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Þar sem ég er umvafin fal­legum gróðri er fal­leg­asti stað­ur­inn.

Hvað er skemmti­legt? Að hlaupa úti í nátt­úr­unni.

Hvað er leið­in­legt? Þurfa að hlusta á nöldur og bak­tal.

Hvaða flokkur? Ég hef aldrei náð að koma mér inn í stjórn­mál, fæ kannski áhug­ann þegar ég verð stór.

Hvaða skemmti­staður? Ragnar bauð mér fyrst upp á drykk, sem meira en bara vinir, á stað sem hét Oliver. Sá staður á því alltaf sér­stakan stað í hjarta mér.

Kostir? Jákvæð og með mik­inn drif­kraft.

Lestir?  Óstund­vís.

Hver er fynd­inn? Ragnar.

Hver er leið­in­legur? Sá sem segir „þetta er ekki hægt“.

Trúir þú á drauga? Tjaaah, ég trúi á ork­una sem fylgir fólki og held að hún lifi að ein­hverju leyti áfram, mér finnst það að minnsta kosti nota­leg til­hugsun. Það er gott að hugsa sér að fólkið sem manni þótti vænt um sé ennþá hjá manni að ein­hverju leyti.

Stærsta augna­blikið? Þegar ég fæddi börnin mín.

Mestu von­brigðin? Að fá vondan mat þegar ég er mjög svöng.

Hver er draum­ur­inn? Að vera heil­brigð og ham­ingju­söm með fjöl­skyld­unni minni sem er líka heil­brigð og ham­ingju­söm.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári?  Ég hef náð að slappa svo­lítið af sem er mitt mesta afrek því ég hélt að ég myndi aldrei ná að gera það. Und­an­farin ár hafa verið alltof strembin enda verið að byggja ein­býl­is­hús, eign­ast barn, skrifa bók, sinna fjöl­skyldu­líf­inu, allt á sama tíma. Það hefur því verið mjög kær­komið að hafa ekki brjálað að gera og algjör­lega ný upp­lifun. Mér finnst það ennþá hálf óraun­veru­legt að vakna um helgar og það er ekki kreisí dag­skrá framundan.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Alls ekki, ég lifi fyrir það að dreyma stórt, finna upp á ein­hverju nýju skemmti­legu og fram­kvæma.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Ég þyrfti að spyrja Ragnar.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Ég er frekar vand­ræða­leg týpa og er alltaf að koma mér í ein­hverjar vand­ræða­legar aðstæður en reyni að hugsa ekki of mikið um það. Eft­ir­minni­leg­asta vand­ræða­lega augna­blikið var þegar ég var í 6. eða 7. bekk og var í sturtu eftir leik­fimi, við vorum að fífl­ast stelp­urnar og settum fullt af sápu á gólfið. Ég stökk svo til þar sem ég var orðin of sein og flaug svona svaka­lega á gólfið í sáp­unni og rann eftir endi­löngu gólf­inu á stelpu sem var að mála sig, en hún var í eldri bekk. Ég hélt ég myndi deyja úr vand­ræða­leg­heitum!!!! Ég man ennþá eftir svip­brigð­unum hennar, hún var gjör­sam­lega sjokkeruð.
Þar með lauk ekki sög­unni en við fallið skar ég mig á olbog­anum mjög illa og blóð gjör­sam­lega út um allt, það þurfti því að kalla til kenn­ara og það kom fullt af fólki að huga að mér. Mér fannst þetta alveg hrika­lega vand­ræða­legt en get þó hlegið að þessu í dag og segi sög­una reglu­lega þegar fólk spyr mig hvernig ég fékk þetta ljóta ör á olbog­ann.

Sorg­leg­asta stundin? Æj mér finnst ekk­ert gaman að ræða það.

Mesta gleðin? Alltaf þegar ég knúsa börnin mín og Ragnar.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Að hugsa jákvætt og þakka fyrir allt það góða í líf­inu, sér­stak­lega litlu hlut­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ