Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hæ, laun þingmanna hérna

Hæ, laun þingmanna hérna
Björn Leví Gunn­ars­son Pírati

Pistill frá Birni Leví þing­manni Pírata:

Fyrsti launa­seð­ill­inn minn frá Alþingi greiddi mér mán­að­ar­laun upp á 1.101.194 kr. Þá var árið 2016. Um síð­ustu mán­aða­mót hækk­uðu laun þing­manna enn og aftur og nú eru mán­að­ar­launin orðin 1.285.411 kr. á mán­uði og hækk­uðu um 6,2% frá launum síð­asta árs sem voru 1.210.368 kr. Samtals er hækk­unin 16,7% frá árinu 2016, en dag­inn eftir kosn­ing­arnar það árið ákvað kjara­ráð að hækka laun þing­manna um 44,3%. Á sama tíma hefur þróun verð­lags verið 14,7%.

Ég vil byrja að taka það fram að mér finnst aðferðin sem á að vera notuð til þess að reikna þessar launa­breyt­ingar vera góð – en hún snýst um að laun þing­manna hækka um með­al­tal þess sem reglu­leg laun starfs­manna rík­is­ins hækka á árinu áður, sam­kvæmt útreikn­ingum Hag­stof­unnar. Hér er ekki um neina geð­þótta­á­kvörðun að ræða heldur á þetta að vera ein­föld stærð­fræði. Þessi hækkun er því að segja okkur að á síð­asta ári hækk­uðu laun rík­is­starfs­manna að með­al­tali um 6,2%. Það út af fyrir sig er mjög áhuga­vert og til­efni til nán­ari skoð­unar.

Byrjum á líf­eyri almanna­trygg­inga. Sá líf­eyrir hækkar í fjár­lögum sam­kvæmt lögum um almanna­trygg­ingar sam­kvæmt spá um vísi­tölu neyslu­verðs eða launa­þróun kom­andi árs. Það þýðir að í næstu fjár­lögum verður ákveðið hversu mikið líf­eyrir almanna­trygg­inga á að hækka fyrir árið 2022. Síðustu þrjár hækk­anir líf­eyris voru 3,6%, 3,5% og 3,6%. Í töfl­unni hér fyrir neðan eru launa­hækk­anir þing­manna kjara­ráðs­á­kvörð­un­inni 2016. Munurinn á hækkun líf­eyris og launum þing­manna er hér aug­ljós.

Launa­hækk­anir þing­manna

Dag­setn­ing Hækkun Laun
01.07.2021 6,2% 1.285.411
01.01.2021 3,4% 1.210.368
01.05.2020 6,3% 1.170.569
30.10.2016 44,3% 1.101.194

Eftir gríð­ar­lega mikla hækkun kjara­ráðs 2016 var allt í hnút. Kjararáð var að lokum leyst upp og nýju lögin um með­al­tal reglu­legra launa rík­is­starfs­manna komu í stað­inn.

Hvað með hjúkr­un­ar­fræð­inga og sjúkra­liða? Hvað með fram­halds­skóla­kenn­ara? Tölur Hag­stof­unnar segja að reglu­leg laun þess­ara starfs­stétta hafi hækkað frá árinu á undan sam­kvæmt töfl­unni hér fyrir neðan. Tölur hjúkr­un­ar­fræð­inga er að finna í flokknum “2230 Störf hjúkr­un­ar­fræð­inga og ljós­mæðra”.

Launa­hækk­anir nokk­urra rík­is­starfs­stétta

Dag­setn­ing Hjúkr­un­ar­fræð­ingar Sjúkra­liðar Fram­halds­skóla­kenn­arar
2020 3,4% 8,1% 5,7%
2019 4,1% 2,6% 2,0%
2018 6,7% 5,8% 3,0%
2017 6,1% 7,1% 3,1%

Hækkunin er mjög mis­mikil milli starfs­stétta og ára. Að ein­hverju leyti er það eðli­legt en á sama tíma áhuga­vert hvar er munur og þá af hverju. Það sem núver­andi lög um þing­far­ar­kaup gera er að útvega þetta við­mið um reglu­leg laun rík­is­starfs­manna. Út frá því við­miði getum við betur spurt okkur hvað er sann­gjarnt og af hverju. Ég tel núver­andi fyr­ir­komu­lag þing­far­ar­kaups vera nokkuð sann­gjarnt – þó ég skilji að upp­hæð laun­anna sjálfra sé það kannski ekki. Hver sem launa­upp­hæðin sjálf á að vera þá er aðferðin sem notuð er til þess að breyta laun­unum óháð því.

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar þá eru þetta þeir hópar sem eru með yfir milljón í reglu­leg laun á mán­uði

Laun hópa yfir milljón

Hópur Laun
1210 For­stjórar og aðal­fram­kvæmda­stjórar fyr­ir­tækja og stofn­ana 1.638
1227 Yfirmenn fram­leiðslu- og rekstr­ar­deilda í þjón­ustu­fyr­ir­tækjum 1.617
3411 Störf tengd ráð­gjöf og sölu verð­bréfa 1.582
2422 Dóm­ara­störf 1.551
1120 Æðstu emb­ætt­is­menn ríkis og sveit­ar­stjórna 1.366
314 Sér­fræði­störf tengd skipa- og flug­sam­göngum 1.322
3144 Sér­fræði­störf við flug­um­sjón 1.240
1237 Yfirmenn rann­sóknar- og þró­un­ar­deilda 1.210
1236 Yfirmenn tölvu­deilda 1.205
1223 Yfirmenn fram­leiðslu- og rekstr­ar­deilda í bygg­ing­ar­iðn­aði og mann­virkja­gerð 1.143
1233 Yfirmenn sölu- og mark­aðs­deilda 1.113
1232 Yfirmenn starfs­manna­halds 1.080
1 Störf stjórn­enda 1.079
12 Störf for­stjóra og stjórn­enda stærri fyr­ir­tækja og stofn­ana 1.067
1231 Yfirmenn fjár­mála- og stjórn­un­ar­deilda 1.056
1222 Yfirmenn fram­leiðslu- og rekstr­ar­deilda í iðn­aði 1.045
2460 Sér­fræði­störf tengd trú­ar­bragða­fræði og trú­fræði 1.024
123 Yfirmenn ann­arra deilda 1.019

Af þessu er aug­ljóst að sjá að þing­far­ar­kaup er á pari við reglu­leg laun yfir­manna og hátt laun­aðra sér­fræð­inga. Ég er ekk­ert endi­lega viss um að það sé rétt við­mið, en á móti kemur að þing­manna­starfið getur verið enda­laust og er alger­lega án yfir­vinnu. Sitt sýn­ist hverjum eins og fram kom í óform­legri könnun sem ég gerði árið 2018. Þau sem svör­uðu fannst launin vera of há miðað við með­al­laun og að laun ráð­herra og for­seta væru of há miðað við laun þing­manna. 17,8% fannst launin eiga að vera í kringum með­al­laun. 22% að launin ættu að vera 40% lægri en þau eru. 19,2% að launin ættu að vera 20% lægri og 20,5% að launin ættu að vera eins og þau eru. Mála­miðl­unin væri þá í kringum 30% lægri laun miðað við þessa könnun. Það er umtals­verður munur á núver­andi launum og skoð­unum fólks (sem þing­menn eru að vinna fyrir) á því hver launin ættu að vera og ætti að gefa til­efni til þess að skoða þing­far­ar­kaupið nánar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ