Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Væri Ísland í ESB þá nytu íslenskir bændur meiri styrkja en þeir fá úr ríkissjóði í dag“

„Væri Ísland í ESB þá nytu íslenskir bændur meiri styrkja en þeir fá úr ríkissjóði í dag“

„Síðustu 75 árin hafa hags­muna­sam­tök fyr­ir­tækj­anna ráðið mestu um hvernig kaupin ger­ast á Alþingi. Hægri menn eru í miklum meiri­hluta alþing­is­manna,“ ritar Krist­björn Árnason á sam­fé­lags­miðli, og lætur sverfa til stál:

„Tali­banar lands­byggð­ar­innar á Íslandi skipt­ast að mestu í tvö hags­muna­sam­tök og þau hafa í raun líf fólks sem býr á lands­byggð­inni í hendi sér,“ bætir hann við og heldur áfram:

„Þetta eru Bænda­sam­tökin og Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Á lands­byggð ríkir í raun ekki mál­frelsi nema ef aðilar vilja þola afkomu­skort.

Þessi sam­tök njóta veru­lega verð­mætra styrkja almenn­ings í gegnum mjög flókin reglu­verk. Sjáv­ar­út­veg­ur­inn nýtur gríð­ar­legra styrkja í gegnum veiði­leyfa­kerfið. Bændur njóta beinna styrkja og fyr­ir­tæki þeirra. Auk þess sem rík­is­sjóður nið­ur­greiðir þær afurðir sem land­bún­aður fram­leiðir og selur.“

Krist­björn er með öðrum orðum að segja að „það er almenn­ingur, skatt­greið­endur, sem halda upp þessum greinum með rausn­ar­legum hætti. Auk þess greiða fyr­ir­tæki bænda og útvegs­manna sára­litla skatta til sam­fé­lags­ins. Að nafn­inu til er sagt að lægri virð­is­auka­skattur sé til að halda uppi launa­fólki.“

Hann segir að þetta séu auð­vitað hrein ósann­indi; ef þessar vörur væru ekki nið­ur­greiddar myndu þær ekki selj­ast; það sama á sér stað með toll­vernd­ina. Þar eru erlendar land­bún­að­ar­vörur skatt­lagðar í drep. Allt borgar almenn­ingur.“

Krist­björn nefnir að „það eru gríð­ar­legar upp­hæðir sem fara frá fyr­ir­tækjum þjóð­ar­innar í hags­muna­sam­tök er tengj­ast atvinnu­rekstr­inum – eig­endum fyr­ir­tækj­anna, en það eru sjaldn­ast þeir sem greiða félags­gjöldin. Það gera fyr­ir­tækin sjálf og það er tekið út úr rekstri fyr­ir­tækj­anna sem rekstr­ar­kostn­aður væri. Atvinnu­rek­endur eru lík­lega með fleiri starfs­menn en flokk­arnir hafa sem þing­menn, og starfs­fólk greiðir laun fyrir.“

Krist­björn túlkar þetta og segir á manna­máli:

„Það þýðir þá á íslensku að það eru starfs­menn fyr­ir­tækj­anna sem greiða félags­gjöld fyr­ir­tækj­anna; ekki eig­endur þeirra ef þeir eru ekki starfs­menn þeirra. Þessi sam­tök kalla sig Samtök atvinnu­lífs­ins. En verka­lýðs­fé­lögin og sam­tök þeirra eru auð­vitað einnig félög með mik­inn meiri­hluta fólks í atvinnu­líf­inu. Félagar í verka­lýðs­fé­lög­unum greiða sín félags­gjöld sjálfir; ekki hinir.“

Krist­birni verður tíð­rætt um flokka sem telj­ast til hægri hér á landi:

„Það eru auð­vitað sann­indi að hægri flokk­arnir eiga allir bak­land í Samtökum atvinnu­rek­enda. Það varð þessi skoð­ana­klofn­ingur í Samtökum atvinnu­rek­enda sem afar sjald­gæft er á þeim bænum fyrir nokkrum árum. Allt vegna mis­mun­andi hags­muna varð­andi aukna aðild Íslands að ESB.“

Hann nefnir að „þetta klauf póli­tískan arm Samtaka atvinnu­rek­enda um þetta eina mál í raun og veru – og á Alþingi er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í tveim hlutum. Framsókn hefur átt sitt bak­land í Bænda­sam­tök­unum, en ekki er gott að átta sig á stöðu Mið­flokks­ins í þeim sam­tökum.“

Krist­björn segir að „vinstri­flokk­arnir hafa ekki síð­ustu 20 árin ræktað rætur sínar í verka­lýðs­hreyf­ing­unni. Það veikir bæði vinstri flokk­ana og hreyf­ing­una. Tók fólk ekki eftir því er fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja upp­lýsti þjóð­ina um að ferða­þjón­ustan væri í föstum sam­skiptum við rík­is­stjórn­ina. Engin fyr­ir­tæki hafa fengið meiri styrki frá sam­fé­lag­inu í seinni tíð.“

Marínó G. Njálsson skrifar athuga­semd við færslu Krist­bjarnar:

„Mér finnst þessi mál­flutn­ingur um mat­væla­verð, þ.e. að nið­ur­greiðslur og toll­vernd séu skað­legar, vera sorg­legan. Nánast hvergi í heim­inum er greitt fullt verð fyrir mat­vöru, þannig að frum­fram­leið­andi fái fyrir kostn­aði frá þeim sem full­vinnur mat­vælin fyrir neyt­enda­markað,“ segir Marínó og heldur áfram:

„Fáar greinar eru eins und­ir­lagðar af félags­legum und­ir­boðum, hót­unum og þving­unum mat­væla­vinnsl­unnar. Varla er reist mat­væla­vinnsla nokk­urs staðar öðru­vísi en hún njóti rík­is­styrkja og/eða fái hrá­efni nið­ur­greitt til sín. Ég efast um að eitt kíló af mat­vöru sé flutt til Íslands, sem ekki nýtur rík­is­styrkja í fram­leiðslu­landi, hagn­aður vinnsl­unnar er fal­inn í skatta­skjóli eða frum­fram­leið­endur búa við slíkar hót­anir og þving­anir kaup­enda hrá­vör­unnar, að þeir gera lítið annað en að skrimta; nema um sé að ræða verk­smiðju­bú­skap með verka­fólk á lús­ar­launum.“

Marínó nefnir að „ef Íslend­ingum finnst þetta almennt allt í lagi, þá verður svo að vera. Mér finnst það ekki og tel því að við eigum að styðja við frum­fram­leið­endur á Íslandi með þeim ráðum sem við höfum. Svo skulum við muna, að nið­ur­greiðslur land­bún­að­ar­vara voru settar á til að draga úr verð­bólgu og lækka launa­kostnað. Hver króna í nið­ur­greiðslu til frum­fram­leið­enda skilar sér um þrefalt til lækk­unar á útgjöldum heim­il­anna. Það þýðir að heim­il­is­tekjur allra heim­ila þyrftu að hækka um sex krónur fyrir hverja krónu sem nið­ur­greiðslur lækk­uðu. Mis­mun­ur­inn er fimm krónur, sem þyrftu að koma frá launa­greið­endum og þeir myndu örugg­lega sækja þá upp­hæð tvö­falda í vasa neyt­enda og skatt­greið­enda. Einnar krónu sparn­að­ur­inn í nið­ur­greiðslu væri því orð­inn að tíu krónum í auknum útgjöldum eða skatt­greiðslum.“

Marínó er harður á því að „það er fátt hag­kvæmara fyrir íslenska neyt­endur, en beinir styrkir til frum­fram­leið­enda land­bún­að­ar­vara. Toll­verndin er m.a. til að jafna sam­keppn­is­stöðu, þannig að inn­lend fram­leiðsla standi ekki höllum fæti gagn­vart mikið nið­ur­greiddum inn­fluttum mat­vælum.

Loks vil ég benda á, að ESB hefur skil­greint land­bún­að­ar­svæði norðan 60. breidd­argráðu, sem svæði sem þurfa sér­stakra styrkja. Þannig að væri Ísland í ESB, þá nytu íslenskir bændur MEIRI styrkja, en þeir fá úr rík­is­sjóði í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ