Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þórey vill gyðinginn gangandi burt: „Á að banna nafnið Adolf því það er fyrra nafn Hitlers?“

Þórey vill gyðinginn gangandi burt: „Á að banna nafnið Adolf því það er fyrra nafn Hitlers?“

Þórey nokk­urri var mikið niðri fyrir vegna plöntu sem hefur nefnst hér á landi Gyð­ing­ur­inn gang­andi. Hún setti inn­legg sem fólk tók ekki mjög vel í inn á Facebook hóp­inn Stofu­blómin inni­blóm potta­blóm. Hún vildi benda fólki á það að ekki væri snið­ugt að nota nafn plönt­unar lengur því það flokk­að­ist sem kyn­þátta­hatur og á meðan það væri notað væri verið að halda slíku hatri lif­andi. Sagðist hún vilja fræða fólk en minnt­ist á það að fólk yrði aftur og aftur brjálað. Það má með sanni segja að það hafi allt farið í bál og brand eftir inn­legg Þóreyjar, þurfti hún að loka fyrir umsagnir að loka fyrir ummæli undir færsl­unni. „Kald­hæðn­is­lega umbreytt­ist umræðan hér í dóna­skap og dólg, sem var einmitt það sem ég vildi forð­ast. Ég lok­aði fyrir frek­ari ummæli en langar að þakka öllum sem tjáðu sig vin­gjarn­lega og af kurt­eisi.“

„Sæl öll. Ég verð bara að tjá mig því ann­ars gefst ég upp á þess­ari grúppu og mér finnst hún almennt æðis­leg, svo ég vil helst vera hér áfram. Nú hafa ítrekað verið gerðar athuga­semdir um rasískan upp­runa nafns á plöntu, vin­sam­lega og jafn­vel með vísun í  fræð­andi efni. Sumir sem gætu svo auð­veld­lega tekið því vel og valið að nota eitt af öðrum nöfnum plönt­unnar verða aftur og aftur brjál­aðir. Blóts­yrði og skít­kast. Ég ætla að leyfa mér að bæta einu í þessa síend­ur­teknu umræðu, í van­mátt­ugri til­raun til fræðslu. Þegar við notum orð eða orða­sam­bönd sem eiga rót í ras­isma, erum við að við­halda rasískum orðum og orða­sam­böndum í tungu­mál­inu. (Einfalt, ekki satt?) Okkar eigin skoð­anir og mein­ingar skipta engu máli í því sam­hengi. Þetta snýst ekki um okkur per­sónu­lega. Ég held ekk­ert að allir hér inni sem kalla vissa plöntu gyð­ing séu ras­istar. Ég vona hins vegar að sem flestir kalli hana eitt­hvað annað þegar þeir fræð­ast um hvaðan nafn­giftin kemur  Af því að, og ég end­ur­tek, Þegar við notum orð eða orða­sam­bönd sem eiga rót í ras­isma, erum við að við­halda rasískum orðum og orða­sam­böndum í tungu­mál­inu“. Svona hljóm­aði inn­legg Þóreyjar sem gerði svo allt vit­laust.

Viðbrögðin

Haf­steinn sagði frá því hvaða nafn hann not­aði í staðin: „Ég nota „Flökku­jói“ yrir Tredescantia flu­mi­ensis og mun nota það áfram sem offísí­ellt nafn – og „skeið­blað“ sem auka­nafn. Er ein­hver á móti því hér? Ef svo, góð­fús­lega látið vita og komið með eitt­hvað betra!“. Gyða svarar Haf­steini: „Nei það er óþarfi flökku­jói er ágætt og gyð­ing­ur­inn gang­andi líka, mamma kenndi mér á blóm og not­aði alltaf þetta nafn ég sé ekk­ert athuga­vert við það., þetta er engan­veg­inn ras­ismi og rangt að bendla þessu blóma­nafni við ras­isma!“. Sveindís vandar Þórey ekki kveðj­urnar: „Kveddu þá bara grúbb­una ef þú vilt, hún er engin skylda, ef þetta fer fyrir brjóstið á fólki er það miður, en that’s life  Þarf að saurga PLÖNTU grúbbu með ein­hverju Political Correctness kjaftæði, þetta eru PLÖNTUR. Og gang­andi gyð­ingur, eða gyð­ing­ur­inn gang­andi eru ekki ljót eða niðr­andi orð. Ef þetta væri kallað „skítugi gyð­ing­ur­inn“ eða „gyð­ing­ur­inn útlægi“ væri þetta kannski þess virði að minn­ast á, kannski. Af hverju ekki að taka slag­inn og eyða orkunni sinni fyrir eitt­hvað sem skiptir meira máli, eins og fólk, eða dýr ? nei ég bara spyr. En vel gert hjá þér að halda þess­ari fárán­legu umræðu áfram á lífi, ala á dramanu“.

Guðlaug tekur undir með Svein­dísi: „Rétt Gyðingur er ekki af rasískum toga – Júði er allt annað mál“.  Gísla er nóg boðið og svarar Svein­dísi: „Það er búið að benda á það hér að þetta nafn er eldra en nas­ismi Hitlers og teng­ist því ekk­ert. Það er eig­in­lega verk­efni Admin að eyða þessum þræði. Merki­legt hve oft fólki tekst að draga alls­konar óþverra inn í ann­ars fínar grúbbur“.

Ragn­heiður segir: „Þvílík von­brigði að sjá þessa umræðu hér. Skiptir það fólki meira máli að halda í nafn plöntu “afþvi­þannig­hef­ur­það­alltaf­verið” en að ein­fald­lega hugsa um þetta og sjá teng­ing­una sem aug­ljós­lega er nei­kvæð og niðr­andi. Glatað að taka þessu eitt­hvað per­sónu­lega líka“. Vala seg­ist þekkja einn gyð­ing: „Ég þekki bara einn mann sem er gyð­ingur, ég spurði hann hvað honum fynd­ist um þessa umræðu og hvort þetta nafn á blóm­inu væri rasískt fyrir hann eða aðra gyð­inga sem hann umgengst. Honum finnst þessi umræða vera algjör­lega út í hött og hafi ekk­ert með ras­isma að gera. Reyndar finnst þeim þetta blóma­mál gera lítið úr raun­veru­legum ras­isma og setja hann niður á eitt­hvað plan sem er þeim ekki að skapi. Ég mun áfram kalla blómið gyð­ing (inn gang­andi) Þið ráðið svo öll hvað þið gerið“. Þuríður seg­ist ætla að halda áfram að kalla plönt­una gyð­ing­inn gang­andi: „Mér er sko nokk sama hvað fólki finnst, plantan er og verður undir þessu heiti hjá mér, Gyð­ing­ur­inn Gangandi. Þetta er nefni­lega planta ekki mann­eskja“.

Steve sér ekki kyn­þátta­hat­rið: „Hvað í ósköp­unum er rasískt við að nefna Gyðinga? Eða Kínverja? Eða Íslend­inga þess vegna? Þjóðir eru mis­mun­andi en það hefur ekk­ert við ras­isma að gera. Og þó að ein­hver sak­laus planta heiti skrýtnu nafni frá fornu fari, ber ekki að túlka það sem ras­isma. Hvað er eig­in­lega að bögga þig?“. Dýrleif liggur alls ekki á sínum skoð­unum: „Eigum við ekki bara að kalla Adolf Inga eitt­hvað annað þar sem fyrra nafn hans er það sama og skírn­ar­nafn Hitlers? Hvernig væri að fara að hugsa hlut­ina frá öðru sjón­ar­horni, t.d. mik­il­vægi þess að þurrka ekki út orð eða orða­sam­bönd til þess að við áttum okkur á teng­ingu við sög­una og eiga þannig áminn­ingar um hvað sé rétt og hvað sé rangt? Hvar endum við ef við höldum áfram á þeirri leið að stunda sífelldar hreins­anir á tungu­máli og sögu (t.d. með að taka niður styttur o.fl. sem minna á slæma tíma)? Er ekki betra að kenna var­úð­ar­orðin með í stað hreinsana?“.

Fjöldin allur af ummælum er undir færsl­unni og hana má nálg­ast í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ