Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðríður: „Of margir læknar eru í faginu peninganna vegna og einn dró sambýlismann minn til dauða“

Guðríður: „Of margir læknar eru í faginu peninganna vegna og einn dró sambýlismann minn til dauða“

Lára Guðrún Jóhönnu­dóttir hefur vakið mikla athygli fyrir færslu sína á sam­fé­lags­miðli og ekki hafa athuga­semdir við skrif hennar vakið minni athygli.

Talað er um lækna.

„Fyrir tæpu ári drap læknir mig næstum því vegna þess að ég var of snyrti­leg,“ skrifar Lára og bætir við:

„Ég var að deyja hægum og kvala­fullum dauða úr ógreindri syk­ur­sýki eitt. Þá þykknar í manni blóðið og þetta svipar til hæg­fara heila­blæð­ingu,“ skrifar hún og nefnir að „ég var búin að missa fjórtán kíló á nokkrum mán­uðum og helm­ing­inn af hár­inu; Drakk sextán lítra af vökva á dag vegna djöfla­þorsta; var með spasma í fótum – sár sem höfðu ekki gróið vikum saman; sveppa­sýk­ingar, og hug­ræn geta var nær engin: Og fleiri ein­kenni sem fylltu A4 blað.“

Lára seg­ist hafa gengið á „milli lækna; alltaf sama svar: „Bara streita.“ Kal­íum­gildi voru það lág að fólk er lagt inn á spít­ala með hraði og gefið inn­gjöf i æð til að koma í veg fyrir hjarta­stopp eða að lungu falli saman. Tennur voru líka byrj­aðar að losna.“

Hún segir að „lækn­ir­inn huns­aði blóð­gildi og kall­aði þau til­fallandi. Hlustaði ekki á mig og reyndi ítrekað að finna út hvað ég væri að gera sjálfri mér, og spurði: „Notarðu áfengi? Mis­not­arðu lyf? Ertu með átröskun?“

Að mati Láru var hún of „snyrti­leg. Og vel að máli farin. Ég kunni að tjá mig og leit ekki út fyrir að vera deyj­andi; en örvænt­ing­ar­full í aug­unum. Hefði dáið í svefni milli jóla- og nýárs ef hjúkr­un­ar­fræð­ingur á krabba­meins­deild hefði ekki bent mér að láta mæla blóð­sykur.“

Og þá kom ásstæða veik­inda Láru í ljós: Syk­ur­sýki eitt.

Hún telur alger­lega „orðið tíma­bært að sleppa tök­unum af for­dómum og fyrir fram gefnu áliti byggt á útliti fólks. Þegar fólk er lang­veikt þá er gott fyrir sál­ina að klæða sig upp þegar maður á erindi eitt­hvert. Að fara til læknis er eins og að fara í leik­hús. Tilefni til betri umhirðu. Ég sé eftir því að hafa farið í fal­legu vetr­ar­kápuna mína og sett á mig farða og reynt að greiða hárið þannig að það sæist ekki hversu þunnt það væri. Hversu tekin ég væri í and­lit­inu. Það var næstum dauða­dómur minn.“

Eins og áður kom fram hafa skrif Láru vakið mikla athygli og Guðríður Svein­björns­dóttir ritar athuga­semd:

„Því miður held ég að það sé raunin að læknar dæma út frá útliti og klæða­burði, en ekki út frá sögu við­kom­andi. Hver vill fara illa til fara, óhreinn og illa lykt­andi til læknis? En kannski þess þurfi til að fá bót meina sinna? Allt of margir læknar eru í þessu fagi pen­ing­anna vegna en ekki af hug­sjón. Góð byrjun á við­tali hjá lækni: „Það er nú varla mikið að þér – þú lítur svo vel út,“ og eftir „smá pot og pikk“ kemur „ég hef ekki hug­mynd um hvað er að þér.“

Þá kemur spurn­ing frá mér: „Á þá að rann­saka þetta eitt­hvað meira?“ Og „svar almætt­is­ins er nei, en þú ert vel­komin aftur ef þú versnar.“

Ég fór heim slatta fátæk­ari en í sömu stöðu og er þar enn. Það er dásam­legt að geta rukkað háar upp­hæðir fyrir svona þjón­ustu. Þetta á að heita góður tauga­læknir sem afgreiddi mig svona. Ein álíka saga dró sam­býl­is­mann minn til dauða.“

Guðbjörg Ragn­ars­dóttir skrifar einnig athuga­semd og segir að hún „þekki nokkrar svona sögur og einn dró barns­föður minn til dauða.“

Sig­ur­björg Jóns­dóttir sendir sam­úð­ar­kveðju og segir að „allt of margir læknar sem ég hef kynnst eru útbrunnir og löngu hættir að nenna að vinna vinn­una sína, sem er alltof oft, og að sjálf­sögðu lífs­hættu­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ