Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Að sjá barnið sitt visna og deyja er óbærileg lífsreynsla“

„Að sjá barnið sitt visna og deyja er óbærileg lífsreynsla“
Sig­mundur Ernir Rún­ars­son

Sig­mundur Ernir Rún­ars­son tók í dag við sem aðal­rit­stjóri útgáfu­fé­lags­ins Torgs ehf sem og rit­stjóri Frétta­blaðs­ins en Torgi til­heyra Frétta­blaðið, Hring­braut, Mark­að­ur­inn og DV.

„Ég er búinn að vera hér inn­an­dyra frá því Hring­braut sam­ein­að­ist Torgi útgáfu­fé­lagi í upp­hafi síð­asta árs,“ segir Sig­mundur Ernir sem hefur verið sjón­varps­stjóri Hring­brautar. „Við höfum síðan verið að vinna smám saman að því að auka sam­legð­ar­á­hrifin milli allra miðla Torgs og þegar Jón Þórisson, frá­far­andi rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, ákvað að hætta þá fannst eig­endum þessa fyr­ir­tækis vera eðli­legt að leita til mín varð­andi þessi sam­legð­ar­á­hrif þannig að við gætum hámarkað útkom­una úr hverjum og einum miðli. Hlutverk mitt verður fyrst og fremst að sam­eina þessa rit­stjórn end­an­lega.“

Sig­mundur Ernir segir að hann muni í aðal­rit­stjóra­stólnum leggja áherslu á frétta­skýr­ingar, öfl­ugri frétta­þjón­ustu og mynd­rænni fram­setn­ingu.

„Þess utan munum við nýta allt það efni sem til fellur á hverjum degi inn í alla miðl­ana. Fréttir eru ekki eins og geymslu­vara. Þær eiga bara að fara beint í loftið.“

Erfitt að hemja tárin

Sig­mundur Ernir seg­ist vera fréttafík­ill af bæði gamla og nýja skól­anum. Hann sté sín fyrstu skref í fjöl­miðla­heim­inum á Vísi 1981 en þaðan lá leiðin á Helg­ar­póst­inn og loks á RÚV árið 1985 þegar hann, Ómar Ragn­ars­son og Agnes Braga­dóttir sáu um sjón­varps­þátt­inn Á líð­andi stundu. „Það var á þeim tíma þegar áhorf á svo­leiðis þætti var 85-90%.“

Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og Sig­mundur Ernir verið áber­andi í fjöl­miðla­heim­inum fyrir utan nokkur ár þegar hann sat á Alþingi fyrir Sam­fylk­ing­una.

Það er oft talað um fjöl­miðla­bakt­er­í­una sem erfitt er að losna við; kannski ætti frekar að tala um fjöl­miðla­veiru þar sem oftar er auð­veld­ara að losna við bakt­eríu heldur en veiru. Aðal­rit­stjór­inn er beð­inn um að lýsa þess­ari bakt­eríu.

„Þetta er tak­marka­laus for­vitni og ofboðs­leg eft­ir­sókn eftir því að taka eftir því sem er að ger­ast í sam­fé­lag­inu. Ég hef stundum sagt að það séu for­rétt­indi að skrifa Íslands­sög­una og mann­kyns­sög­una jafn­óðum og hún ger­ist og það er það sem við erum að gera í þessu fagi. Við erum jafn­framt að upp­lýsa og afhjúpa sem og að sýna sam­fé­lagið eins og það er í raun og sann en ekki eins og það hefði átt að vera eða gæti verið. Þess vegna er svo mik­il­vægt að sýna sam­fé­lagið í breidd sinni og alla duttl­unga þess. Þegar ég var að byrja í blaða­mennsku árið 1981 var varla til nokkur sam­kyn­hneigður maður eða ofbeld­is­maður á heim­ilum. Menn þögg­uðu allt niður. Það átti ekki að sýna sam­fé­lagið eins og það var í raun og veru en með auk­inni rann­sókna­blaða­mennsku tókst okkur að afhjúpa sam­fé­lagið eins og það er. Og það er meg­in­hlut­verk fjöl­miðla á hverjum tíma að segja frá því hvernig sam­fé­lagið er í raun og sann til þess að fólk geti tekið upp­lýsta ákvörðun um hverju það vill breyta og hvernig það vill breyta.“

Þegar Sig­mundur Ernir er spurður hvað nýtt starfi muni þýða fyrir hann seg­ist hann fyrst og fremst ætla að njóta þess að vera búinn að afla sér um 40 ára reynslu í heimi fjöl­miðla á dag­blöðum, í útvarpi og sjón­varpi og svo á inter­net­inu und­an­farin ár og miðla af þeirri reynslu. „Það eru út af fyrir sig for­rétt­indi að geta miðlað af reynslu og ég vona að mér tak­ist það þokka­lega.“

Hann segir að þau séu mörg atriðin sem hægt sé að rifja upp þegar hann er spurður hvað sé eft­ir­minni­leg­ast á ferl­inum, bæði skemmti­leg og sorg­leg.

„Erfiðast var að lesa fréttir um þá sem höfðu lát­ist í snjó­flóð­unum í Súðavík og á Flateyri.

Þá átti ég mjög erfitt með að hemja tárin og grát­inn. Skemmti­leg­ustu mómentin eru síðan að fylgj­ast með glæsi­legum sigrum hæfi­leik­a­ríks fólks í póli­tík og á for­seta­stóli. Síðan eru það alls kyns atvik út um allt land. Stór þáttur þessa starfs teng­ist þeim for­rétt­indum að kynn­ast öllu land­inu og fólki til sjávar og sveita. Ég held ég hafi komið til allra byggða­svæða á Íslandi og meira og minna allra óbyggða. Og það er nátt­úr­lega ómet­an­legt.“

Að vera manneskja

Sig­mundur Ernir nefndi tárin. Grátinn. Hann þekkir bæði tár og grát per­sónu­lega en hann missti elstu dóttur sína árið 2009. Hann er spurður hvort sú reynsla hafi áhrif á það hvernig hann tekur á erf­iðum málum í vinn­unni og hvernig hann talar við við­mæl­endur sem þekkja sorg­ina.

„Öll reynsla er mik­il­væg og líka sú erf­iða. Hún mótar mann og maður er fyrst og fremst mót­aður af mót­læti. Það gerir mann að mann­eskju. Og í þessu starfi sem og svo mörgum öðrum þá má maður aldrei gleyma mann­eskj­unni. Það er einn mik­il­væg­asti fylgi­nautur manns í starfi – að vera mann­eskja.“

Hvað er dauð­inn í huga hans?

„Hann er held ég að því leyti end­an­legur að við­kom­andi verður ekki til staðar lengur nema í minn­ing­unni. Og minn­ingin heldur fólki á lífi.“

Sorgin fylgir honum í gegnum lífið. Hvernig tekst Sig­mundur Ernir á við hana?

„Með því að hugsa fal­lega um dóttur mína. Hugsa um það góða og fal­legar sam­vistir á hverjum degi. Og það þarf líka að næra þakk­lætið. Eitt það mik­il­væg­asta í líf­inu er að vera þakk­látur fyrir það sem maður fær en van­þakk­læti er ein­hver mesta böl.“

Miss­ir­inn bæði mót­aði hann og styrkti.

„Ég lærði að hemja reiði. Ég lærði að lifa með missi og ég fékk að kynn­ast því sem stundum hefur verið kallað órétt­læti þessa heims.

Að leggja erf­iðan sjúk­dóm á mann­eskju er kannski það erf­ið­asta sem til er í líf­inu. Ég tala nú ekki um hrörn­un­ar­sjúk­dóm. Að sjá barnið sitt visna og að lokum deyja er óbæri­leg lífs­reynsla.“

Fjallgöngur í Ölpunum

Sig­mundur Ernir Rún­ars­son á sér líf eftir hefð­bund­inn vinnu­dag sem nær oft langt fram á kvöld. Hann er kvæntur Elínu Sveins­dóttur dag­skrár­fram­leið­anda, sex barna faðir og á eitt afa­barn. Og hann á sér áhuga­mál. Það er íslensk nátt­úra. Fjall­göngur. Og svo skrifar hann. Yrkir.

„Ég fer á fjöll og reyni að hreyfa mig eins og ég get. Ég er í stór­kost­legum göngu­hópi sem fer út um allar trissur; til óbyggða og inn til dala og upp til fjalla. Það er svo mín núvit­und þegar ég set sím­ann út í horn og yrki. Það er mitt jóga.“

Farangur

Það kemur fyrir

að fólkið doki við

á vega­mót­unum

og átti sig á því

að öllum far­angrinum

sem það er klyfjað

hefur verið pakkað niður

af öðrum.

(Úr ljóða­bók­inni Skálda­leyfi.)

Fjöllin. Hvað upp­lifir Sig­mundur Ernir á fjöllum?

„Virðingu fyrir nátt­úr­unni og afrekum for­feðra okkar sem fóru um þetta harð­býla land. Það eru ótrú­lega merki­legar stundir sem nútíma­mað­ur­inn upp­lifir við að vera án síma og tölvu; að vera laus við þetta áreiti þessa sígjamm­andi heims.“ Og það upp­lifir hann vissu­lega á fjöllum.

Hvað er íslensk nátt­úra?

„Hún er óend­an­legur fjöl­breyti­leiki.“

Á aðal­ri­st­jór­inn upp­á­halds­blóm á fjöllum?

„Holta­sól­eyin er alltaf í upp­á­haldi. Að sjá hana vaxa upp um öll firn­indi og lifa íslenska sum­arið af; það eru galdrar.“

Hvað með lykt­ina? Hljóðin?

„Þau eru besta sin­fónía sem hægt er að leyfa eyr­unum að hlusta á. Óend­an­lega fjöl­breytt. Og líka þögnin.“

Jú, Sig­mundur Ernir Rún­ars­son er þekktur fjöl­miðla­maður. Opinber per­sóna. Hvað heldur hann að fólk viti ekki um hann?

„Ég nota ekki sjampó og ég hef aldrei gengið í galla­buxum.“

Nei. Engar galla­buxur. Hann er spurður um stíl­inn. Fata­stíl­inn. Hann er stundum á skjánum í litaglöðum jakka­fötum. Skraut­legum sokkum.

„Ég fer bara í þau föt sem eru hrein­ust á morgn­ana. Ég er ekki upp­tek­inn af því sem ég klæð­ist; reyndar er ég skáld­legur í spjall­þátt­unum mínum, frétta­legur í frétta­þátt­unum og sport­legur í fjalla­þátt­unum. Þannig að ég reyni að skipta um föt eftir því sem efni þátt­anna krefur.“

Upp­á­halds­litur?

„Hann er nú rauður myndi ég segja.“

Sig­mundur Ernir er kannski búinn að fá drauma­starfið. Aðal­rit­stjóri. Hann er spurður hvað hann dreymdi í nótt.

„Mig dreymdi fjall­göngur í Ölpunum svo merki­legt sem það er. Það eru alltaf ein­hverjar brekkur í líf­inu sem mann dreymir um.“

Var hann á upp- eða nið­ur­leið?

„Ég held ég hafi verið bæði á upp­leið og nið­ur­leið; bara eins og lífið er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ