Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Saga Katrínar: „Páll Magnússon rak mig hundveika og ég sá enga aðra leið en að taka eigið líf“

Saga Katrínar: „Páll Magnússon rak mig hundveika og ég sá enga aðra leið en að taka eigið líf“

Katrín Bald­urs­dóttir odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður ber það ekki með sér að hafa eitt sinn háð harða og grimmi­lega bar­áttu við dauð­ann.

„Ég hef öðl­ast gott og fal­legt líf á und­an­gengnum árum; ég er full af þakk­læti og auð­mýkt og nú er komið að mér að berj­ast fyrir aðra. Ég er með mikla rétt­læt­is­kennd og öðl­ast ein­hvern ofur­kraft þegar kemur að bar­átt­unni fyrir þá sem brotið er á dag frá degi með ofbeldi og kúgun.“

Ekki er annað hægt að segja en að Katrín hafi notið vel­gengni í líf­inu, þrátt fyrir mikil veik­indi og hræði­lega lífs­reynslu.

„Ég hef haft tæki­færi til að stunda það nám sem mig hefur langað til og hef fengið að starfa við það sem mér finnst skemmti­legt og mér hefur alltaf gengið mjög vel í skóla; Þar var mitt athvarf; þar fékk ég alltaf mikla hvatn­ingu og upp­örvun, enda er ég búin að vera í skóla nán­ast allt mitt líf. Ekki til þess að verða rík, heldur til að njóta þeirra for­rétt­inda að gera það sem mér finnst skemmti­legt,“ segir Katrín, sem lauk stúd­ents­prófi frá MH og fór eftir útskrift í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands,“ og bætir við:

„Ég er á því stjórn­mála­á­hugi minn sé í gen­unum, en afi minn, Óskar Jónsson frá Vík í Mýrdal, var þing­maður fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í Vestur-Skafta­fells­sýslu. Þá var pabbi minn, Baldur Ósk­ars­son, atvinnupóli­tíkus og lengi fram­kvæmda­stjóri Alþýðu­banda­lags­ins. Mamma mín, Hrafn­hildur Guð­munds­dóttir leik­kona og hjúkr­un­ar­fræð­ingur, er líka mjög póli­tísk og segja má að nán­ast öll umræðan á heim­il­inu hafi snú­ist um stjórn­mál.“

Á fyrstu árum Katrínar ólst hún „reyndar upp hjá afa og ömmu hér í Reykja­vík, en þar var líka mikið talað um þjóð­mál.“

Eftir að hafa lokið námi sínu í stjórn­mála­fræði við H.Í. „fædd­ist sú hug­mynd hjá mér að verða blaða­maður; ég upp­lifði sterka þörf til að verða full­trúi fjórða valds­ins gagn­vart almenn­ingi; að upp­lýsa fólk um hvernig þjóð­fé­lagið virkar í raun og veru og hvernig kaupin ger­ast á eyr­inni. Í fram­haldi af því ákvað ég, ásamt vin­konu minni Jenný Axels­dóttur, að gefa út blað, sem ég held að hafi verið fyrsta frí­blað á Íslandi. Það hét NÚ“

Katrín byrj­aði á „frétta­stofu RÚV í sum­ar­afleys­ingum, og ári seinna í afleys­ingum á Þjóð­vilj­anum sál­uga.

Hún segir að pen­ingar hafi aldrei skipt hana mig máli:

„Mér leið­ast þeir, en þarf að sjálf­sögðu að eiga í mig á á. Svo við Jenný seldum NÚ og ég réð mig til starfa sem blaða­maður á DV, og það var skemmti­legt.“

Þá hófst tutt­ugu ára fer­ill Katrínar „sem blaða­maður við hina ýmsu fjöl­miðla, en ég hætti síðan sem fjöl­miðla­maður í fullu starfi eftir að hafa unnið á Stöð 2 og Bylgj­unni í fimm ár sem frétta­maður, þá var ég þrjá­tíu og níu ára gömul. Og það end­aði illa; með algjöru skips­broti. Ég bara hrundi, en í dag heitir það kulnun. Starfinu fylgdi mikil streita enda var sífellt verið að hag­ræða, reka fólk og krefj­ast meiri afkasta af hverjum og einum. Þarna hætti blaða­mennska að vera fagið sem ég ætl­aði að stunda og fannst svo eft­ir­sókn­ar­vert. Þetta var árið 1990 þegar nýfrjáls­hyggjan hafði rutt sér til rúms í íslenskt efna­hags­kerfi. Aðal­at­riði hjá eig­endum var hagn­aður og arður. Allt þetta mann­eskju­lega hvarf og sem og mögu­leik­inn til að stunda alvöru blaða­mennsku og rann­sóknir; það mátti ekki rugga bátnum eða hamla þeim ríku í að safna meiri auð.“

Auk þess var ég í mjög erf­iðu hjóna­bandi – var hald­inn full­komn­un­ar­áráttu og var þessi „ofur­kona“ sem þá var kallað. Einn dag­inn vakn­aði ég svo kvíð­inn að ég var stjörf; gat ekk­ert gert og alls ekki farið í vinn­una. Þá hafði ég hundsað ýmis lík­am­leg ein­kenni sem voru farin að láta á sér kræla og ég hafði lítið sem ekk­ert sofið í heila þrjá mán­uði. Þarna var ég „gránduð“ eins og sagt er og gat ekki meir. Ég er svo kapp­söm að ég fór allt of snemma að vinna aftur og það sáu allir að ég var enn þá veik.“

En „í sam­ræmi við nýja mann­fjand­sam­lega stefnu í starfs­manna­málum, kall­aði Páll Magn­ús­son þáver­andi frétta­stjóri mig á teppið og rak mig; gaf mér ekki einu sinni mögu­leika á að fara í launa­laust leyfi til að jafna mig. Sam­starfs­mönnum mínum fannst þetta ansi gróft að reka veika mann­eskju. Á þessum tíma vissi ég ekk­ert um rétt­indi mín og varð þess vegna af ýmsu sem ég hefði átt rétt á. Það var þá sem ég ákvað að ég myndi ein­hvern tíma í fram­tíð­inni hella mér í rétt­inda­bar­áttu fyrir launa­fólk í land­inu.“

Segja má að allt hafi hrunið í lífi Katrínar á sama tíma.

„Vinnan fór, hjóna­bandið fór og heilsan fór. Ég átti tvö ung börn þegar þarna er komið við sögu, árið 1998. Það er nú ákveðið afrek að fara frá því að vera í þotu­lið­inu á Íslandi og í að vera atvinnu­laus, frá­skil­inn, fátæk og fár­veik með tvö börn. Allt á nokkrum mán­uðum,” segir Katrín.

„Þarna kynn­ist ég því hvernig það er að vera fátæk og veik og jafn­framt með sífelldan afkomu­ótta; það er hryll­ingur.“

Í dag er Katrín í Sós­í­alista­flokknum „til að berj­ast fyrir fólk sem þarf að upp­lifa sömu eða svip­aða hluti og ég gerði á sínum tíma; ég hafði ekki efni á að senda börnin í tóm­stundir og reyndi að betla af ætt­fólki til að þetta myndi bitna sem minnst á börn­unum. En auð­vitað bitn­aði allt þetta ástand á börn­unum. Alls konar tog­streita – vand­ræði – blank­heit, og ég í mjög slæmu ástandi; var farin að drekka allt of mikið, því það var svo þægi­legt að slökkva á van­líðan með því að fá sér í glas.“

En Katrínu var ekki ætlað að bug­ast; hún reif sig upp og hóf nám í kennslu­fræði í H.Í. og það reynd­ist henni far­sælt.

„Ég fékk gott starf sem kennslu­stjóri í nýrri braut, upp­lýs­inga- og fjöl­miðla­braut við Fjöl­brauta­skól­ann við Ármúla; þetta var geggjað og ég hann­aði þessa braut með nem­endum mínum, en þetta er kennslu­að­ferð sem heitir „Learning by doing“ og það var dálítið skemmti­legt að oft kunnu nem­end­urnir mikla meira en ég.“

En því miður fyrir Katrínu hætti hún ekki að halla sér að flösk­unni, og svo þegar ekki fékkst fjár­magn til að nem­endur gætu lokið námi á braut­inni, þá var fjand­inn laus. Ég mátti alls ekki við þessu og missti alveg tökin; var orð­inn bull­andi alkó­hólisti.“

Og ekki er öll sagan sögð: Aftur hrundi allt hjá Katrínu. Börnin fluttu frá henni, Baldur Eiríks­son þá fimmtán ára fór til pabba síns og Lovísa Eiríks­dóttir sem var sautján ára fór að búa sjálf.

„Ég sagði bara við þau að ég gæti ekki sinnt þeim. Og þau fóru og ég fór að drekka ofboðs­lega illa og missti bæði and­lega og lík­am­lega heilsu. Þvældist á milli stofn­ana og með­ferð­ar­heim­ila í heil þrjú ár. Ég hef margoft Þurft að leggj­ast inn á Lands­spít­al­ann og fjórum sinnum með sjúkra­bíl.“

Svart­nættið varð algjört og Katrín sá enga aðra leið á þessu tíma­bili en þá að „taka eigið líf. Og það mun­aði nán­ast engu. En þá gerð­ist það stór­und­ar­lega, að það var eins og kippt væri í mig. Mér var ekki ætlað að fara þarna.“

Katrín var „orð­inn svo veik þarna undir rest­ina að fólk hélt að ég væri alveg farin. Undir það síð­asta var ekk­ert eftir. Ég hríðskalf og gat varla hreyft mig; gat ekki skrifað; gat ekki hugsað; gat ekk­ert. Ég sat í ein­hverju her­bergi á Lands­spít­al­anum og horfði tómum augum á hvítan vegg­inn og hugs­aði að þetta væri búið spil.

Eftir þetta hófst upp­risan í lífi Katrínar. Hún hellti sér af krafti í AA og þurfti þá að horfast í augu við það sem hún hafði flúið allt sitt líf: Áföllin.

Ég varð fyrir kyn­ferð­is­of­beldi aðeins fimm ára gömul og var mjög van­sælt barn. Afi og amma dýrk­uðu mig og vildu allt fyrir mig gera, og ég skildi ekki í æsku af hverju mér leið svona illa. Ég upp­götv­aði ekki fyrr en upp úr þrí­tugu hvað hafði gerst. Þetta er svaka­legt. Að beita börn kyn­ferð­is­legu ofbeldi er ein­hver alvar­leg­asti glæpur sem hægt er að fremja. Það verður að gera stór­á­tak í að vernda börn, konur og menn fyrir ofbeldi. Ég upp­lifði ofbeldi líka seinna á ævinni og ég sá það eftir á að ég kunni engin mörk. Síðan var sonur minn nán­ast dáinn í hönd­unum á mér aðeins tveggja ára gam­all og ég hafði heldur ekki unnið úr því áfalli.“

Katrín skrif­aði sig frá þessu með því að gefa út ljóða­bók sem heitir „Þak ham­ingj­unnar“ og fjallar um þessa erf­iðu reynslu hennar og við tók þrot­laust upp­bygg­ing­ar­starf hjá henni, í þremur tólf spora sam­tökum; sál­grein­ingu og lík­am­legri upp­bygg­ingu.

En svo fór Katrín „þangað sem ég vissi að ég myndi njóta mín. Aftur í Háskóla Íslands og lauk þar masters­gráðu í atvinnu­lífs­fræðum. Rit­gerðin mín fjallað um verka­lýðs­hreyf­ing­una, nema hvað. BA rit­gerðin mín í stjórn­mála­fræð­inni fjallar um Stjórn hinna vinn­andi stétta, sem var við völd 1934 til 1938, þannig að það er nokkuð ljóst hvar hjarta mitt slær.“

Katrín seg­ist ein­fald­lega „vera gang­andi krafta­verk. Þetta átti ekki að vera hægt. Ég er sátt í eigin skinni, lífs­glöð og kát. Það hjálpar mér einnig hvað ég er hug­rökk og til í að takast á við krefj­andi verk­efni. Ég er ákveðin en tekst nokkuð vel að vinna með fólki og læt aldrei karl­rembur kveða mig í kút­inn. Ég nýt mín í flokknum og er að vinna með frjóu, skemmti­legu og kláru fólki. Ég verð að minn­ast sér­stak­lega á Gunnar Smára Egilsson, því öðrum eins dugn­að­ar­forki hef ég aldrei á ævinni kynnst, og hef ég þó starfað með þeim mörgum. Það verður fengur af honum á Alþingi.“

Katrín segir að hún muni gera allt sem í hennar valdi stendur til að láta „gott af mér leiða svo allir geti lifað mann­sæm­andi lífi. Það er ábyrg hag­stjórn,“ segir Katrín sem hlakkar til kosn­inga­bar­átt­unnar sem fram undan er:

„Ég er bjart­sýn á að okkur í Sós­í­alist­anum gangi vel. Við sláum annan og mun mann­eskju­legri tón en aðrir flokkar og viljum rífa alþýðu Íslands til vegs og virð­ingar, eins og hún á skilið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ