Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bjarni bálreiður út í Svandísi: „Ríkishugsun blindar sýn og Svandís alfarið á móti einkaframtaki“

Bjarni bálreiður út í Svandísi: „Ríkishugsun blindar sýn og Svandís alfarið á móti einkaframtaki“

Mikla athygli og mikla reiði vöktu orð Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra þegar hann gagn­rýndi starf­semi heil­brigð­is­kerf­is­ins; sagði óásætt­an­legt að kerfið réði ekki við yfir­stand­andi bylgju kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins þótt lang­flestir séu bólu­settir í bak og fyrir; þetta kom fram í við­tali RÚV við Bjarna fyrir fimm dögum síðan.

Bjarni tók skýrt fram að slæmt ástand á Land­spít­al­anum væri ekki til­komið vegna ónógra fjár­veit­inga til spít­al­ans; virt­ist hann gagn­rýna lélega vinnu stjórn­enda spít­al­ans og starfs­fólk þess.

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Björn Ingi Hrafns­son er á öðru máli hvað varðar túlkun á orðum Bjarna, en hann var gestur í hlað­varpi Þjóðmála og ræddi málin við sjálf­stæð­is­menn­ina Gísla Frey Val­dórs­son og Stefán Einar Stef­áns­son.

Björn Ingi heldur því fram að þarna hafi Bjarni verið að gagn­rýna Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra, en ekki stjórn­endur og starfs­fólk Land­spít­al­ans, eins og margir hafa haldið fram.

Það er mat Björns Inga að Bjarni „hafi verið að gagn­rýna heil­brigð­is­ráð­herra; að mínu mati getur fjár­mála­ráð­herra ekki varpað ábyrgð á stjórnandur Land­spít­al­ans, því ef rík­is­stjórnin telur stjórn­anda ekki vera að standa sig í stykk­inu þá skipta hún ein­fald­lega um stjórn­anda. Það sem hann er að gagn­rýna er heil­brigð­is­ráð­herr­ann í rík­is­stjórn­inni sem hann situr í, Svandísi Svav­ars­dóttur.“

Björn Ingi nefndi að „í des­em­ber sam­þykkti fjár­mála­ráð­herra einn og hálfan millj­arð til að leysa frá­flæð­is­vanda spít­al­ans; það voru einka­að­ilar sem buðu fram þjón­ustu sína – Sóltún öldr­un­ar­heim­ilið; það var rætt um Hótel Sögu og Heilsu­vernd bauð hús­næði í Urð­ar­hvarfi; pen­ing­arnir voru til.“

Hann sagði einnig að „Land­spít­al­inn var til í þetta vegna þess að það skiptir máli fyrir hann að geta tekið á móti nýjum sjúk­lingum. Starfs­fólkið þar vill ekki vera í patt­stöðu. Þarna er spurn­ing um heil­brigða skyn­semi en samt fást ekki svör og staðan er áfram þessi. Leigusal­inn í Urð­ar­hvarfi gafst upp á bið­inni varð­andi það úrræði sem Heilsu­vernd ætl­aði að bjóða.“

Þá sagði Björn Ingi einnig að „málið hafi ekki verið leyst vegna and­stöðu í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu við að vinna með einka­að­ilum af hvaða tagi sem er.

Og bætti við:

„Í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu er mikil and­staða við einka­fram­tak; hvort sem það eru frjáls félaga­sam­tök eins og Krabba­meins­fé­lagið eða SÁÁ, eða einka­rekin fyr­ir­tæki sem hafa starfað í ára­tugi; eins og  Domus Medica og Lækna­setrið; allt aðilar sem eru greini­lega ekki æski­legir.“

Og þessi „rík­is­hugsun er að blinda mönnum sýn og það er þess vegna sem Bjarna rennur í skap núna; að Land­spít­al­inn og heil­brigð­is­ráðu­neytið séu að bera fyrir sig frá­flæð­is­vand­ann sem er ástæða þess að inn­lagnir eru að sliga spít­al­ann, og þá er auð­vitað ekki skrýtið að hann og fleiri ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni segi, bíðum nú við, var ekki búið að leysa þetta? Eftir hverju var beðið?“

Bætti við að lokum:

„Ég held að það sé eitt af því sem á að rann­saka núna: Af hverju voru þeir fjár­munir ekki nýttir sem voru settir í það sér­stak­lega að leysa frá­flæð­is­vanda Land­spít­al­ans?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ