Flemming Mogensen, 51 árs barnsfaðir Freyju Egilsdóttur, hefur verið ákærður fyrir morðið á Freyju. Hann játaði á sig morðið og reiknar saksóknari með því að svo verði áfram þannig að réttarhöldin gangi fljótt fyrir sig. Freyja var aðeins 43 ára þegar hún var myrt.
Flemming er ákærður fyrir að hafa myrt Freyju með því að kyrkja hana þann 29. janúar síðastliðinn. Þá er honum gert að hafa sundurlimað lík hennar og reynt að fela það á heimili þeirra og úti í garðinum.
Sjá einnig: Þetta er maðurinn sem myrti Freyju – Leiddur fyrir dómara með brotin gleraugu
Freyja ólst upp á Selfossi. Hún flutti til Árósa í Danmörku árið 1999 og bjó þar fram í andlátið. Flestir ættingjar hennar búa á Íslandi en systir hennar býr í Danmörku. Freyja tók síðan upp samband með Flemming sem hefur játað að hafa myrt hana með hryllilegum hætti. Þegar Flemming var leiddur fyrst fyrir dómara voru gleraugu hans brotin.
Flemming, sem á að baki tíu ára dóm fyrir morð, tilkynnti lögreglu þann 2. febrúar að Freyja væri týnd. Sama dag var hann handtekinn grunaður um að hafa orðið henni að bana. Síðan hefur hann sætt gæsluvarðhaldi.
Danskir fjölmiðlar fjölluðu um fyrra morð Flemming á tvítugri barnsmóður sinni í nóvember 1995. Hann er sagður hafa stungið hana minnst 18 sinnum en þá var sonur þeirra tveggja ára gamall. Morðið átti sér stað í Odder, skammt frá þar sem Freyja fannst myrt á heimili sínu. Fyrir fyrra morðið á barnsmóðurinn hlaut Flemming 10 ára dóm en þá játaði hann strax á sig glæpinn líkt og hann gerði varðandi Freyju.
Sjá einnig: Sorgarsaga Freyju -„Erum í áfalli“-Stúlkan frá Selfossi elskaði flatkökur og íslenska náttúru
Dagsetning réttarhaldanna yfir Flemming liggur ekki fyrir en saksóknari vonar að sakborningurinn játi áfram morðið og því kunni réttarhöldunum að ljúka á einum degi.
Eins og áður sagði var Freyja stúlka frá Selfossi, sem elskaði flatkökur og íslenska náttúru. Síðustu vikur hennar hér á jörðu saknaði hún heimalandsins og mátti skynja að hana langaði heim. Fjölskylda Freyju er yfirbuguð af sorg af þeim fregnum að hún hafi verið myrt.































Athugasemdir