Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Strákar þurfa að borga fyrir bólusetningu gegn kynsjúkdómi: Eiga á hættu að fá krabbamein

Strákar þurfa að borga fyrir bólusetningu gegn kynsjúkdómi: Eiga á hættu að fá krabbamein

Drengjum og stúlkum er mis­munað þar sem kemur að bólu­setn­ingum við HPV, human papill­om­a­virus,  sem er algeng­asti kyn­sjúk­dóm­ur­inn í Banda­ríkj­unum og einn sá algeng­asti í heim­inum. Fólk sem er óbólu­sett gegn HPV er þannig til­tölu­lega lík­legt til að smit­ast ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni. Aftur á móti eyðir ónæm­is­kerfi lík­am­ans sýk­ingum af völdum veirunnar í lang­flestum til­fella innan nokk­urra mán­aða.

Sigríður Elsa Álf­hild­ar­dóttir spyr ein­fald­lega: „Hvers vegna mega strák­arnir okkar smit­ast?“Hún segir að Íslend­ingar hafi sýnt það í far­aldr­inum að þeir treysti vís­ind­unum.

„Ég, sem verð­andi heil­brigð­is­starfs­maður, er gríð­ar­lega þakk­lát fyrir það. Þegar vís­indin sýndu fram á gagn­semi grímunotk­unar þá settum við á okkur grímur. Þegar bólu­efnin komu til sög­unnar létum við ekki okkar eftir liggja heldur flykkt­umst í bólu­setn­ingu. Auðvitað eru það von­brigði að þau tak­marki ekki dreif­ingu veirunnar eins og vonir höfðu staðið til – en fækkun alvar­legra veik­inda og dauðs­falla segir sína sögu,“ segir hún og bendir á að við „Íslend­ingar erum hins vegar ekki allir jafnir þegar kemur að bólu­setn­ingum.

Þvert á móti leyfum við helm­ingi þjóð­ar­innar að smit­ast af veiru sem getur valdið krabba­meini í alvar­leg­ustu til­fell­unum. Strákar á Íslandi fá nefni­lega ekki bólu­setn­ingu gegn HPV, ólíkt norskum kyn­bræðrum þeirra. Hvers vegna mega íslenskir strákar smit­ast og hvers vegna mega þeir smita óbólu­setta ein­stak­linga?“

Sigríður segir að á vef banda­rísku sótt­varna­stofn­un­ar­innar segir að HPV sé algeng­asti kyn­sjúk­dóm­ur­inn. Fólk sem er óbólu­sett gegn HPV er þannig til­tölu­lega lík­legt til að smit­ast ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni. Aftur á móti eyðir ónæm­is­kerfi lík­am­ans sýk­ingum af völdum veirunnar í lang­flestum til­fella innan nokk­urra mán­aða.

„Ef sýk­ing nær hins vegar fót­festu og verður við­var­andi aukast líkur á krabba­meini ef ekki er brugð­ist við. Þannig er HPV-veiran „grunnor­sök for­stigs­breyt­inga- og krabba­meins í leg­háls,“ eins og það er orðað á vef Land­læknis. Af þessum sökum eru íslenskar stúlkur bólu­settar gegn veirunni við tólf ára aldur og er HPV-bólu­setn­ingin þar með hluti af almennum bólu­setn­ingum. Strák­arnir okkar eru hins vegar ekki bólu­settir gegn HPV, þó svo að veiran geti valdið frumu­breyt­ingum sem leitt geta til krabba­meins í hálsi, enda­þarmi og typpi.“

Hún nefnir að „strákar geta vissu­lega fengið bólu­efni gegn veirunni, en þá þurfa þeir að greiða fyrir það úr eigin vasa – ólíkt norskum strákum. Ég er þeirrar skoð­unar að íslenskum strákum eigi líka að bjóð­ast ókeypis bólu­setn­ing við HPV, rétt eins og stelp­unum okkar, á grund­velli jafn­réttis og betri lýð­heilsu. Krabba­mein er lýð­heilsu­vanda­mál sem bæði veldur ein­stak­lingnum skaða sem og sam­fé­lags­legu tjóni. Eigum við þá ekki að reyna að koma í veg fyrir það?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ