Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ráðherrann kýldi Einar á Hótel Borg: „Augntönnin hægra megin brotnaði“

Ráðherrann kýldi Einar á Hótel Borg: „Augntönnin hægra megin brotnaði“

„Taugar Alberts Guð­munds­sonar virð­ast vera að bresta þessa daga og sjálf­stjórn hans er ábóta­vant. Í gær gerð­ist sá alvar­legi atburður að ráð­herr­ann fyrr­ver­andi réðst með bar­smíð að Einari Ólasyni, ljós­mynd­ara Þjóð­vilj­ans, þar sem hann var að skyldu­störfum á fundi stuðn­ings­manna Alberts á Hótel Borg,“ sagði í frétt Þjóð­vilj­ans af því þegar ljós­mynd­ari blaðs­ins varð fyrir árás umdeildasta stjórn­mála­manns Íslands á þeim tíma.

„Ég gekk um sal­inn án þess að taka myndir. Albert var þarna inni. Hann stóð upp og gekk fram í sal­inn og tal­aði þar við ein­hverjar konur sem sátu við borð úti við dyr. Ég gekk á eftir honum og kom mér fyrir milli lang­borðs og veggjar til hægri við inn­göngu­dyrnar í sal­inn og lyfti mynda­vél­inni og tók tvær myndir af Albert. Þegar hann varð þess var að ég var að taka myndir tók hann við­bragð og kom í átt­ina til mín. Hann sló mig tvö högg. Fyrra höggið kom á mynda­vél­ina sem var fyrir and­lit­inu á mér, en síð­ara höggið lenti í and­lit­inu á mér. Augn­tönnin hægra megin brotn­aði,“ ssagði Einar Ólason við Þjóð­vilj­ann. 

Við­burð­ur­inn á Hótel Borg var í til­efni þess að Albert var að kynna nýjan flokk sinn í fram­haldi þess að hann neydd­ist til að segja af sér ráð­herra­dómi vegna spill­ing­ar­mála og hrökkl­að­ist úr Sjálf­stæð­is­flokknum.

Árásin á ljós­myndar­anna á Hótel Borg vakti gíf­ur­lega athygli þegar frá honum var sagt á úvarps­stöðv­unum. Hermt var að þetta hafi orðið til þess að ýmsir hrökt­ust frá sem áður höfðu heitið Alberti stuðn­ingi og gefið góð orð um að taka sæti á lista í nýja flokknum. 

Forsagan

Albert Guð­munds­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og knatt­spyrnu­hetja, varð fyrstur í sögu íslenska lýð­veld­is­ins til að segja af sér ráð­herra­dómi vegna meints mis­ferlis.  Gríð­ar­legt fjöl­miðla­fár varð í aðdrag­anda og eft­ir­málum afsagn­ar­innar. Albert var á þessum tíma ein­hver vin­sæl­asti stjórn­mála­maður lands­ins og sat í efsta sæti fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins til alþing­is­kosn­inga. Þegar skatt­rann­sókn­ar­stjóri gerði alvar­legar athuga­semdir við und­an­skot afslátta hjá heild­verslun Alberts upp­hófst atburða­rás sem mark­aði upp­hafið að  enda­lokum fer­ils þessa vin­sæla stjórn­mála­manns. Jafn­framt varð málið til þess að íslenska flokka­kerfið lék á reiði­skjálfi.  

Afsögn ráðherra

Þegar Albert sagði af sér í mars árið 1987 var það vegna þrýst­ings frá Þor­steini Pálssyni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Skatta­málið hafði lengi verið á vit­orði flokks­manna en það vatt upp á sig með þeim afleið­ingum að Albert þurfti að víkja.

„Þegar þú hefur ekki traust þeirra sem fólu þér umboð til að gegna störfum þá er ekki hægt að gegna þeim störfum lengur,“ sagði Albert við DV eftir að hann baðst lausnar. „Eins og staðan er orðin stend ég á vega­mótum. Annars vegar blasir við mögu­leiki á að hafa frið og róa óánægju­öldur og hins vegar að fara út í stríð, hella olíu á eld­inn. Það brennur eldur í æðum stuðn­ings­manna minna um þessar mundir. Spurn­ingin er: Verður hann til að skaða eða ekki? Við höfum engin efni á því að hafa eld og óánægju geisandi í þjóð­fé­lag­inu, sér í lagi ekki þegar loks­ins ein­hver rík­is­stjórn náði veru­legum árangri …,“ sagði Albert sem þá hafði ekki tekið ákvörðun um að kljúfa flokk­inn. 

Særður og þreyttur

Hann sagði að sér fynd­ist atburða­rásin, sem leiddi til afsagn­ar­innar, hafa verið ein­kenni­leg. „Ég er ekki bitur en ég er særður. Ég er þreyttur. Þetta hefur kostað mig and­vökunætur. Án þess að gera mér beint grein fyrir því er svona eins og kökkur í háls­inum. Ég get ekki neitað því.“

Albert sagð­ist í við­tali við DV hafa gert þau mis­tök að skrá ekki heild­versl­un­ina á nafn Inga Björns, sonar síns, sem hafði ann­ast rekst­ur­inn um ára­bil.

„Það má segja að ég sjái eftir því að hafa ekki orðið við beiðni sonar míns fyrir löngu síðan að skrá fyr­ir­tækið á hans nafn. Það er bara af því að mér fannst það ekki skipta neinu máli og átti ekki von á því að neitt slíkt kæmi upp sem nú er orðið til þess að ég hef þurft að segja af mér ráð­herra­starfi. .“

Albert hafði náð efsta sæt­inu í Reykja­vík í próf­kjöri skömmu áður. Hann sagði að á fund­inum með for­mann­inum hefði ekki verið rætt um breyt­ingu þar.

„Ekkert annað en það að hann átti ekki von á að það yrði nein breyt­ing þar á.“

Albert kvaðst ekki ótt­ast dóm sög­unnar. „Það sem er nú talið sið­leysi eru almennar við­skipta­venjur hér. En ég ótt­ast ekki dóm sög­unnar. Ég var fyrsti atvinnu­knatt­spyrnu­maður Norð­ur­landa.“   

Varð að víkja

Þor­steinn Pálsson sagði í við­tali við DV að hann harm­aði það að til afsagnar Alberts hefði þurft að koma. „En það var ekki hægt að bregð­ast við á annan hátt en þennan,“ sagði Þor­steinn eftir fund þing­flokks­ins þar sem ráð­herr­ann baðst lausnar frá ráð­herra­dómi. „Albert hefur sjálfur stigið þetta skref og beðist lausnar og tekur þannig póli­tíska ábyrgð á því sem gerst hefur,“ sagði Þor­steinn.

Hann gaf ekk­ert út um það að Albert ætti að víkja af list­anum. „Fram­boðs­list­inn í Reykja­vík var ákveð­inn í próf­kjöri. Á herðum for­manns og þing­flokks hvíla þær skyldur að skipa menn til setu í rík­is­stjórn en þeir hafa ekki með skipan ein­stakra fram­boðs­lista að gera.“ 

Málið sem felldi Albert

Afslættir Hafskipa hf. til fyr­ir­tæk­is­ins Alberts Guð­munds­sonar heild­versl­unar á árunum 1984 og 1985 voru ekki taldir fram til skatts á réttum tíma. Fyrri afslátt­ur­inn var híns vegar tek­inn inn í fram­tal 1985 og beðið hefur verið um að sá seinni verði skatt­lagður. Frá þessu segir í grein DV. Þar segir að Ingi Björn Alberts­son hafi greint frá þessu en hann hafði stjórnað fyr­ir­tæk­inu í 12–13 ár. Hann sagði 52 þús­und króna afslátt árið 1983 hafa farið rétta leið í bók­haldið. 117 þús­und króna afsláttur árið 1984 og 130 þús­und krónur árið 1985 hafi ekki verið færðir inn á réttum tíma þar sem fylgi­skjöl hefði vantað þótt gengið hafi verið eftir þeim. Hann afsak­aði sig með því að hafa gleymt þessum inn­borg­unum. Afslætt­irnir voru vegna allra við­skipta heild­versl­un­ar­innar við Hafskip en ekki ein­göngu vegna flutn­inga á áfengi sem versl­unin hefur umboð fyrir. Í DV var rifjað upp að ráð­herra hefði ekki sagt af sér síðan árið 1932, þegar Ísland var enn tengt Danmörku. Þá baðst Magnús Guð­munds­son dóms­mála­ráð­herra lausnar eftir und­ir­rétt­ar­dóm. Hæsti­réttur sýkn­aði hann og þá tók hann aftur við emb­ætti sínu.

Helena snýr heim

En þetta var lognið á undan storm­inum. Það voru stór­tíð­indi í vændum. Stuðn­ings­menn Alberts voru gjarnan nefndir Huldu­her­inn. Helena, dóttir Alberts, kom heim frá Banda­ríkj­unum þar sem hún var búsett og birt­ist á for­síðu DV 25. apríl. Hún var talin stjórna Huldu­hernum, hópi ein­lægra stuðn­ings­manna Alberts. Það lá í loft­inu að sér­fram­boð væri í burð­ar­liðnum. Helena var bros­leit þegar ljós­mynd­ari DV festi hana á filmu á tröppum heim­ilis föður hennar.  

„Helena Alberts­dóttir kom til lands­ins snemma í morgun og hér er hún að koma í föð­ur­hús á Lauf­ás­veg­inum um klukkan hálf­tíu. Því er spáð að Helena sé hingað komin til þess að stjórna kosn­inga­bar­áttu föður síns ef til sér­fram­boðs hans og stuðn­ings­manna hans kemur,“ sagði í mynda­texta.  

Helena var ekki í semmti­ferð til Íslands. Hún var komin til að virkja stuðn­ings­menn föður síns og kljúfa Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Haldinn var fundur á vegum Huldu­hers­ins í Þórs­kaffi, þangað sem um 1.000 manns mættu. Albert til­kynnti tveimur dögum eftir afsögn­ina að hann færi í sér­fram­boð. Borg­ara­flokk­ur­inn var í fæð­ingu. En svo kom babb í bát­inn og minnstu mun­aði að fram­boðið yrði and­vana fætt. 

Háspenna og kjaftshögg

Á fund­inum með stuðn­ings­mönnum á Hótel Borg missti ráð­herr­ann fyrr­ver­andi stjórn á sér. Einari Ólason ljós­mynd­ari fékk kjafts­högg svo varir sprungu og tönn brotn­aði. DV lýsti þessu með til­þrifum. „Alberti var greini­lega illa við að myndir væru teknar af sér á fund­inum og náð­ist sam­komu­lag um að slíkt yrði ekki gert. Einar kom hins vegar seinna og vissi ekki um sam­komu­lagið. Aðdrag­andi höggs­ins var síðan sá að Albert gekk um sal­inn, tók í hendur á fólki og spjall­aði við það. Einar elti hann og byrj­aði að taka myndir með þeim afleið­ingum að Albert réðst á hann. Eftir kjafts­höggið rauk Albert á dyr og yfir á rak­ara­stofu sem þarna er við hlið­ina. Fund­ur­inn leyst­ist hins vegar upp enda fólkið á honum slegið og ráð­villt eftir atburð­inn. Einar Ólason hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann muni kæra Albert fyrir lík­ams­árás,“  sagði DV.

Stórsigur

En Albert náði að bjarga mál­unum. Hann bað Einar ljós­mynd­ara inni­lega afsök­unar og náði að róa mann­skap sinn. Það tókst síðan að koma saman fram­boðs­listum í öllum kjör­dæmum og Borg­ara­flokk­ur­inn var með vel skip­aða lista. Í kosn­ing­unum vann hann síðan stór­sigur, fékk 10,9 pró­senta fylgi og sjö þing­menn. Rík­is­stjórn Stein­gríms Her­manns­sonar missti meiri­hluta sinn og féll. Þar réði mestu að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missti fimm þing­menn, sem þýddi stór­tap. Flokk­ur­inn var klof­inn. 

Albert hrakinn út

En Borg­ara­flokk­ur­inn átti ekki sjö dag­ana sæla á Alþingi. Hann lenti í stjórn­ar­and­stöðu og glímdi við innri átök. Á end­anum hrakt­ist stofn­and­inn, Albert, úr flokknum og varð sendi­herra Íslands í París. Klofn­ingur blasti við. DV lýsti þessu ágæt­lega.

„Við höfum verið að gera okkar ýtrasta, ég og Hregg­viður, til að ná sáttum í þessum flokki. En það hefur því miður borið fremur lít­inn árangur. Ekki batnar það þegar þing­menn hrann­ast í blöðin og láta eins og götu­strákar,“ sagði Ingi Björn Alberts­son. Þeir félagar fund­uðu með for­manni Borg­ara­flokks­ins, Júlíusi Sólnes, í von um að ná sáttum. Það tókst ekki. Um það var rætt að ef ekki næð­ust sættir við þing­flokk­inn myndu tví­menn­ing­arnir ganga til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. 

Úr varð að Ingi Björn Alberts­son og Hregg­viður Jónsson stofn­uðu nýjan þing­flokk undir nafni Frjáls­lyndra hægri­manna og sögðu skilið við Borg­ara­flokk­inn. Haft var eftir Inga Birni að Borg­ara­flokk­ur­inn hefði fjar­lægst stefnu sína og það hefði meðal ann­ars stuðlað að því að faðir hans, Albert Guð­munds­son, hefði hrak­ist til Parísar. 

Upphefð og dauði flokks

En Borg­ara­flokkur Júlíusar Sólnes átti eftir að kom­ast í rík­is­stjórn. Frá 10. sept­em­ber 1989 til 30. apríl 1991 átti Borg­ara­flokk­ur­inn tvo ráð­herra í rík­is­stjórn. En þar með var saga hans full­skrifuð. Flokk­ur­inn bauð ekki fram í þing­kosn­ing­unum árið 1991. Saga Alberts Guð­munds­sonar í stjórn­málum var líka öll. En Ingi Björn Alberts­son, sonur hans, færði sig eftir hæfi­legan umþótt­un­ar­tíma yfir í Sjálf­stæð­is­flokk­inn ásamt Hregg­viði Jónssyni og var end­ur­kjör­inn á þing árið 1991. Aðrir Borg­ara­flokks­menn hurfu af svið­inu og dómur sög­unnar er sá að flokk­ur­inn varð eins­kjör­tíma­bils. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn náði vopnum sínum að nýju.

Tannlæknir ráðherrans

Einar Ólason ljós­mynd­ari rifj­aði upp atvikið á Hótel Borg í við­tali við Stundina. 

„Albert vís­aði mér á sinn eigin tann­lækni en bað mig að bíða með bóta­kröfu fram yfir kosn­ingar,” segir Einar Ólason, fyrr­ver­andi ljós­mynd­ari Þjóð­vilj­ans, um árás­ina á Hótel Borg þegar Albert Guð­munds­son sló hann tveimur höggum og braut í honum tönn.

Einar seg­ist hafa tekið þetta nærri sér á sínum tíma. Árásin hafi verið óvænt og til­efn­is­laus þar sem hann hefði ekki gert annað en að taka af honum ljós­mynd. Ingi Björn, sonur Alberts, og Ásgeir Hannes Eiríks­son, stuðn­ings­maður hans, höfðu sam­band við Einar skömmu eftir atvikið og báðu hann að hitta Albert á heim­ili hans á Lauf­ás­vegi. Einar féllst á það. Hann segir að Albert hafi virst vera miður sín og hann hafi beðist afsök­unar.

„Það var auð­vitað nauð­syn­legt fyrir hann að ná sáttum við mig til að geta haldið áfram með fram­boðið. Ég tók sátta­boði hans og féllst á að bíða með bóta­kröf­una. Það voru mis­tök,” segir Einar.

Hann segir að eftir kosn­ingar hafi ekk­ert gerst varð­andi bæt­urnar. Albert hafði svikið lof­orð sitt. Svo fékk hann hótun frá tann­lækn­inum um að borga eða sæta inn­heimtu­að­gerðum.

„Þá var mér nóg boðið og ég réði lög­mann til að aðstoða mig. Það varð úr að ég ákvað að kæra árás­ina og setti fram bóta­kröfu. Albert hafði sól­ar­hring til að ganga frá því máli. Þá loks­ins gekk hann frá sínum málum og greiddi tann­lækn­inum. Ég fékk 100 þús­und krónur í miska­bætur og mál­inu lauk þar með seint og síðar meir,“ segir Einar.

Hann segir að árásin á Hótel Borg hafi verið annað til­vikið þar sem Albert veitt­ist að honum. Fyrra til­vikið varð tveimur vikum áður í mat­sal Alþingis.

„Á þessum árum mátti taka myndir þar. Albert sat og ræddi við félaga sinn úr Sjálf­stæð­is­flokknum og ég smellti af mynd. Hann spratt á fætur, tók um axlir mér og hratt mér upp að vegg. Þetta atvik var til­kynnt til Alþingis og mér skilst að Albert hafi fengið til­tal,” segir Einar.

Albert Guð­munds­son náði ekki vopnum sínum eftir þetta. Hann hrakt­ist úr Borg­ara­flokknum og varð sendi­herra í París. Flokk­ur­inn klofn­aði. Kvittur var uppi um tíma um að hann ætl­aði að snúa aftur í stjórn­málin en það varð aldrei. Albert lést árið 1994, rúm­lega sjö­tugur að aldri.

Greinin birt­ist að uppi­stöðu í Stund­inni eftir sama höf­und. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ