Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Helgi stórmeistari ósáttur við RÚV: „Hvers vegna aflaði fréttastofa sér ekki gagna?“

Helgi stórmeistari ósáttur við RÚV: „Hvers vegna aflaði fréttastofa sér ekki gagna?“

Helgi Áss Grét­ars­son stór­meist­ari í skák og lög­fræð­ingur er ekki ánægður með RÚV varð­andi við­talið fræga við Þórhildu Gyðu Arn­ars­dóttur þar sem hún sagði að lands­liðs­maður hafi beitt sig ofbeldi, sem – eins og Mannlíf greindi fyrst frá – var af hendi Kolbeins Sig­þórs­sonar.

Þór­hildur Gyða Arn­ars­dóttir.

„Réttlát máls­með­ferð er lyk­il­at­riði í rétt­ar­rík­is­hug­mynd­inni. Kjarninn í slíkri máls­með­ferð er að tveir máls­að­ilar sem deila um stað­reyndir og túlkun laga fái jöfn tæki­færi til að koma á fram­færi gögnum og rökum fyrir hlut­lausum úrlausn­ar­að­ila. Þótt það sé mik­il­vægt í öllum dóms­málum að leiða fram sann­leik­ann verður í saka­málum að leiða hann í ljós með aðferðum sem tak­markast af tveim grund­vall­ar­reglum, ann­ars vegar að sér­hver sá sem bor­inn er sökum er tal­inn sak­laus uns sekt er sönnuð og hins vegar að allan vafa ber að skýra sak­born­ingi í hag. Þessi grund­vall­ar­at­riði rétt­ar­rík­is­ins byggja á yfir­burð­ar­stöðu lög­reglu og ákæru­valds við að rann­saka mál í sam­an­burði við stöðu ein­stak­lings sem bor­inn er sökum,“ segir Helgi og bætir við:

„Það er freist­andi í erf­iðum málum, þar sem sönn­un­ar­færsla er snúin, svo sem í kyn­ferð­is­brota­málum, að reka slík mál í fjöl­miðlum eða öðrum álíka vett­vangi er stendur utan hins hefð­bundna rétt­ar­vörslu­kerfis. Auð­veld­ara er þá að sann­færa almenn­ing um hvað sé satt og rétt, hvaða stað­reyndir eigi að leggja til grund­vallar við mat á mönnum og mál­efnum. Vandinn við þessa nálgun er að hún tekur ekki til­lit til áður­nefndra grund­vall­ar­reglna og of þægi­legt verður að lita lygi sem sann­leik og öfugt.“

Bætir við:

„Áður fyrr báru fjöl­miðlar ríku­lega ábyrgð á hvað kæmi til vit­undar almenn­ings. Stundum hefur verið sagt að fjöl­miðla­menn hafi starfað sem hlið­verðir er gegndu því hlut­verki að stýra þeim lág­marks­kröfum sem efni þyrfti að upp­fylla til að geta komið fyrir sjónir almenn­ings. Núna virð­ist sem þessi hlut­lægni­skylda sé á und­an­haldi, a.m.k. í ákveðnum mála­flokkum. Sem dæmi, virð­ist núna hægt að setja fram ásak­anir um kyn­ferð­is­legt áreiti og annað álíka ofbeldi án þess að fjöl­miðla­fólk kanni með sjálf­stæðum hætti hvað sé hæft í þeim. Fjöl­miðlar hafa tekið upp á að end­ur­segja stað­hæf­ingar þess sem setur fram ásak­anir og virð­ast sam­fé­lags­miðlar leika stórt hlut­verk í þess­ari þróun. Ímynd er mik­il­væg­ari en hvað sé efn­is­lega satt.“

Helgi færir í tal álit sitt á vinnu­brögðum „frétta­stofu RÚV í til­teknum mála­flokkum er ekki ýkja mikið, jafn­vel þótt þessi fjöl­mið­ill sé rek­inn að stórum hluta fyrir skattfé og nýtur for­rétt­inda á fjöl­miðla­mark­aði. Sem dæmi um nýleg vinnu­brögð frétta­stof­unnar, sem mér þykir ekki til eft­ir­breytni, má nefna frétt sem enn er aðgengi­leg á vef stofn­un­ar­innar og er frá 27. ágúst síð­ast­liðnum. Í þess­ari frétt er sagt frá við­tali við unga konu sem taldi farir sínar ekki sléttar í sam­skiptum við lands­liðs­mann í knatt­spyrnu á skemmti­stað í sept­em­ber 2017 og með hvaða hætti KSÍ hafi höndlað það mál. Viðtal þetta hlýtur að hafa verið und­ir­búið af fjöl­miðla­manni í vinnu hjá frétta­stof­unni en svo virð­ist sem að við­mæl­and­inn hafi ekki þurft að leggja fram mikið af gögnum til að sanna full­yrð­ingar sínar.“

Helgi nefnir dæmi:

„Sem dæmi sagði við­mæl­and­inn „[é]g var með áverka í tvær til þrjá vikur eftir hann“ og að hún hafi fengið sím­tal frá lög­manni um að mæta á fund hjá KSÍ. Núna liggur fyrir að fyrri full­yrð­ingin var sett fram gegn betri vit­und enda hafa verið lögð fram gögn í fjöl­miðlum sem varpa ljósi á þá stað­reynd að sam­kvæmt áverka­vott­orði hafi við­mæl­andi frétta­stof­unnar enga áverka haft. Síðari full­yrð­ingin reynd­ist einnig efn­is­lega röng, KSÍ hafði enga aðkomu að sáttum sem náð­ust á milli lands­liðs­manns­ins og við­mæl­anda frétta­stof­unnar.“

Helgi nefnir að „mögu­lega telur almenn­ingur það í lagi að fara fram með ósann­indi í jafn við­kvæmu máli sem þessu eða þá að ein­göngu um óná­kvæmni sé að ræða, eftir allt saman voru ein­hverjar und­ir­liggj­andi ástæður fyrir því að knatt­spyrnu­mað­ur­inn greiddi háa fjár­hæð til að ljúka mál­inu, þar með talið að veita Stíga­mótum veg­legan fjár­hags­legan styrk. Kjarni þess­arar greinar lýtur hins vegar ekki að þessu heldur að vinnu­brögðum frétta­stofu RÚV og þær spurn­ingar sem aug­ljós­lega vakna við þau: Sem dæmi, hvers vegna afl­aði frétta­stofan sér ekki gagna til að skilja málið í heild áður en við­talið við kon­una ungu var birt? Var ekki ein­falt að biðja við­mæl­and­ann um aðgang að lög­reglu­skýrslum til að fá frá­sögn­ina stað­festa? Og hvers vegna hefur frétta­stofa RÚV lítið sem ekk­ert sagt um fram­lagn­ingu gagna í fjöl­miðlum síð­ustu daga sem sýna að konan unga hafði sam­kvæmt áverka­vott­orði enga áverka haft eftir sam­skipti sín við knatt­spyrnu­mann­inn? Fleiri spurn­inga mætti spyrja um fram­göngu frétta­stofu RÚV í KSÍ-mál­inu en aðal­at­riðið að svo stöddu, er að benda á vinnu­brögð fjöl­mið­ils þar sem dregin er upp ein­hliða mynd af mál­efni þar sem brýn nauð­syn bar til þess að leita heim­ilda sem gætu vefengt þá mynd af mála­vöxtum.

Slík máls­með­ferð er ekki rétt­læt­an­leg, allra síst af fjöl­miðli sem aðal­lega er rek­inn fyrir skattfé.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ