Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hildur Lillendahl tilkynnt til lögreglunnar: „Myndirðu nauðga Hafdísi Huld með tjaldhæl?“

Hildur Lillendahl tilkynnt til lögreglunnar: „Myndirðu nauðga Hafdísi Huld með tjaldhæl?“

Árið 2010 tjáði söng­konan Hafdís Huld Þrast­ar­dóttir alþjóð um ein­elti sem hún varð fyrir á net­inu. Hafdís tal­aði um að Hildur Lilli­endahl hafi farið þar fremst í flokki. Hildur hefur í gegnum tíð­ina verið rót­tækur femínisti og barist ötul­lega fyrir rétt­indum kvenna, en hún hlaut við­ur­kenn­ingar frá Stíga­mótum fyrir bar­áttu sína.

Árið 2012 leit­aði Hafdís til lög­regl­unnar eftir að hún komst að því að hver hefði verið að skrifa niðr­andi ummæli um sig á vef­síð­unni Bland.is árin 2009 og 2010. Fyrst hafi hún talið að við­kom­andi ætti bágt. Henni hafi brugðið þegar í ljós kom að um væri að ræða konu sem barist hefði gegn niðr­andi skrifum á inter­net­inu. Hildur sagð­ist skamm­ast sín fyrir ummælin. Hún sagði mann sinn hafa skrifað sum ummælin enda hafi hann haft aðgang að not­enda­nafni hennar á Bland.is.

Ofbeldisfull skilaboð

Maður Hildar gekkst svo við því síðar. Hildur lét ummælin falla undir not­enda­nafn­inu „NöttZ“ á spjall­svæði Bland.is

Í umræðu­þráðum á vef­síð­unni eru ummæli hennar um Hafdísi rakin. Þar skrifar hún meðal ann­ars að sér hafi borist sms-skila­boð. Aðspurð hver þau séu, skrifar Hildur:

„Myndirðu nauðga Hafdísi Huld með tjald­hæl?“

Þá hafi hún einnig deilt skila­boð­unum „Hver vill koma út að drepa?“ þar sem umræðu­efnið var tón­list Hafdísar Huldar. Hildur gekkst við ummæl­unum og baðst afsök­unar en sak­aði jafn­framt mann­inn sinn um að skrifa ein­hver ummælin.

„Ég fékk ábend­ingu um að þessi ummæli væru til staðar og mér brá mjög mikið,“ sagði Hafdís Huld Þrast­ar­dóttir. „Það kom upp umræða á Bland.is undir titl­inum: Hver vill koma út að drepa? Ég komst síðar að því að þetta væri kona sem heitir Hildur Lilli­endahl. Fólk má hafa skoð­anir á list eins og það vill en það er samt alltaf ákveðin lína og þegar verið er að hóta manni um nauðgun og annað af slíkum toga þarf að taka það alvar­lega.“

Hafdís sagð­ist hafa haft sam­band við for­svars­menn Bland.is og beðið þá um að taka út allar umræður um hana, þau urðu við því. „Í hvert skipti sem ein­hver tal­aði um mig á Bland.is byrj­aði mann­eskja undir nafn­inu NöttZ að tala um mig,“ sagði Hafdís Huld og bætti við:

„Rétt fyrir jólin 2012 sé ég í fjöl­miðlum að Hildi eru veitt hug­rekk­is­verð­laun Stíga­móta. Mér fannst það stinga mig aðeins að hún væri að fá slík verð­laun. Hún gefur sig út fyrir að vera tals­kona gegn net­níði sem mér finnst skjóta skökku við. Ég fór til lög­regl­unnar og ætl­aði að skoða hvort ég gæti kært fyrir meið­yrði. Það var of langur tími liðin frá því að ummælin voru skrifuð og því gat ég ekk­ert gert.“

Tvö ár voru liðin frá því ummælin voru skrifuð og því var ekki hægt að kæra þau. „Það hvarfl­aði ekki að mér að mann­eskja í þess­ari stöðu myndi haga sér svona á net­inu, en ég hefði stigið fyrr fram ef ég hefði vitað það.“

Stígamót ekki hrifin

Talskona Stíga­móta segir að Hildur hefði aldrei fengið hug­rekk­is­við­ur­kenn­ing­una árið 2012 ef sam­tökin hefðu vitað um ummæli hennar á net­inu.

„Rétt eftir að þessi við­ur­kenn­ing var veitt fer ég að tala við Stígamót. Maður er svo ánægður með sam­tök sem eru að berj­ast fyrir ofbeldi gegn konum. Þær sögðu við mig að þær grun­aðu ekki að konan sem þær veittu þessa við­ur­kenn­ingu myndi haga sér svona. Það er verið að þakka henni fyrir að draga fram í dags­ljósið orð­rétt ummæli um konur,“ sagði Hafdís.

Hildur sagði að hún skamm­að­ist sín fyrir ummæli varð­andi þroska­skerð­ing­una. Önnur ummæli væru ekki hennar og í sumum til­fellum hafi mað­ur­inn hennar skrifað undir hennar not­enda­nafni.

Hvað höfum við lært síðan þá?

Höfum við eitt­hvað lært síðan þá sem sam­fé­lag eða erum við ennþá að finna út úr því hvernig við viljum taka á hat­urs­fullri umræðu á sam­fé­lags­miðlum?

Mikið hefur verið rætt um úti­lok­un­ar­menn­ing­una eða „cancel culture“ eins og hug­takið er kallað á ensku. Margir vilji jafn­vel halda því fram að fyr­ir­bærið sé ekki til og að stundum sé auð­velt að vísa því á bug sem beisk­leika yfir því að vera úti­lok­aður.

Úti­lok­un­ar­menn­ing gengur út á það að úti­loka ein­stak­linga sem brotið hafa gegn sam­fé­lags­legum gildum og hags­munum þjóð­fé­lags­ins – ýmist með því að hafa tjáð sig á ákveð­inn máta eða gert eitt­hvað á hlut ann­arra.

Talað er um að ákveðið félags­legt aðhald sé um að ræða. Með þessu sýnir almenn­ingur andóf gegn þessum ein­stak­lingum sem brjóta af sér. Bak­hliðin á þessu and­ófi er að stundum skortir mál­efna­lega umræðu og getur gagn­rýni snú­ist upp í per­sónu­legar árásir á net­inu.

Fólk skipt­ist oft­ast upp í tvo hópa varð­andi úti­lok­un­ar­menn­ingu; með eða á móti. Viðbrögð fólks við því þegar fólk mis­stígur sig skiptir máli hvernig ein­stak­ling­arnir sem um ræðir bregð­ast við.

Eitt dæmi þess er þegar Björn Bragi Arn­ars­son, grínisti og uppi­stand­ari, var á sínum tíma úti­lok­aður þegar upp komst um kyn­ferð­is­legt áreiti hans gegn ungri konu í októ­ber 2018, en í kjöl­farið baðst hann afsök­unar og tók stúlkan þeirri afsök­un­ar­beiðni, sem og fjöl­skylda hennar. Í því til­felli náði grínist­inn sér aftur á strik og úti­lok­unin gagn­vart honum stóð stutt yfir.

Er þetta ákveðið þroska­ferli sem við þurfum að ganga í gegnum sem sam­fé­lag? Hver eru næstu skrefin? Hver bylgja skilur eftir sig auk­inn lær­dóm, von­andi. Lær­dóm­ur­inn er ennþá að eiga sér stað og sjá má að fólk er ennþá að finna sig og átta sig á því hvernig það á að takast á við þessa umræðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ