Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ragnar dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir morð: „Síðasti róðurinn sem við fórum saman“

Ragnar dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir morð: „Síðasti róðurinn sem við fórum saman“

Ragnar Sigurður Jónsson var í hér­aðs­dómi Reykja­ness í jan­úar síð­ast­liðnum dæmdur í fjórtán ára fang­elsi fyrir að verða eig­in­konu sinni að bana með því að þrengja að hálsi hennar, á heim­ili þeirra í Sand­gerði í lok mars á síð­asta ári.

Ragnar var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald í byrjun apríl í fyrra en Lands­réttur felldi það úr gildi í októbe í kjöl­far vitn­is­burðar mats­manna sem töldu einnig koma til greina að áfengi og lyf hefðu orðið henni að bana.

Konan var 52 ára gömul þegar hún fannst látin á heim­ili sínu og Ragnars í Sand­gerði 28. mars. Kviknaði grunur um að and­lát hennar hefði borið að með sak­næmum hætti eftir krufn­ingu og var Ragnar hand­tek­inn þremur dögum síðar á heim­ili þeirra, 31. mars. Hann var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald þann 1. apríl til átt­unda þess sama mán­aðar. Það var ætt­ingi sem til­kynnti um and­lát kon­unnar til lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum. Í til­kynn­ingu frá lög­reglu sagði:

„Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður fór þegar ásamt lækni og presti á stað­inn. Ekkert á vett­vangi benti til þess að eitt­hvað sak­næmt hefði átt sér stað. Sama máli gegndi um lík­skoðun á sjúkra­stofnun.“

Rólegt reglufólk

Mannlíf hafði heim­ildir fyrir því að bæj­ar­búar væru slegnir yfir atvik­inu. Parið var reglu­fólk, rólegt og til fyr­ir­myndar. Ragnar birti eft­ir­far­andi skila­boð orð­rétt, á Facebook, dag­inn eftir and­lát hennar:

„Það er með mik­illi sorg í hjarta og tár í augum, sendum við þessa til­kynn­ingu út frá okkar að ást­kæra eig­in­kona mín/móðir, teinda­móðir og amma. … varð bráð­kvödd á heim­ili sínu þann 28 Mars. Þetta eru erf­iðir tímar framundan hjá okkur að halda utan um öll okkar kríli og okkur sjálf. Við biðjum ykkur vin­sam­leg­ast um að hafa sam­band fyrst við …. varð­andi heim­sóknir því það er jú sam­komu­bann. Ást og friður frá okkur öllum. Ekki gleyma að halda utanum ykkar nán­ustu og njótið saman.“

Þann 30. mars  í fyrra birti Ragnar mynd af sam­býl­is­konu sinni þar sem þau voru úti á sjó og konan við stýrið. Þar stóð:

„Síðasti róð­ur­inn sem við fórum saman.“

Í frétt Mannlífs frá 6. apríl 2020 kom fram að þann 1. apríl það sama ár, eða fjórum dögum eftir and­lát kon­unnar barst nið­ur­staða rétt­ar­meina­fræð­ings. Í nið­ur­stöð­unni sagði að sterkur grunur léki á að and­látið hefði borið að með sak­næmum hætti.

Ragnar var þá hand­tek­inn og úrskurð­aður í gæslu­varð­hald til 8. apríl. Stað­festi Lands­réttur þann úrskurð tveimur dögum síðar. Gæslu­varð­hald yfir mann­inum var síðan fram­lengt til 15. apríl. Það var síðan aftur fram­lengt til 22. apríl.

Látinn laus í október

Fimm rétt­ar­mein­ar­fræð­ingar hafa komið að mál­inu. Tveir unnu krufn­ingu og þrír voru dóm­kvaddir til að svara spurn­ingum en ekki leggja heild­stætt mat á dán­ar­or­sök. Voru þeir ekki ein­róma um hvað varð kon­unni að bana. Í krufn­ing­ar­skýrslu var talið að kyrk­ing hefði orðið kon­unni að bana en mats­menn svör­uðu fyrir dómi að mögu­lega hefði konan lát­ist af áfengis og lyfja­eitrun. Eftir að mats­menn skil­uðu skýrslu var Ragnar lát­inn laus úr gæslu­varð­haldi í októ­ber í fyrra og var hann ekki lát­inn sæta far­banni.

Ákæra var gefin út í júní 2020 þar sem sak­sókn­ari taldi að Ragnar hefði orðið konu sinni að bana. Aðal­með­ferð fór fram um miðjan nóv­em­ber og stóð þá yfir í tvo daga.

Ragnar hefur verið í sam­bandi við börn sín. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs héldu þau jól saman. Þá segja heim­ild­ar­menn Mannlífs að börn þeirra trúi á sak­leysi hans.

Fyrir dómi bar Ragnar við minnis­leysi en fjöl­skip­aður hér­aðs­dómur Reykja­ness dæmdi hann í fjórtán ára fang­elsi. Ekki var farið fram á neinar miska­bætur. Í júní í sumar stað­festir Lands­réttur svo dóm­inn.

Fékk ekki að áfrýja

Ragnar Sigurður, sem sak­felldur var fyrir morð á eig­in­konu sinni, fékk ekki að áfrýja 14 ára fang­els­is­dómi sínum til Hæsta­réttar. Ragnar sótti um áfrýjun til Hæsta­réttar en því var hafnað.

Ragnar hefur ávallt neitað sök og segir hann að hann og eig­in­kona hans hafi setið í frið­semd við áfeng­is­drykkju og sjón­varps­á­horf þetta kvöld. Ragnar hringdi ekki fyrst í Neyð­ar­lín­una heldur í dóttur sína sem kom á vett­vang á undan lög­reglu. Fyrir dómi seg­ist hann hafa verið viss um að konan væri látin og því ákveðið að hringja í börnin sín á undan Neyð­ar­lín­unni. DV greindi frá.

Samkvæmt DV lá lík kon­unnar í sófa í stof­unni er lög­reglu bar á vett­vang og var búið að breiða teppi yfir það. Segir í skýrslu lög­reglu að konan hafi verið köld við­komu, hör­und hennar fölt og hún hafi ekki sýnt nein lífs­mörk. Í skýrsl­unni segir að ekk­ert á vett­vangi hafi bent til þess að and­lát kon­unnar hafi borið að með sak­næmum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ