Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Uppreisnin á Austurvelli: Þegar Haukur Hilmarsson hengdi upp Bónusfánann

Blessuð sé minning Hauks.
Blessuð sé minn­ing Hauks.

Þann 8 nóvember árið 2008 stóð Búsáhalda­byltingin hvað hæst. En þessi mótmæli þróuðust í aðra átt þennan dag en venjulega.

Fleiri þúsund manns þustu á Austur­völl á hverjum laugar­degi og hlustuðu á hverja ræðuna á eftir annarri með steyptan hnefann á lofti. Og fór svo heim. En þessi laugar­dagur var öðruvísi en aðrir.

Gekk skrefi lengra

Ungur ofurhugi, Haukur Hilmarsson, ákvað að ganga lengra en nokkur hafði þorað í þessari svokölluðu byltingu. Morgun­blaðið lýsti þessu með þessum orðum; „Einn mótmælandi sá sig knúinn til að sýna hug sinn í verki. Hann lagði stiga að Alþingis­húsinu í garðinum við innganginn að pöllunum, hljóp upp á þak og dró þar fána Bónus-verslunar­keðjunnar að húni.“ Þetta hafði ekki verið gert áður, að nokkur færi upp á hið virðulega hús Alþingis til að mótmæla en þetta var ekki það eina sem vakti athygli. „Er lögreglan hugðist fjarlægja fánann og manninn safnaðist mikill fjöldi manna saman í portinu og var þar aðsúgur gerður að lögreglu. Engin átök brutust út en einn var færður í fanga­geymslur.“ Hinn almenni íslenski borgari sem sagt mótmælti handtöku og kom í veg fyrir hana sem verður að teljast afar sjaldgæft. Skipuleggjandi mótmælanna, Hörður Torfason vildi þurrka hendur sínar af athæfi Hauks og sagði það grafa undan friðsælu mótmælunum sem hann boðaði.

Færa má rök fyrir því að í kjölfar þess að Haukur setti upp Bónus­fánann hafi mótmælin breyst og fólk farið að þora að mótmæla á frumlegri hátt en að steyta hnefanum upp í loftið yfir ræðum og skrifa svo reiða Facebookfærslu þegar heim var komið.

Handtöku mótmælt

Tveimur vikum síðar var Haukur Hilmarsson hand­tekinn og færður á lögreglu­stöðina við Hlemm. Múgur og margmenni mætti þá með móður Hauks, Evu Hauks­dóttur, í farar­broddi. Var hand­tökunni mótmælt af hörku og reyndu sumir mótmælendur að brjóta sér leið inn á lögreglu­stöðina. „Hauki Hilm­ars­syni, sem hand­tek­inn var í gær vegna mót­mæla við Alþing­is­húsið fyr­ir hálf­um mánuði, var sleppt nú laust fyr­ir klukk­an 18 en hóp­ur fólks hafði staðið fyr­ir mót­mæl­um utan við lög­reglu­stöðina við Hverf­is­götu og kraf­ist lausn­ar manns­ins. Óþekkt­ur aðili mun hafa borgað sekt fyr­ir Hauk,“ stóð í frétt Mbl.is af þessu tilefni.

Fetað í fótspor Hauks

Ekki var þetta þó í fyrsta skipti sem Haukur stóð fyrir ólöglegri fána­uppsetningu. Sumarið 2008 hengdi hann upp fána Jörunds Hundadaga­konungs ofan á Stjórna­ráðs­bygginguna. Næstum sléttum 10 árum síðar fetaði bróðir Hauks, Darri Hilmarsson í fótsport bróður síns er hann hengdi upp fána Tyrklands í mótmæla­skyni við léleg viðbrögð íslenskra yfirvalda við að fá svör um afdrif Hauks í Sýrlandi. Aðgerðin var framkvæmd af aðgerðar­hópnum „Hvar er Haukur?“ en aðspurður um tilgang mótmælanna sagði Darri í viðtali við Frétta­blaðið, „við vonuðumst til þess að sparka aðeins í rassgatið á stjórn­völdum.“ Fannst Darra stjórn­völd geta gert meira í að fá svör frá Tyrklandi. „Þau gætu til dæmis spurt beint hvort Tyrkir séu með Hauk lífs eða liðinn og eins hvað Tyrkir hafi gert með lík á svæðinu.“

Bréfið

Samkvæmt nafnlausu bréfi sem barst móður­bróður Hauks fyrr á árinu og Mannlíf hefur undir höndum, kemur fram að starfs­maður sem vann náið með Guðlaugi Þór Þórðar­syni í utan­ríkis­ráðuneytinu, hafi reynt hvað hann gat til að koma í veg fyrir að leitað yrði að líki Hauks en hann er talinn hafa fallið í árás Tyrkja­hers á sveitir Kúrda í Afrin héraði í Sýrlandi í febrúar 2018. Er starfs­maðurinn sagður hafa haft óbeit á Hauki og hans fjöl­skyldu og ávallt kallað hann „Bónus­fánann,“ með tilvísun í atvikið sem hér er rifjað upp að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.
Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið