Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Umtalað að þessi sundlaug sé ein sú leiðinlegasta á landinu“

„Umtalað að þessi sundlaug sé ein sú leiðinlegasta á landinu“
Sund­laugin á Egils­stöðum Mynd: https://tomstundir.fljotsdalsherad.is/is

Kári nokkur gagn­rýnir Sundlaug Egils­staða harð­lega í færslu sinni á Facebook í dag. Vill hann meina að laugin sé alls ekki skemmti­leg fyrir börn og tími sé kom­inn á breyt­ingar.

„Núna síð­asta fimmtu­dag var bekkj­ar­hitt­ingur hjá 6-7 ára krökkum og var ákveðið að fara í sund. Mér skylst að það hafi verið búið að láta vita af því vel fyr­ir­fram. Eins og margir vita þá hef ég ekki mikið álit á Sund­laug­inni á Egils­stöðum en fyrir því eru nokkrar ástæður,“ segir Kári í upp­hafi færslu sinnar.

Segir hann að stein­inn hafi tekið úr þegar til­kynnt var að ekki væri hægt að kveikja á renni­braut­inni á meðan barna­hóp­ur­inn var í laug­inni. „Fjörutíu krakkar og nákvæm­lega ekk­ert að gera, sem sagt annað en að reyna að finna sér eitt­hvað að gera. Nei, það mátti ekki trufla fólkið sem var í heita­pott­inum/renni­braut­ar­laug­inni sem breytt var í heita­pott í stað þess að fýra upp hit­ann í barna­laug­inni. Nota bene, það var 1 í heita­pott­inum fyrir utan 15 krakka og 20 for­eldra að reyna að hafa ofan af fyrir þeim,“ segir Kári enn­fremur í færsl­unni.

Þá segir Kári ekki nein leik­föng vera í laug­inni, annað en tveir belgir. Bolt­arnir sem eru þar segir hann yfir­leitt loft­lausa eða í eigu gesta sem gleymdu þeim. „Að „barna­laugin“ skuli nán­ast án und­an­tekn­inga vera svo köld að börnin eru yfir­leitt með bláar varir og þeir full­orðnu með hroll í langan tíma eftir að hafa verið þar.“ Einnig gagn­rýnir Kári það að renni­brautin, sem hafi skemmt­ana­gildi fyrir krakk­ana, sé aðeins opin 6 mán­uði á ári.

Aukreitis seg­ist hann hafa mjög gaman af því að fara í sund víðs­vegar á land­inu enda um góða fjöl­skyldu­skemmtun að ræða. „Það er hins­vegar eig­in­lega ekki hægt að segja það um sund­laug­ina á Egils­stöðum nema kannski yfir blá sum­arið þegar að renni­brautin sem reyndar má muna fífil sinn feg­urri er í gangi og ég far­inn að kalla þetta osta­sker­ann, enda kemur maður yfir­leitt með einn skurð úr henni.“ Í sam­tali við blaða­mann sagði Kári að renni­brautin sé sú sama og reis þegar sund­laugin var opnuð í kringum 1995.

Segist hann vilja nú safna saman fólki og krefj­ast úrbóta á laug­inni. „Mér finnst alveg út í hött að jafn stór staður og Egils­staðir geti ekki boðið bæj­ar­búum, fólk­inu sem á heima hérna sem og þeim ferða­mönnum sem koma hér við upp á betri aðstöðu en boðið er upp á í dag.“ Full­yrðir hann að það sé umtalað að „þessi sund­laug sé ein sú leið­in­leg­asta á land­inu, þá er ég ekki að skilja útundan inni­sund­laugar í hinum ýmsu bæj­ar­fé­lögum.“

Að lokum seg­ist Kári vilja biðla til fólks sem vill breyt­ingar. „Ekki mis­skilja mig, þessi sund­laug er á ágæt sem sund­laug. En sem áfanga­staður fyrir krakka og fjöskyldu­fólk er hægt að gera mun betur. Vonandi vekur þetta áhuga þeirra sem lesa, það er nefni­lega ýsmiss­legt sem hægt er að gera þegar við tökum okkur mörg saman. Hætta að tala um þetta eins og þetta sé eitt­hvað bákn sem megi ekki tala um án þess að það sé farið beint í pen­inga­skot­gröf­ina eða að bæj­ar­búar eigi að taka sig saman og kaupa eitt­hvað.“ Auk­in­heldur segir hann að það sé sjálf­sögð rétt­indi þeirra sem búa á svæð­inu að fleira sé upp­fært í laug­inn en „dúk­ur­inn á þessum 26 eða 27 árum sem hún er búin að vera á þessum stað þessi sund­laug.“

Fær færslan tals­verða athygli á Facebook en Þor­steinn nokkur seg­ist vera algjör­lega sam­mála honum og Hilmar seg­ist frekar kjósa að fara í sund niðri á fjörðum. „Skelfi­leg aðstaða. Maður kýs það miklu frekar að renna niður á Eski­fjörð eða Norð­fjörð til að fara í sund, meira að segja fólk sem býr á Egils­stöðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ