Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðni sá fyrir sigur Framsóknar: „Undir 90 kílóum skaltu vera og mundu boðorð föður þíns.“

Guðni sá fyrir sigur Framsóknar: „Undir 90 kílóum skaltu vera og mundu boðorð föður þíns.“

Guðni Ágústs­son, fyrrum ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, var gestur í hlað­varp­inu Mann­lífið með Reyni Trausta­syni.

Guðni hefur mál sitt á því að vitna í Snæfríði Íslands­sól:

Hví dregur þú mig í þitt skelfi­lega hús? Sagði hún þegar hún kom að Ytri Rein, í hús Jóns Hregg­viðs­sonar.

En, gaman að koma til þín. Gaman að koma á Mannlíf.

„Svo kom þetta yndislega slagorð: Er ekki bara best að kjósa Framsókn?“

Fyrst er Guðni inntur eftir við­brögðum við nýaf­stöðnum kosn­ingum og þeim kosn­inga­sigri sem flokk­ur­inn hans, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, vann þar. Hann er beð­inn um að lýsa því hvað það var sem þarna gerð­ist.

„Svo mik­ill er ljóss­ins undra­kraftur, að jafn­vel gamlir síma­staurar syngja í sól­skin­inu og verða grænir aftur,“ sagði skáldið Tómas, Árnes­ingur. Tómas Guð­munds­son.

Ja, þetta er nú eig­in­lega ein­stakt í Íslands­sög­unni. Að flokkur sem situr í rík­is­stjórn vinni fimm nýja þing­menn. Það er ein­stakt. Þannig að nú veit ég ekk­ert hvað veldur því, annað en að ég tel að þetta sé nú vænt fólk, for­ysta flokks­ins og hlýtur að hafa staðið sig mjög vel á síð­ustu árum. Þannig að þjóðin trúði á það, trúði á stefnu­málin, verkin sem eru að baki hjá þessu fólki á kjör­tíma­bil­inu.

Svo kom þetta ynd­is­lega slag­orð: „Er ekki bara best að kjósa Framsókn?“. Það var eins og Stein­grímur Her­manns­son, hinn ást­sæli leið­togi og þing­maður og ráð­herra Vest­fjarða tal­aði til okkar beint í hjartað.

Þegar talið berst að þróun Fram­sókn­ar­flokks­ins rifjar Guðni upp eldri for­ystur og áherslu­mál, en nemur staðar við Fram­sókn­ar­flokk nútím­ans og Sigurð Inga Jóhanns­son, for­mann flokks­ins.

Sigurður Ingi Jóhanns­son hefur vaxið mjög. Hann tók auð­vitað við á mjög erf­iðum tíma, þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fór, sá mik­il­hæfi maður, sem var bjarg­vættur þjóðar í þrjú ár sem for­sæt­is­ráð­herra.

Tók vog­un­ar­sjóð­ina, lækk­aði skuldir heim­il­anna, stóð gegn Icesave. En hann varð að víkja úr sæti for­sæt­is­ráð­herra og Sigurður tók við, gerði það þó ein­stak­lega vel.

Svo komu þessir erf­iðu tímar og átök. Hann stofn­aði flokk.

En Sigurður hefur vaxið upp úr því öllu þannig að hann hefur mikla til­trú. Svo er hann auð­vitað með Lilju með sér, svo ég tali ekki um Ásmund, sem að hefur snert hjörtu manna. Af því hann hefur, eins og sagt var: „Leyfið börn­unum að koma til mín og bannið þeim það eigi.“ Þannig að hann hefur tekið að sér börnin hennar Evu, óhreinu börnin, þetta fólk sem við höfum ekki haft vit á því að snerta og hjálpa.

Flokkurinn alltaf merkilegri en maðurinn

Guðni er spurður nánar út í Sigmund Davíð og þau átök sem urðu innan flokks­ins þegar hann var felldur. Þegar Guðni er spurður að því hvernig honum hafi liðið með það og hvort hann hafi aldrei verið á útleið úr flokknum með Sigmundi er Guðni skýr í svörum sínum.

Nei, nei. Aldrei. Flokk­ur­inn er alltaf merki­legri en mað­ur­inn. Við höfðum lent í því oft áður, Fram­sókn­ar­menn. Jónas á Hriflu, ég dáði hann. Hann var ein­hver merki­leg­asti stjórn­mála­maður Íslands. Hvar sem þú ferð um landið eru fótsporin hans.

Þessi maður, sem var bara ráð­herra í fimm ár – ég var ráð­herra í átta ár – hann var bara ráð­herra í fimm ár. En það var eins og hann stýrði þess­ari þjóð í þrjá­tíu, fjöru­tíu ár. Og við sjáum menn­ing­una, menn­ing­ar­húsin, Þjóð­leik­húsið, allt þetta sem er kennt við hann. Allar þessar mennta­stofn­anir. Hann var bylt­inga­maður. Samt end­aði hann svo að hann var felldur í Fram­sókn­ar­flokknum.

Og Sigmund henti þessi örlög. Hann lenti bara í mjög vondu máli sem er erfitt að verj­ast. Peningar voru sagðir vera þar, á Tortóla og ég veit ekk­ert um þau mál. Þar með missti hann sína stöðu og varð að víkja frá.

Það gat ekki orðið sam­staða um hann, en ég álít hann mik­il­hæfan. Ég held að hann hafi til dæmis hreinsað Fram­sókn­ar­flokk­inn af Evr­ópu­sam­bandsveirunni, sem felldi mig. Ég hafði engan frið í Fram­sókn­ar­flokknum, út af liði sem allt vildi inn í Evr­ópu­sam­bandið. Halldór Ásgríms­son var svo mik­ill Evr­ópusinni. Hann vildi kanna það veru­lega að ganga inn í Evr­ópu­sam­bandið, sem gat aldrei verið hluti af Fram­sókn­ar­flokknum.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var ramm­klof­inn eftir alda­mót og alveg gríð­ar­leg átök í honum um þetta mál, sem end­aði nú með því að ég yfir­gaf og kall­aði: „Nú verður gras­rótin að taka til sinna mála og finna nýja for­ystu.“ Ég gleymdi því nú aldrei, þeirri ham­ingju þegar ég hætti í póli­tík, þá sögð­ust ein­hver 60, 70 pró­sent Íslend­inga sjá eftir mér. Það er nú gott að fara út við þær aðstæður.

Ég held að ég hafi í raun­inni verið búinn að gera það sem ég gat, átta ár ráð­herra og yfir tutt­ugu ár í þing­inu og ég var að verða svona einn af þessum gömlu góðu körlum. Það er ekk­ert gaman að enda í því að krökk­unum sem eru að koma inn í þingið þyki bara vænt um mann. Sjá mann sem gamlan, góðan karl. Þannig átti þetta ekki að verða. En ég fór á réttum tíma.

En þarna kom Sig­mundur. Ég var hans stuðn­ings­maður. Hann var aðstoð­ar­maður minn nán­ast, þegar ég var ráð­herra. Þegar ég var for­maður flokks­ins. Þannig að ég þekkti pilt­inn vel, vissi bæði um hann kosti og galla og djúpu hæfi­leika. Hann nýtti þá vel á árunum 2013 til 2016. Þannig að ég tel að hann sé vel gerður maður og afreks­maður þjóðar.

Miðflokkurinn er einn maður

Guðni seg­ist skilja vel að margir hafi farið með Sigmundi Davíð þegar hann yfir­gaf Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Það fóru margir mætir menn með Sigmundi, sem eðli­legt var. Hann átti inni hjá fólk­inu.

Svo skildu menn ekki þessi átök. Sigurður Ingi var ekki við­rið­inn þessi átök. Hann stóð bara þar og gat ekki annað en tekið við for­sæt­is­ráð­herra­starf­inu.

Síðan koma þessi átök um kjör þeirra og þar urðu nátt­úru­lega gríð­ar­leg átök sem flokk­ur­inn var lengi að jafna sig af. Nú virð­ist hann vera búinn að jafna sig af þeim og staðan er þessi, að Mið­flokk­ur­inn tapar þessum kosn­ingum.

Aðspurður um það hvers vegna hann haldi að Mið­flokk­ur­inn beri svo skarðan hlut frá borði í nýaf­stöðnum kosn­ingum segir Guðni:

Menn sjá ekki lausn í því, menn sjá ekki sam­starf við Mið­flokk­inn – Mið­flokk­ur­inn er einn maður. Hann er í raun­inni einn maður, stofn­aður um einn mann. Sem er stór, en hann er búinn að vinna sín afrek. Það er eins og hann hafi verið kall­aður til afreka í eitt kjör­tíma­bil – svo ég tali frá hjarta mínu.

Hann er nátt­úru­lega bara staddur þar sem hann er staddur, eins og Jónas á Hriflu og fleiri. Hann getur lagt gott til áfram. Hann á alla leið inn í flokk­inn ef hann vill, en hann er… hann er stór. Og hann er flokkur. Þannig að ég veit ekk­ert um það, en þessi átök voru leið­in­leg og þau eru liðin tíð. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er kom­inn í sína stöðu á nýjan leik, kom­inn í 17, 18 pró­sent.

„Og hugsaðu þér, þetta sá ég fyrir í vor.“

Guðni segir frá því að í vor hafi hann verið feng­inn til að koma og opna Norðurá. Það hafi honum þótt hálf galið, þar sem hann væri neta­veiði­hundur að eigin sögn og hafi verið hat­aður af mörgum stang­veiði­köppum. Það hafi Einari Sig­fús­syni vini hans, sem bað hann um að koma til að opna ána, ekki þótt koma neitt að sök. Hann hafi tjáð Guðna að nú skyldi hann gerður að flugu­veiði­manni.

Ég hafði aldrei kastað flugu­stöng. Og ég sat á fundi með Lilju Dögg [Alfreðs­dóttur] og ég segi við Lilju: „Nú verð­urðu að gefa mér lokk úr hári þínu. Nú ætla ég að láta hnýta Lilju Daggar-flug­una og sjá hvað kemur á flug­una í Norðurá. Svo gerði ég þetta, klippti lokk úr hári hennar og það var gerð þessi fal­lega fluga sem ég gaf henni svo eftir að ég hafði veitt á hana tólf punda hrygnu. Ég sagði um leið og hún kom í land: „Nú verða þing­menn­irnir tólf í haust.“ En þeir urðu þrettán, maður! Þannig að þetta hefur verið rúm­lega tólf punda held ég.

„Kári, nú er ég kominn með dauðann í skrokkinn“

Talið berst að veik­indum sem Guðni hefur þurft að eiga við síð­ustu ár. Hann greind­ist með syk­ur­sýki 2 fyrir nokkrum árum.

Mér brá nátt­úru­lega veru­lega við. Ég var nú svona feitur skrokkur orð­inn, stjórn­mála­maður sem hafði fitnað mjög á því tíma­bili. Ég man eftir því þegar ég var að verða þing­maður og faðir minn var að deyja, Ágúst á Brúna­stöðum, sem þekkti þetta á eigin skinni. Þá lá hann sína bana­legu þegar ég var vara­maður inni á þingi 1986. Ég kem til föður míns, með Þráin Valdi­mars­son. Margrét er þar og fullt af fólki. Ég er búinn að vinna próf­kjör.

Þráinn segir við Ágúst, sem er mjög veikur þegar þetta var en and­lega heill: „Ágúst minn, nú er hann bara að verða þing­maður, strák­ur­inn. Hvernig líst þér á það?“

„Hann klórar sig fram úr því,“ segir faðir minn. „Hann klórar sig fram úr því, en ég hef bara áhyggjur af öðru,“ með sinni djúpu, miklu rödd. Helmingi dýpri en mín og hljómmeiri. Það setur alla hljóða og Þráinn segir: „Hverju hef­urðu áhyggjur af Ágúst minn?“

„Ég hef bara áhyggjur af því að hann verði of feitur!“ Svo tekur hann í hend­ina á Margréti og segir: „Margrét mín. Sjáðu nú um það að halda í við hann í mat og drykk.“

Síðustu skila­boðin. Ég varð samt 105 kíló. Ég gleymdi þarna bara síð­ustu ráð­legg­ingum föður míns. Verð þetta þungur. Svo þegar ég er hættur þing­mennsku og er enn þetta þungur.. það var svona árátta hjá mönnum að stjórn­mála­menn ættu að vera stórir og feitir og dimm­radd­aðir. Ég hafði dimmu rödd­ina og allt til að bera þannig.

Þá kemur það í ljós að á næsta stigi, segja lækn­arnir, er syk­ur­sýki.

Ég fer beint í vin minn og jafn­aldra, Kára Stef­áns­son – við erum fæddir með þriggja daga milli­bili – og segi: „Kári, nú er ég kom­inn með dauð­ann í skrokk­inn. Syk­ur­sýki.“

„Syk­ur­sýki! Þú getur læknað þig af því, hel­vítis aum­ing­inn þinn,“ segir hann. „Þú þarft ekki læknis við. Hættu í sykrinum, éttu minna og grenntu þig. Farðu út að ganga.“

Ég gerði ekk­ert annað en að taka út syk­ur­inn, sæl­gætis, gosið, bjór­inn.. allt varð þetta að fara. Á nokkrum árum létt­ist ég niður fyrir 90 kíló.

Margrét nátt­úru­lega vakti við hrot­urnar, eins og svona fal­lega músík á nótt­unni. Nú losn­aði hún við þær. Ég létt­ist og það er allt annar svefn. Ég sef eins og barn. Ég fer út að ganga og fór í World Class reyndar líka. Nú segi ég bara: „Undir 90 kílóum skaltu vera og mundu boð­orð föður þíns.“

Ég var að koma úr mæl­ingum og lang­tíma­syk­ur­inn og allt er mjög gott í skrokknum. Og það sem meira er, ég er með mínar mjaðmir, mín hné, mína ökkla.

Við erum tólf bræð­urnir og þegar ég segi við þá: „Hva, þú ert kom­inn með í mjöð­mina! Ég fæ ekk­ert, ég hlýt að vera úr eðal efni.“

„Nei, nei,“ segja þeir. „Þú hefur aldrei gert neitt. Þú hefur aldrei unnið neitt ærlegt hand­tak!“

Lífið hófst í leigukjallara á Selfossi

Guðni hefur gengið við hlið Mar­grétar, eig­in­konu sinnar, um langa hríð. Hverjum sem hefur viljað hlýða á síð­ustu ára­tugi mun vera ljóst að Guðni ann Margréti mjög.

Það fer nú að verða komin hálf öld maður! Þetta er ótrú­legt. Þetta er eins og prest­arnir töl­uðu um, að lífið væri ein næt­ur­vaka. Manni fannst þetta svo fífla­legt. En nú nálg­umst við bara 50 ár frá trú­lofun, næsta vor. Og svo bara giftum við okkur. Svo þetta er bara hálf öld.

Þegar Guðni er spurður hvernig leiðir þeirra Mar­grétar hafi legið saman segir hann þau hafa verið sveit­unga frá sitt­hvorum bænum í Hraun­gerð­is­hreppi.

Það var mik­ill vin­skapur á milli bæj­anna og ég segi nú svona til að stríða mönnum stundum, hinum, að ég hafi haft kven­hylli í minni sveit.

En af ein­hverjum ástæðum þá náðum við saman og vorum flutt á Selfoss 1973 og vorum farin að búa. Margrét korn­ung. Eign­uð­umst okkar fyrstu stelpu þegar hún var 18 ára og tvær svo í við­bót. Þannig að lífið hófst í leigu­kjall­ara á hinum litla Selfossi eins og var á þeim tíma, þegar allir þekktu alla. Dásam­legt. Við höfum átt margan ham­ingju­dag saman og eigum enn.

Nú ætla þau Guðni og Margrét að flytja aftur á Selfoss – snúa til baka.

Konan og eldavélin

Eftir stutta þögn spyr blaða­maður Guðna hreint út hvort hann sé karl­remba. Guðni fip­ast ekki við spurn­ing­una, heldur svarar sall­ar­ó­legur:

Nei. Ég fékk nú orð á mig sem karl­remba, fyrir margt sem var bæði búið til upp í mig og menn trúðu að þessi ramma­sterka rödd.. kannski hroka­fullur, orð­ljótur á ein­hverju tíma­bili í upp­hafi fer­ils míns. Ég held að ég hafi nú batnað, eins og gam­alt viskí. Ég held að ég hafi mild­ast og lífið hnoðar mann í þessu starfi. Menn eiga ekk­ert að gera í póli­tík nema að batna, ef þeir eru með fólk­inu í land­inu.

Árni Johnsen sagði: „Ekki dettur ykkur í hug að vera að kjósa hann Guðna Ágústs­son, sjá­iði ekki hvað hann er leið­in­legur? Sjáiði ekki hvað hann er brúna­þungur? Ekki bætir hann Alþingi Íslend­inga.“

„Hann er eins og Þjórsá í klaka­böndum,“ sagði Árni. Og þetta féll vel í garð því ég held að ég hafi verið of ill­skeyttur.

Pabbi sagði við mig: „Guðni minn, pass­aðu þig bara á einu. Vertu aldrei vondur við and­stæð­inga þína í póli­tík. Leggðu þeim alltaf gott til ef þú getur, því þú þarft stundum á þeim að halda, spái ég, ef þú lendir í vand­ræðum í þínum eigin flokki.“

Guðni hefur vissu­lega verið sak­aður um að vera karl­remba, sér í lagi hér á árum áður. Brand­arar gengu ljósum logum um að hann hefði látið það út úr sér að staða kon­unnar væri á bak við elda­vél­ina. Aðspurður hvort þetta hafi verið eitt­hvað sem slitið hafi verið úr sam­hengi svarar Guðni:

Eft­ir­hermur og grínistar, þeir smíða fal­leg orð upp í menn. Það var nú svo­lítið hall­æris­legt… þá var þessi kvenna­bylt­ing að byrja í Fram­sókn­ar­flokknum og kon­unum þótti sinn hlutur ekki góður. Því kona var inni á þingi fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn ’49, en svo var eig­in­lega ekk­ert af konum þar fyrr en að ég kem inn á þing. Val­gerður Sverr­is­dóttir kemur og kvenna­bylt­ingin – Kvenna­list­inn breytti Alþingi og þess­ari þróun. Flokk­arnir urðu að svara þessu kalli. Og þarna er ég kall­aður á ráð­stefnu til að ræða jafn­rétt­is­mál milli karla og kvenna og Halldór Ásgríms­son. Svo kem ég niður á þingið dag­inn eftir og þá hlæja þeir þar, skelli­hlæja. Ég held að það hafi verið vinur minn, Páll Pét­urs­son, sem bjó þessa frægu setn­ingu til, að ég hafi sagt að staða kon­unnar væri á bak við elda­vél­ina. Þetta var smíðað upp í mig, þessi ynd­is­lega setn­ing. Svo hitti ég einu sinni konu þar sem ég var að afsaka mig: „Hættu þessu Guðni. Þetta var frá­bær setn­ing. Sýndi hvað þú ert fram­sýnn: nú eru allar elda­vélar komnar fram á mitt gólf. Nú er hægt að fara á bak­við hana.“

Þannig að þetta skað­aði mig nú ekk­ert, svona grín. Þetta var grín.

Eins var það á ein­hverri ráð­stefnu með öldruðum, þar átti ég að hafa sperrt mig í upp­hafi og sagt: „Góðir hátíð­ar­gestir. Öldruðum ber að fækka.“ Og ég held að ég hafi sagt þetta. Gam­al­mennin skulfu þarna fyrir framan mig og það end­aði með því að ég útfærði hvernig ég ætl­aði að fækka þeim. Það er með lífs­stíl. Með lífs­stíl – að fara að hreyfa sig og verða ekki feitir og bæta lífið. Þá var í tísku þessi setn­ing, að bæta árum við lífið.

Guðni hefur átt marga fræga frasa í gegnum tíð­ina. Hann rifjar upp þegar Hall­grímur Helgason skrif­aði ára­mótaskaupið og gerði grín að Guðna þar:

Hall­grímur Helgason, sem var nú óvinur minn á þeim tíma, hann samdi skaupið.

„Þar sem tvö tré koma saman, þar er skógur.“

„Og svo sagði hann: Guðni not­færir sér allt sem um hann er sagt, það er honum allt sem happa­fengur. Ég ætla aldrei að minn­ast á það hel­víti framar í ára­mótaskaupi,“ segir Guðni og glettnin skín úr augum hans. Viðtalið við Guðna er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ