Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ebba Sig varð fyrir þolendaskömmun frá lögreglu: „Spurð hversu stuttur kjóllinn minn hefði verið“

Ebba Sig varð fyrir þolendaskömmun frá lögreglu: „Spurð hversu stuttur kjóllinn minn hefði verið“
Ebba Sig

„Árið 2010 var mér nauðgað, og ég geri í raun allt sem ég á að gera. Ég fer með vin­konu minni upp á neyð­ar­mót­töku, það er tekið vel á móti mér þar. Tekið sýni, eða reynt að taka sýni. Það er gerð grein fyrir ein­hverjum áverkum. Síðan fór ég í skýrsla­töku.

Þetta var um páska þannig að þetta var vara­lög­reglu­maður sem tók við­tal við mig. Hann trúði mér og mað­ur­inn var hand­tek­inn strax. Svo beið ég í ein­hvern mánuð og þá var ég kölluð aftur í skýrslu­töku og svo var ég kölluð aftur í skýrslu­töku því þá „bil­aði mynda­vélin.“

Svona hljómar frá­sögn Þuríðar Elínar Sig­urð­ar­dóttur af sárri reynslu sinni af kyn­ferð­is­of­beldi. Þuríður, sem betur er þekkt sem Ebba Sig, sagði frá ofbeld­inu og því slæma við­móti sem hún fékk frá lög­reglu, í hlað­varps­þætt­inum Eigin Konur.

Ebba hefur tvisvar sinnum orðið fyrir nauðgun, fyrst árið 2010 og í seinna skiptið árið 2018.

„Þar var komið fram við mig eins og ég væri að ljúga. Maður vonar svo mikið að þetta sé búið að breyt­ast. Ég var bara spurð hvað ég hefði verið búin að drekka mikið, hvort ég hefði verið búin að kyssa hann, hversu stuttur var kjóll­inn minn eða pilsið mitt hefði verið,“ segir Ebba um þriðju skýrslu­tök­una sem hún var kölluð í eftir nauðg­un­ina sem hún varð fyrir árið 2010.

Á þeim tíma var Ebba nítján ára gömul, að verða tví­tug.

Hún segir frá því að í þess­ari þriðju skýrslu­töku hafi lög­reglu­mað­ur­inn gefið í skyn að hún væri að ljúga og að þetta væri hennar sök.

„Það voru skoð­aðar mynda­vélar á Prikinu og ein­hvers staðar á Lækj­ar­torgi þar sem sést að ég stend ekki í lapp­irnar. Það var tekið blóð­sýni úr mér þá og alkó­hólmagnið sem var í mér var rosa­lega hátt. Og þá var nýbúið að breyta lög­unum að mann­eskja sem er undir svona miklum áhrifum er ekki fær um að veita sam­þykki,“ segir Ebba.

Mál Ebbu fór til sak­sókn­ara á sínum tíma, sem ákvað að fara ekki lengra með málið vegna skorts á sönn­un­ar­gögnum. Sú þolenda­skömmun sem Ebba upp­lifði, meðal ann­ars frá lög­reglu, sem og áfallið við að málið hafi verið fellt niður, átti stóran þátt í ákvarð­ana­töku Ebbu varð­andi hvort hún ætti að kæra eða ekki, þegar hún varð fyrir hópnauðgun árið 2018.

Þá hafði hún verið með vinum sínum niðri í bæ og hafði drukkið tvo til þrjá bjóra, en að eigin sögn er það ekki mikið magn fyrir Ebbu. Um kvöldið hafi hún hitt stráka.

„Svo bara verð ég ógeðs­lega skrýtin og verð ein­hvern veg­inn hömlu­laus og finn að það er eitt­hvað skrýtið í gangi, ég er að fara í leigu­bíl og það átti að skutla mér heim. Svo bara man ég ekk­ert eftir nema nokkrum brotum af hlutum. Þetta voru strákar frá Kanada, ég man þá bara eftir brot og broti af því sem gerð­ist. En man að ger­end­urnir voru þrír og tveir að halda mér og horfa á,“ segir Ebba.

Þegar Ebba rank­aði við sér átt­aði hún sig á því að eitt­hvað hafði gerst. Hún hringdi strax í vin­konu sína sem kom og náði í Ebbu þar sem hún var stödd.

„Ég vakna ber að neðan í ein­hverju AirBnB húsi. Við förum upp á neyð­ar­mót­töku og það tekur á móti mér rosa­lega frá­bær hjúkr­un­ar­fræð­ingur. En þá lendir maður aftur svona í kerf­inu, það var eng­inn kven­sjúk­dóma­læknir á staðnum. Klukkan var eitt­hvað hálf níu um morg­un­inn og hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn segir mér að kven­sjúk­dóma­lækn­ir­inn komi klukkan eitt,“ segir Ebba.

Á þessum tíma­punkti lang­aði Ebbu ekk­ert meira en að fara undir sæng og gráta. Hún segir að miðað við hvernig fyrra málið hafi farið hafi Ebba ekki séð ástæðu til þess að leggja á sig að ganga í gegnum það allt aftur.

Frásögn Ebbu í heild sinni má nálg­ast á Patreon-síðu Eigin Kvenna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ