Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Dansarinn á Goldfinger gerðist bóndi á Austurlandi: „Hér er engin kona neydd í dans“

Dansarinn á Goldfinger gerðist bóndi á Austurlandi: „Hér er engin kona neydd í dans“
Elísa sátt í sveit­inni Mynd: Aðsend

Elísa Butt Dav­íðs­dóttir er um margt áhuga­verð kona. Hún ólst upp á Akranesi en dreymdi alltaf um að verða bóndi. Lífið leiddi hana ekki strax í sveit­ina en 18 ára byrj­aði hún sem nekt­ar­dans­mær á skemmti­staðnum Vegas. Elísa, sem er hálfur Breti, sem útskýrir ætt­ar­nafnið, ræðir hér um ásta­málin, nekt­ar­dans­inn, þörf­ina fyrir tján­ingu, for­dóma sam­fé­lags­ins og nýja sveita­lífið fyrir austan.

„Fann mitt element í nektardansinum“

Þegar Elísa var 15 ára ákváðu for­eldrar hennar að flytja til Kanada, en það hugn­að­ist henni ekki. Hún flutti því að heiman. „Það hefur alltaf verið mikil ævin­týra­þrá í mér,“ segir Elísa. Hún kynnt­ist strák og flutti með honum austur á Reyð­ar­fjörð þar sem hún kláraði grunn­skól­ann. Eftir það fluttu þau á Suð­ur­nesin en þar lauk sam­band­inu og Elísa flutti til borg­ar­innar, 18 ára að aldri.

„Ég hætti með honum og flutti til Reykja­víkur. Þar byrj­aði ég að vinna á Vegas, sem bar­þjónn.“ Elísa segir að hún hafi alltaf haft ákveðna ævin­týra­þrá í sér og lað­ast að jað­ar­hópum, hangið mikið með rokk­urum og fólki sem þótti öðru­vísi.

„Ég fylgd­ist alltaf með af hlið­ar­lín­unni, var ekk­ert að drekka á þessum árum eða í dópi, en fannst spenn­andi að vera innan um fólk sem var öðru­vísi og með ann­ars konar orku. Og þetta fann ég þegar ég byrj­aði að vinna á barnum á nekt­ar­dans­staðnum Vegas.“

„Hér er engin kona neydd í dans“

Aðspurð hvernig það æxl­að­ist að Elísa fór af barnum og á súl­una seg­ist hún hafa flutt inn til kvenn­anna sem voru að dansa á Vegas.

„Ég hafði alltaf verið mjög feimin og inni í mér, með lítið sjálfs­á­lit og alltaf í felum. En svo var það eitt kvöldið að ég fékk mér eitt rauð­víns­glas eftir lokun. Þá ákvað ég að prófa að hoppa upp á svið og dansa, því ég hafði alltaf haft gaman af því. Það var ekki aftur snúið. Ég fann mitt elem­ent, tón­listin, orkan og nátt­úr­lega athyglin líka, jákvæð athygli. Þarna fann ég minn hóp og svona, fann að ég til­heyrði.“

Elísa á nekt­ar­dansárum sínum
Elísa á góðri stundu

Nú hafa stripp­staðir það orð á sér að þar þrí­fist man­sal, vændi og almenn ill með­ferð á konum, en það er ekki reynsla Elísu.

„Það var alltaf farið vel með okkur stelp­urnar, við aldrei neyddar í neitt og okkur alltaf sýnd virð­ing. Þarna var fjöldi flottra kvenna sem sumar áttu fyr­ir­tæki til dæmis, aldrei nein neyð í gangi. Þetta voru til dæmis stelpur frá Englandi sem ráku fyr­ir­tæki og versl­anir úti og nutu bara lífs­ins. Og það gerðum við líka, íslensku stelp­urnar.“

Elísa segir að þær hafi stundum farið að dansa í Noregi og Englandi og að það hafi verið tölu­vert öðru­vísi en hér á Íslandi.

„Það var meiri klassi úti, þar vissu karl­arnir sem komu á stað­ina að það væri bara almenn kurt­eisi að bjóða í glas og slíkt, en heima á Íslandi var algeng­ara að karl­menn byðu okkur heim með sér, en í raun var meiri séns fyrir þá að pikka stelpur upp á venju­legum börum en að fara með okkur dönsur­unum heim.“

Elísa rifjar upp heim­sókn hóps kvenna sem höfðu áhyggjur af dönsur­unum.

„Einhvern tím­ann var svona rauð­sokku­hópur að mót­mæla fyrir utan Gold­finger og var að stöðva allar konur sem voru að fara þar inn til að dansa. Þær buðu dönsur­unum aðstoð við að losna þaðan. Þær töl­uðu ensku og héldu að við værum allar útlenskar en við svöruðum bara á íslensku og sögðum þeim að hér væri engin kona neydd í dans eða nokkuð.“ Elísa heldur áfram: „Þetta voru allt sterkar stelpur sem ég var að dansa með, sumar hverjar í námi og, eins og ég sagði, með fyr­ir­tæki og fleira.“

Á þessum árum var Elísa dug­leg að koma sér á fram­færi, hún birt­ist á síðum tíma­rits­ins Bleikt og blátt, var í Séð og heyrt og keppti í nekt­ar­danskeppni í Þórs­kaffi.

„Ég fór „all in“ á þessum tíma, en ég pass­aði alveg upp á mig og stund­aði námið mitt,“ segir Elísa, sem er mennt­aður sjúkra­liði og einka­þjálf­ari.

„Dansinn var vald­efl­andi, ég fann sjálfa mig og þetta var alltaf mín tján­ing. Ég tók aldrei þátt í neinu bulli, ég var ekk­ert þar,“ segir Elísa. „Þetta sner­ist ekki alltaf um pen­ing­inn heldur líka að vera með sínu fólki og til­heyra hópi.“

Elísa Butt Dav­íðs­dóttir

Erfitt að passa í normið

Elísa var í dans­inum í 12 ár og á þeim tíma eign­að­ist hún barn með manni sem hún var í sam­bandi með í um sjö ár. Hún sá fljótt að hún gæti ekki verið í því sam­bandi lengur. Síðan kynnt­ist hún dyra­verði á staðnum þar sem hún dans­aði og felldu þau hugi saman. Fljót­lega kom annað barn og svo varð hún ólétt aðeins hálfu ári eftir fæð­ingu ann­ars barns síns.

„Þetta var alveg „non stop“,“ segir Elísa og hlær. „Það var alltaf ofboðs­leg teng­ing hjá okkur.“ Hún hætti í dans­inum og hóf störf sem sjúkra­liði. Þegar börnin voru orðin aðeins eldri fór Elísa að vinna í sjálfri sér. „Þá fór ég í svolitla sjálfs­vinnu, fór í dáleiðslu og til sál­fræð­ings. Ég losn­aði aldrei við löng­un­ina til að dansa og tjá mig og íhug­aði hver ég væri. Af hverju hef ég þessa þörf fyrir jað­ar­hópa og þessa spennu? Ég var orðin svo vön að klæða mig í dans­fötin á kvöldin og koma mér í gír­inn fyrir dans­inn, en svo allt í einu var það bara búið. Hvernig átti ég þá að vera og hvernig átti ég þá að tjá mig? Hvar er pláss fyrir mig í þessu öllu? Nú var ég gift, komin með þrjú börn og hugs­aði: Nú þarftu bara að fara að haga þér.“

Elísa segir að sam­fé­lagið bæli fólk niður að miklu leyti. „Þú mátt ekki vera svona og þú mátt ekki vera of mikið, ekki vera að dansa og ekki vera svona sexí. Nú ertu orðin mamma sem á trúan og traustan mann og átt bara að haga þér. Þú setur sjálfan þig algjör­lega til hliðar þegar þú ert orð­inn for­eldri. Maður þorir ekki að fara út í kjól, því þá gæti maður verið of sexí.“

Elísa seg­ist alltaf hafa haft mik­inn metnað fyrir for­eldra­hlut­verk­inu og hjóna­band­inu, en í leið­inni týndi hún svo­lítið sjálfri sér.

„Svo var dans­stöð­unum lokað og þá fann maður líka meira fyrir sam­fé­lags­legu press­unni. Maður átti ekki að vera öðru­vísi og var alltaf að reyna að passa inn í eitt­hvert norm. Ég var alltaf að reyna að vera hin full­komna mamma og hinn full­komni sjúkra­liði, að gera aldrei mis­tök.“

Mamman með fjólu­bláa hárið

„Ekki bara einhver drusla eða hóra!“

„Það skipti mig alltaf miklu máli þegar ég var að dansa að ég væri líka virð­ing­ar­verð mann­eskja. Það var oft erfitt að vera með þennan stripp­ara­stimpil á sér. Mig lang­aði oft að standa bara upp og segja: já, ég er stripp­ari, en ég er miklu merki­legri en það, ég er ekki bara ein­hver drusla eða hóra!“ Þegar hér er komið sögu fer Elísa að tala um nýjasta æði ungra Íslend­inga; Only Fans. „Það má alveg setja þetta í sam­hengi við það sem er að ger­ast núna, Only Fans. Mér finnst það ótrú­lega flott að konur leyfi sér að vera eins og þær eru.“

Aðspurð hvort hún gæti hugsað sér að vera með Only Fans-síðu seg­ist Elísa ekki geta hugsað sér það, enda hafi hennar tján­ing­ar­máti alltaf verið í dans­inum en ekki hún ein fyrir framan mynda­töku­vél heima hjá sér. „En mér finnst frá­bært að ein­hverjir vilji vera þar. En ég held að þetta sé að fara svo­lítið öfugt ofan í land­ann, því þetta er svo nálægt okkur. Þetta geta verið nágranni þinn, frænka, frændi, þú skilur, þetta er miklu opn­ara en til dæmis lok­aður nekt­ar­dans­staður. Þarna sjáum við aftur sömu við­horfin; þú átt ekki að vera svona, ekki vera svona sexí og átt ekki að þurfa að tala um kyn­líf eða tjá þig um þessa hluti,“ segir Elísa, og þetta er henni greini­lega hjart­ans mál. „Þess vegna finnst mér ótrú­lega flott að sjá konur í þessu vald­efl­andi hlut­verki, að standa upp og bara: hæ, ég ætla að vera svona, ég ætla að vera svona sexí og ég ætla að sýna öllum heim­inum hvað ég er æðis­leg.“

Elísa Butt

Þurfti að komast í tengingu við náttúruna

Þau hjónin sáu bóndabæ austur á Héraði aug­lýstan til sölu og ákváðu að slá til og keyptu Hrafna­björg og Litla­bjarg. Þar hafa þau komið sér upp mynd­ar­legu búi og eru með geitur, svín, nokkrar kindur og nauta­eldi. Að auki reka þau gisti­heim­ili og versl­un­ina Litla­bjarg þar sem Elísa selur prjóna­vörur sem hún prjónar sjálf. Að hennar sögn hefur hún selt peysur um allan heim og því sé nóg að gera á bænum. „Þetta er það sem ég fann út þegar ég var að vinna í sjálfri mér, að ég þurfti að kom­ast í teng­ingu við nátt­úr­una; vera í nátt­úr­unni og í friði. En það gekk eig­in­lega of langt hjá mér, ég lok­aði mig of mikið af,“ segir Elísa. „Þarna var ég komin í þennan kassa, kom­inn með börnin, flutt í sveit­ina og þetta var bara fínt, æðis­legt að vera í nátt­úr­unni og í kyrrð­inni. Samt var alltaf spurn­ingin; er þetta ég? Er ég bara mamman sem býr úti í sveit og situr í sóf­anum og prjónar allan dag­inn?“

Elísa í kyrrð­inni

Lífið er ótrúlegt ferðalag

Elísa segir að lífið sé ótrú­legt ferða­lag.

„Ég hef svo­lítið leyft líf­inu að leiða mig áfram,“ segir Elísa en segir aðspurð að hún telji að lífið eigi ekki eftir að leiða hana á enn einn nýjan stað. „Nei, ég held að ég sé kom­inn á þann stað sem ég vil vera á. Núna er ég að hefja ferða­lag, að finna ork­una aftur og það er að þakka þess­ari vit­und­ar­vakn­ingu sem er í gangi núna. Ég er orðin mjög þreytt á að fela mig. Ég er svona mann­eskja sem á fjölda vina. Ég elska að vera innan um fólk og heim­ili mitt hefur alltaf verið opið heim­ili og það er kannski ekki normið. Það hefur verið sér­lega áhuga­vert að fylgj­ast með smá­borg­ara­hætt­inum hjá fólki, því þú ert svona öðru­vísi og ferð á móti straumnum. Ég er mamman með fjólu­bláa hárið og fullt hús af fólki og þá byrja auð­vitað kjafta­sög­urnar. Það eru alveg átök að spyrna gegn þessu.“ Nú seg­ist Elísa vera að vinna í því að kynn­ast nýju fólki, fólki sem er á sömu bylgju­lengd og hún. „Fólki sem skilur mann og hjálpar manni og eflir í að vera eins og maður er. Þú veist, af hverju má Sigga Dögg kyn­lífs­fræð­ingur ekki birta mynd af sér á rass­inum og af hverju er orkan okkar svona mikið tabú?“ spyr Elísa og er nokkuð mikið niðri fyrir. „Ég held að það sé svo­lítið erfitt fyrir margar konur að fá að vera eins og þær eru, vera þær sjálfar, þær þurfa að berj­ast gegn við­horfi vina, fjöl­skyldu og sam­fé­lags­ins.“

Elísa sátt í sveit­inni

Að lokum seg­ist hún vera í smá rök­ræðum við sjálfa sig: „Auðvitað er maður líka í „conflicti“ við sjálfan sig, en ég er bara kona sem finnst gaman að fara í kjóla og hæla­skó og dansa. Nú er ég að reyna að finna það aftur hjá sjálfri mér að ég má alveg dansa og leyfa orkunni að flæða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ