Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Ég fann í hjarta mínu að ég var kominn heim“- Bjarni starfaði við skúringar samhliða náminu

„Ég fann í hjarta mínu að ég var kominn heim“- Bjarni starfaði við skúringar samhliða náminu

„Það erf­ið­asta sem ég hef farið í gegnum, var að hætta í starf­inu á sínum tíma og fara aftur í nám og vinna mig upp aftur og end­ur­skapa ein­hvers konar feril í lífi mínu. Það var gaman, en erfitt samt sem áður. Ég tók ekk­ert lán með nám­inu, starf­aði við skúr­ingar í tíu ár sam­hliða því og fyrstu árin sem lista­maður. Ég er stoltur af þessu í dag, því þarna sann­aði ég fyrir sjálfum mér að seigla og trú á sjálfan sig borgar sig.“

Bjarni Sig­urðs­son ker­am­iker hefur komið sér vel fyrir með vinnu­stofu sína í Hafn­ar­firði og hefur heldur betur gert það gott innan leir­list­ar­heims­ins. Okkur lék for­vitni á að vita aðeins meira um þennan flotta ker­am­iker.

Sjálfsag­inn og sköp­un­ar­gleðin
Bjarni fædd­ist í Vest­ur­bænum árið 1965 og er einn af 10 systk­inum. Eftir að hann kláraði versl­un­ar­braut við Fjöl­brauta­skól­ann í Breið­holti, starf­aði hann um nokk­urt skeið sem versl­un­ar­maður eða þar til hann hóf störf hjá Bún­að­ar­banka Íslands og var þar í tæp sjö ár. Síðustu ár sín hjá Bún­að­ar­bank­anum sótti hann ýmis nám­skeið hjá Mynd­lista­skóla Reykja­víkur og kvikn­aði þar leir­list­ar­bakt­er­ían fyrir alvöru.

„Sjálfsag­inn og sköp­un­ar­gleðin hefur komið mér mest á óvart í þessu öllu saman. Ég hlakka til að fara á vinnu­stof­una mína hvern ein­asta dag og fyrir það er ég óend­an­lega þakk­látur. Ég passa mikið upp á að end­ur­nýja mig reglu­lega, skapa ný form og gera stöðugt til­raunir með nýjan gler­ung. Enn þann dag í dag pensla ég hvern ein­asta hlut sem ég geri, oft með tvenns konar gler­ungi, stundum fleiri. Þetta gerir gler­ung­inn svo lif­andi.“

Hans helstu áskor­anir eru að skapa ný form, þróa tækni við gerð list­muna og búa til nýjan gler­ung.

„Ég er sífellt að breyta og bæta og það þarf mikla þol­in­mæði og bjart­sýni til að halda áfram, því gler­ungur getur verið eins og óþekk börn sem hlýða bara þegar þeim sýn­ist. Eftir að hafa rann­sakað og unnið með gler­ung í yfir 20 ár, hafa áskor­an­irnar við hann þó í auknum mæli breyst í leik. Í mínum huga er skiln­ingur og færni í gler­ungs­vinnslu einn af aðal­þáttum þess að skapa leir­list.“

Kom út úr skápnum og hitti sinn maka
Bjarni er að sjálf­sögðu ánægður að hafa komið út úr skápnum á sínum tíma og hitt maka sinn, sem fylgt hefur honum í gegnum lífið í meira en ald­ar­fjórð­ung.

„Það er hvatn­ingu hans að þakka að ég fékk kjarkinn á sínum tíma til þess að fara og sækja lista­nám­skeið. Hvorugan okkar óraði fyrir því að listin ætti eftir að verða mitt lifi­brauð og yndi.

Ástæðan fyrir því að ég valdi leir­inn sem list­grein er sú að Ragn­hildur Stef­áns­dóttir mynd­list­ar­kona kenndi mér í Mynd­lista­skóla Reykja­víkur. Eitt kvöldið sagði hún okkur að við ættum að vinna með leir, hnoða fimm kíló af honum og gera eitt­hvað úr honum. Það gerð­ist eitt­hvað ólýs­an­legt innra með mér um leið og ég snerti leir­inn og fór að hnoða. Ég gat ekki hætt að brosa og ég fann í hjarta mínu að ég var kom­inn heim. Ég sótti leir­nám­skeið á vinnu­stofu hér í Reykja­vík og þar á eftir sótti ég um í Aarhus Kun­staka­demi í Danmörku og komst inn. Þar með sagði ég upp starfi mínu í bank­anum og hóf nám í ker­am­ik­inu árið 1996, sem ég síðan útskrif­að­ist úr árið 2000.“

Skemmti­legt og sér­stak­lega eft­ir­minni­legt
Það sem honum hefur þótt eft­ir­minni­leg­ast er þegar hann var að koma sér á fram­færi eftir nám. Hann ferð­að­ist um alla Danmörku og kynnti sig, með möpp­una sína með myndum af þeim verkum sem hann hafði gert þá stund­ina. Hann heim­sótti gall­erí og versl­anir, en á þessum tíma voru ekki komnir til sög­unnar þeir sam­fé­lags­miðlar sem við þekkjum í dag.

„Þetta var skemmti­leg vinna og eft­ir­minni­legt fyrir þær sakir að maður kynnt­ist ótrú­lega mörgu fólki og stöðum, sem sumir hverjir heyra sög­unni til. Þess má geta að ég var að koma mér aftur í kynni við einn gall­er­í­eig­anda fyrir nokkrum vikum í Danmörku, sem ég mun heim­sækja næst þegar ég heim­sæki Danmörku. Hún hafði það mikla trú á mér að hún bauð mér að sýna hjá sér tvisvar á meðan ég var enn í námi.“

Jóla­mark­að­ur­inn 18.–21. nóv­em­ber
Það sem er á döf­inni hjá Bjarna er að sinna öllum þeim beiðnum sem honum hafa borist bæði frá Danmörku og Banda­ríkj­unum. Hann er nú þegar á mörgum stöðum í Danmörku, en umboðs­að­ili hans í Danmörku er að vinna að því að koma honum á norska og sænska mark­að­inn, en nú þegar eru tveir aðilar sem vilja fá að vinna með honum í Svíþjóð. Bjarni hefur líka verið dug­legur að koma sér á fram­færi á banda­ríska mark­aðnum þar sem hann er að selja hjá ABC Home í New York og er nú þegar far­inn að vinna með engum öðrum en veit­inga­staðnum Jean-George í New York.

Upp á síðkastið hefur hann verið að und­ir­búa jóla­markað sem hann er með árlega á vinnu­stofu sinni. Und­ir­bún­ingur fyrir hann hefst um páska­leytið, enda orð­inn stór og vel sóttur. Á sama tíma hefur hann unnið með nýjum sölu­að­ilum í Banda­ríkj­unum, bæði í New York og Los Angeles. Það er stöðug vinna að sinna öllum sölu­að­ilum í Danmörku og hann seg­ist ekki anna eft­ir­spurn. Hér heima hefur hann verið í mik­illi og spenn­andi vinnu með Ramma­gerð­inni, sem eflist og verður spenn­andi að sjá hvert sú sam­vinna fer.

Jóla­mark­að­ur­inn er hald­inn 18.–21. nóv­em­ber og er opið alla dag­ana frá klukkan 10 til 18. Á mark­aðnum verða ein­ungis nýir list­munir. Allir vel­komnir og veit­ingar fyrir alla, börn sem full­orðna. Mark­að­ur­inn er hald­inn á vinnu­stofu Bjarna að Hraun­tungu 20 í Hafn­ar­firði. Vert er að taka fram að um er að ræða stærsta lista­mark­aður sem ein­stak­lingur heldur hér á landi.

Smelltu hér til að lesa brak­andi feskt helg­ar­blaðið eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ