Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jónína Ben breytti lífi Gunnars Kamban: „Ég byrjaði á því að sofa bara í 5 daga“

Jónína Ben breytti lífi Gunnars Kamban: „Ég byrjaði á því að sofa bara í 5 daga“
Gunnar Már Kamban, heilsu­fröm­uður og rit­höf­undur.

Jónína Ben var hálf­gerð læri­móðir Gunnars M. Kamban, detox fröm­uðar og rit­höf­undar. Gunnar lýsir kynnum sínum við detox með­ferð­ina í nýjasta hlað­varps­þætti Reynis Trausta­sonar.

„Mig lang­aði að laga mig, mig lang­aði að bæta mig, fá aukna orku og kom­ast yfir þetta stress,“ segir Gunnar og heldur áfram. „Árið 2010 var orðið kulnun ekki til eða ekki orðið að tísku­orði eins og í dag. Ég vissi ekki alveg hvað var í gangi, ég bara komst ekki á þann stað sem ég vildi vera á.“

Ákvað Gunnar að fara til Jónínu Ben sem var með detox þjón­ustu í Keflavík en þar bauð hún upp á 14 daga detox með­ferð. „Þarna var ég kom­inn með fjögur börn og konu og við vorum með hús og afborg­anir og það er ekk­ert auð­velt að kúpla sig bara út í 14 daga. Ég á mjög skiln­ings­ríka konu og frá­bæra. Hún skildi það að ég þurfti bara að gera eitt­hvað til að koma mér aftur í gír­inn.“

Gunnar sem sagt fór til Kefla­víkur þar sem Jónína og allt hennar fag­fólk tók á móti honum og hann stimpl­aði sig eins og hann kallar það. „Ég byrj­aði á því að sofa bara í 5 daga. Ég kom varla fram og borð­aði varla mat­inn, ég var þessi leið­in­legi sem nán­ast sagði ekki góðan dag­inn af því að ég hafði hrein­lega ekki orku í það.“ Jónína sagði við Gunnar að ef hann þyrfti að sofa, þá ætti hann bara að sofa.„Og ég tók hana bara á orð­inu og svaf nán­ast í 5 daga straight.“ Segist hann hafa áttað sig á því seinna meir að hann var þarna orð­inn úrvinda. „Þetta er eins og vél sem fer ekki í gang en ég er stans­laust að reyna að starta henni. Þarna var ég kom­inn á algjöran núll­punkt.“

Á degi sex fann Gunnar að haus­inn á honum var orð­inn skárri. Ákvað hann því að fara og reyna að kynn­ast fólk­inu og dag­skránni sem var í boði „sem voru göngut­úrar á morgn­ana og teygjur og það var infrar­auð sauna og pottur og svo fram­vegis og svo fram­vegis. Köld sturta var manni ýtt í líka.“ Segist Gunnar hafa byrjað að finna breyt­ingu eftir að hann byrj­aði að taka þátt í með­ferð­inni og fann ork­una aukast og aukast þrátt fyrir að vera að borða langt undir kalór­íu­þörf sinni. „Mín upp­lifun er að þegar ég labb­aði út úr detox­inu í Keflavík eftir að hafa komið inn með um 1% orku, þá labb­aði ég út með svona 98% hleðslu.“

Allt við­talið er hægt að hlusta á hér
Hægt er að horfa á við­talið hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ