Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Steinunn Ólína dregur byrlunarfaraldur í efa: „Ég upplifði líka skelfilega hluti“

Steinunn Ólína dregur byrlunarfaraldur í efa: „Ég upplifði líka skelfilega hluti“
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir, fjöl­miðla- og leik­kona, dregur í efa að í Reykja­vík geisi svo­kall­aður byrl­un­ar­far­aldur, í nýjum pistli sínum á Facebook.

Í pistl­inum seg­ist hún vilja „leggja orð í belg í þá umræðu um byrl­un­ar­far­aldur þann sem kall­aður er.“

Steinunn Ólína varar við neyslu áfengis sam­hliða lyfja­notkun ýmiss konar. Hún segir fólk sem það geri geta upp­lifað ástand sem svipi mjög til ein­kenna sem verða þegar fólki er byrlað ólyfjan.

„Nú eru uppi hug­myndir um það hvort leyfa eigi lík­ams­leit við skemmti-og sam­komu­staði til að sporna við því að fólki sé byrluð ólyfjan á skemmti­stöðum. Áður en við gef­umst sið­fár­inu (e. moral panic) á vald og hættum að þora út á meðal fólks ellegar sæta lík­ams­leit eru nokkrir þættir sem mætti velta upp ss. eins og hvort hugs­an­lega séu í ein­hverjum til­fellum aðrir hlutir sem spila inn í. “

Hún segir að áfengi sé efni sem fólk ætti aldrei að neyta á fastandi maga eða þreytt og illa fyrir kallað. Sömu­leiðis ætti aldrei að neyta áfengis sam­hliða sumum lyfjum.

„Það eru marg­reynd vís­indi að bæði SSRI lyf þ.e algeng þung­lynd­is­lyf og ben­sólyf ss. eins og hið vin­sæla kvíða­lyf Sobril eru afskap­lega óheppi­leg í félagi við áfengi. Mörg önnur vel þekkt lyf hafa einnig nei­kvæða verkun á áhrif áfengis í blóð­inu en af öðrum lyfjum en fyrr­nefndum hef ég ekki per­sónu­lega reynslu og get því ekki tjáð mig um það af neinu viti.“

Fór oft í óminnisástand

Steinunn Ólína fer yfir per­sónu­lega reynslu sína af blöndun fyrr­nefndra lyfja við áfengi:

„Meðan ég var og drakk þá tók ég bæði þung­lynd­is­lyf og kvíða­lyf um þriggja ára skeið og það er sá tími sem mig langar til að segja ykkur frá. Það eru tæp­lega 10 ár síðan ég hætti að nota áfengi og enn lengra síðan ég not­aði upp­á­skrifuð þung­lyndis-og kvíða­lyf að stað­aldri en þessi reynsla er mér engu að síður í fersku minni vegna þess hversu óhuggu­leg hún var.

Það gerð­ist oftar en ég vil muna að ég fór í blackout þrátt fyrir að drekka bara 2-3 rauð­víns­glös með mat að kvöldi.

Ég vakn­aði að morgni og mundi ekki hvernig ég hafði kom­ist í rúmið og fékk að heyra að ég hefði jafn­vel gengið frá í eld­hús­inu, sett í þvotta­vél, horft á hálfa bíó­mynd og staðið í hróka­sam­ræðum við bónda minn áður en ég sofn­aði frið­sæl á kodd­anum.

Ég lenti líka í því að sjá að morgni að ég hafði svarað tölvu­póstum að kvöld­lagi og furðu­lega vel stíl­uðum og rök­réttum án þess að muna nokkuð eftir því að hafa gert það.“

Hljóp í sjálfstortímingarham yfir hraðbraut í Los Angeles

„Ég sýndi af mér á stundum undir áhrifum áfengis og ofan­greindra lyfja kyn­ferð­is­lega til­burði og áhættu­hegðun sem fengju nekt­ar­dans­ara og stunt­leik­ara til að roðna af skömm og mundi ekk­ert af því næsta morgun. Ein­hvers­konar sið­rof.

Ég upp­lifði líka skelfi­lega hluti, eins og að skott­ast út í búð að kvöld­lagi, að mér fannst lítið drukkin og vakna til sjálfrar mín eins og úr öðrum heimi eftir að hafa hlaupið í sjálf­stortím­ing­ar­ham yfir hrað­braut í Los Angeles.

Hvers vegna er ég að deila þessu með ykkur. Ekki vegna þess að ég haldi að það komi ekki fyrir að óprút­tnir aðilar reyni að koma vilja sínum fram með ýmsum leiðum. Ég veit hins­vegar að ég var ein­fald­lega ljón­heppin að hafa aldrei á umræddum tíma verið í þeim aðstæðum að aðrir gerðu mér eitt­hvað sem ég gat ekki spornað við eða gerði eitt­hvað sem ég gat ekki fyr­ir­gefið mér vegna neyslu minnar.

Ég deili þessu ekki vegna þess að ég telji mig sér­fræð­ing í því hvað lyfja- og áfeng­is­neysla getur haft í för með sér en ég er þakk­lát fyrir að vera til frá­sagnar um mína per­sónu­legu reynslu af lyfja- og áfeng­is­neyslu án þess að hafa gert sjálfri mér eða öðrum til alvar­legra miska.“

Steinunn Ólína seg­ist hafa borið alla ábyrgð á því sem full­orðin mann­eskja að neyta áfengis ofan í lyf sem hún segir að vand­lega sé varað við að gera af læknum og í leið­bein­ingum.

Hún segir sömu­leiðis að henni finn­ist að í sam­fé­lagi sem borðar ógrynni af þung­lyndis- og kvíða­lyfjum megi brýna fyrir fólki þá áhættu sem fylgi því að nota áfengi sam­hliða þeim.

„Það er drullu­fúlt í þeim áfeng­is­kúltúr sem hér er í hávegum hafður að geta ekki drukkið sér til skemmt­unar sam­fara ýmsum lyfjum en því miður er það reynsla mín og margra ann­arra auk þess að vera vís­inda­lega sannað að sam­verkun kvíða og þung­lynd­is­lyfja með áfengi getur valdið marg­földun áfeng­is­á­hrifa, óeðli­legri syfju, óstjórn á hreyf­ingum, raddslöri, gleymsku, oflæti, óeðli­legri hvat­vísi og óvana­lega ósæmi­legri hegðun, hreinu sið­rofi, brengl­uðu tíma­skyni, óvæntri og bráðri ofbeld­is­hneigð og svo hreinu og kláru minnistapi,“ segir Steinunn Ólína að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ