Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ráðherra fær það óþvegið frá Jarðarvinum: Guðmundur „er enginn Salómon – Vantar þar nokkuð á“

Ráðherra fær það óþvegið frá Jarðarvinum: Guðmundur „er enginn Salómon – Vantar þar nokkuð á“

Stofn­andi og for­maður Jarð­ar­vina, Ole Anton Bielt­vedt, skrifar hvass­orða grein í Frétta­blað­inu í dag þar sem hann gagn­rýnir ákvörðun umhverf­is­ráð­herra að leyfa rjúpu­veiði þetta árið.

Í grein­inni segir Ole að rjúpna­stofn­inn hafi á dög­unum aðeins 248 þús­und fuglar verið taldir en það er sögu­legt lág­mark. „Á fram­an­verðri síð­ustu öld tald­ist hann allt að 5 millj­ónir rjúpna, þrátt fyrir allan nátt­úru­legan ágang, m.a. fálka, refa, sníkju­dýra o.s.frv“

Segir hann að árið 2002 hafi stofn­inn í fyrsta skipti farið niður fyrir 300.000 fugla. „Þáver­andi umhverf­is­ráð­herra, Siv Frið­leifs­dóttir, Fram­sókn­ar­kona með bein í nef­inu, ákvað þá að friða rjúp­una, fyrst í 3 ár; árin 2003, 2004 og 2005. Árang­ur­inn af friðun var sá, að stofn rjúpu tvö­fald­að­ist 2004 og aftur 2005. Hefði friðun haldizt áfram, eins og Siv hafði ákveðið, hefði hann eflaust tvö­fald­ast aftur sum­arið 2005 og náð veru­legri hæð aftur, jafn­vel upp undir 1 milljón fugla sum­arið 2006.“

Ole heldur áfram, „En nýr umhverf­is­ráð­herra tók við, frá Sjálf­stæð­is­flokki, Sigríður Anna Þórð­ar­dóttir, sem virð­ist ekki hafa haft sömu burði eða sama skiln­ing á mik­il­vægi íslenzkrar nátt­úru, því hún gaf eftir fyrir ágangi blóð­þyrstra veiði­manna, og leyfði veiðar aftur haustið 2005, ári fyrr, en reglu­gerð Sivjar sagði til um.“

Því næst talar Ole um núver­andi umhverf­is­ráð­herr­ann, sem hann virð­ist hafa litlar mætur á. „Í fyrra­vor var svo haust­stofn­inn aftur, nú í annað sinn frá upp­hafi taln­inga, kom­inn niður fyrir 300 þús­und fugla. Hefði Siv Frið­leifs­dóttir verið umhverf­is­ráð­herra, hefði hún eflaust friðað aftur. En, illu heilli, var umhverf­is­ráð­herr­ann og er enn, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, sem á að heita grænn, þó þess gæti lítið í athöfnum hans og ákvörð­unum. Hann þótt­ist í fyrra taka á mál­inu með hófi og skyn­semi, en sú vafa­sama skyn­semi var, að 5 þús­und veiði­menn mættu veiða 5 fugla hver.“

Segir Ole að sú ákvörðun hafi verið „út í hött“ og sé ástæðan fyrir því að nú sé stofn­inn í sögu­legu lág­marki. Þá sakar hann veiði­menn um þann glæp að veiða meira en þeim er leyft að veiða. „Þessi veiði­á­form 2020 voru auð­vitað út í hött, 5 fuglar á mann, m.a. vegna þess, að með­al­veiði á veiði­mann síð­ustu 16 ár hafði verið 12 fuglar. Er þá miðað við upp­gefna og skjal­festa veiði, en flestum mun vera ljóst, að slíkar skrif­legar til­kynn­ingar veiði­manna kunna að vera mis­góðir papp­írar, fyrir utan þá papp­íra, sem kann að vanta. Enda var svo gengið á stofn­inn í fyrra, að nú síð­ast­liðið vor, hafði hann enn gengið niður um 30%, frá í fyrra, og var sá allra minnsti í sög­unni.“

Ole talar því næst um til­lögu nýs for­stjóra Nátt­úru­vernd­ar­stofn­unar Íslands og helsta rjúpna­sér­fræð­ing stofn­un­ar­innar, sem hann segir að séu báðir rjúpna­veið­menn en til­lagan mælir með áfram­hald­andi rjúpna­veiðum. „Enda kom á dag­inn, að nýr for­stjóri og lang­tíma rjúpna­sér­fræð­ingur stofn­un­ar­innar, báðir rjúpna­veiði­menn, lögðu til við ráð­herra, að veiðar héldu áfram, eins og lítið hefði í skorizt, en nú yrðu veiðar 4 rjúpur á veiði­mann, alls 20 þús­und fuglar.Hefði þessi til­laga komið innan af Kleppi, hefði mátt skilja hana, en hún kom úr Urriða­holts­stræti í Garðabæ, höf­uð­stöðvum Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands. Hvernig geta ann­ars góðir menn og gegnir gert sig seka um slíka fásinnu!?“

Samkvæmt Ole er Guð­mundur umhverf­is­ráð­herra eng­inn Salómon. „Því miður kom á dag­inn, þegar dagur kom að kveldi 28. októ­ber, að Guð­mundur Ingi Guð­brands­son er eng­inn Salómon. Vantar þar nokkuð á. Hans „Salómons­dómur“ til að tryggja það, að ekki yrðu drepnar 32 þús­und rjúpur (hvernig sem hann nú komst að þeirri tölu), í stað 20 þús­und rjúpna, sem ráð­gjöf NÍ gekk út á, var að veiðar mættu ekki hefj­ast fyrr en um hádegi þá 22 daga, sem veiða mætti.“

Ole skefur ekki utan af því í loka­orðum sínum.

„Sumir verða frægir að endemum, aðrir af hug­leysi. Að verða frægur af hvort tveggja, er ekki gott eða gæfu­legt.“

Greinina má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ