Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Björn Jón: „Íslenski nýsósíalisminn sem Sólveig hefur boðað er afsprengi amerískrar lágmenningar“

Björn Jón: „Íslenski nýsósíalisminn sem Sólveig hefur boðað er afsprengi amerískrar lágmenningar“

Björn Jón Bragason sagn­fræð­ingur ritar grein á dv.is þar sem hann fjallar um það sem hann vill meina að sé fall og jafn­vel dauði Sós­í­alista­flokks­ins hér á landi undir stjórn fjöl­miðla­manns­ins fyrr­ver­andi, Gunnars Smára Egils­sonar. Og kemur inná átökin í Eflingu sem hafa verið á hvers manns vörum und­an­farin miss­eri:

„Þau Viðar og Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrrv. for­maður Eflingar, hafa nú horfið af vett­vangi eftir mál sem hófst með ályktun trún­að­ar­manna stétt­ar­fé­lags­ins í sumar sem leið, en í álykt­un­inni sem send var stjórn­endum stétt­ar­fé­lags­ins segir að að starfs­menn forð­ist að tjá skoðun sína af ótta við að „lenda í óvina­hópi eða á aftöku­list­anum“. Síðan segja trún­að­ar­menn­irnir:

„Þetta eru ekki nýjar áhyggjur heldur hafa þær verið að þró­ast og dýpka með árunum. Á síð­ustu þremur árum hafa 22 starfs­menn af lið­lega 50 manna starfs­hópi hætt eða verið sagt upp. Það gerir rúm­lega 40% starfs­manna. Það er ekki óeðli­legt að starfs­fólk ótt­ist hvað ger­ist næst. Svona mikil starfs­manna­velta er auk þess heil­mikið álag fyrir hinn venju­bundna starfs­mann.“

Björn Jón bætir við:

„Áður­nefndur Viðar Þor­steins­son sagði í hádeg­is­fréttum Bylgj­unnar fyrir fáeinum dögum að trún­að­ar­menn hefðu sett á blað „grófar, æru­meið­andi og mann­orðs­drep­andi,“ ásak­anir. Frétta­maður Bylgj­unnar innti Láru V. Júl­í­us­dóttur, sér­fræð­ing í vinnu­rétti, álits á þessum ummælum og hún svar­aði:

„Ég verð nú að segja það að mér finnst svona ummæli um trún­að­ar­menn, mér finnst þau afar sorg­leg, sér­stak­lega þegar þau koma úr munni þeirra sem hafa verið í for­ystu [verka­lýðs]hreyf­ing­ar­innar.“

Sagn­fræð­ing­ur­inn segir að „Sólveig Anna hafði í fyrra ráð­ist harka­lega að Láru eftir að sú síð­ar­nefnda kom fram í fjöl­miðlum og sagði stjórn­endur Icelandair hafa staðið að upp­sögnum flug­freyja með lög­mætum hætti. Um Láru hafði Sólveig þá þetta að segja:

„Einn trufl­að­asti með­limur reyk­vískrar borg­ara­stéttar talar úr hlið­ar­veru­leika hinna auð­ugu. Ömurlegt þvaður í rugl­aðri mann­eskju.“

Það sjá það allir sem vilja sjá að ekki verður haldið uppi vit­rænu sam­tali og þar með friði í þjóð­fé­lag­inu með munn­söfn­uði af þessu tagi. En lík­lega var það heila málið; þetta sner­ist aldrei um neitt sam­tal eða frið heldur bylt­ingu. Eða „hel­vítis bylt­ing­una“ eins og Sólveig Anna orð­aði það gjarnan svo pent.“

Að mati Bjarnar Braga væri „hægt að gefa út þykka bók með fúk­yrðum Sól­veigar Önnu sem hún við­hafði í bland við útslitna komm­ún­íska frasa en í aðdrag­anda síð­ustu alþing­is­kosn­inga kall­aði hún Diljá Mist Ein­ars­dóttur, fram­bjóð­anda Sjálf­stæð­is­flokks­ins, meðal ann­ars „ómerki­legan póli­tískan lodd­ara“ og að flokk­ur­inn hennar væri „ömur­legur arð­ráns og spill­ing­ar­klúbbur“.

Björn Jón lítur upp til amer­ískrar menn­ingar, hámenn­ingar en ekki lág­menn­ingar – hvernig svo sem sú skil­grein­ing er á þessum síð­ustu og verstu tímum:

„Ég nefndi hér í pistli á dög­unum hvernig hið frjáls­lynda opna lýð­ræð­is­sam­fé­lag ætti undir högg að sækja, jafnt frá öfga­fólki til hægri og vinstri en vest­ræna þjóð­fé­lags­skip­anin byggir á opnum skoð­ana­skiptum þar sem borin er virð­ing fyrir and­stæðum sjón­ar­miðum og fyrir mann­legri reisn sam­hliða trú á gildi frjáls mark­aðar og tak­mörkun rík­is­valds­ins. Sólveigu Önnu Jóns­dóttur og með­reið­ar­sveinum hennar virð­ist hafa skort flest það sem hér er nefnt.

Því miður höfum við hér í vest­an­verðri Evrópu ein­stakt lag á að til­einka okkur margt það lakasta í banda­rískri menn­ingu — en ein­hverra hluta vegna rata æðri listir og hug­sjónir þessa mikla menn­ing­ar­ríkis í vestri miklu síður hingað austur eftir.“

Hann vill meina að „íslenski nýsós­í­al­ism­inn — sem Sólveig Anna hefur boðað — er í reynd afsprengi amer­ískrar lág­menn­ingar. Ekki þarf að leita lengra en aftur til ell­efta dags síð­asta mán­aðar þegar hún greindi frá því á fés­bók­ar­síðu sinni að þann dag­inn væri vest­an­hafs haldið upp á dag „hins flínka sigl­ara og sadíska þjóðar-morð­ingja Krist­ó­fers Kólumbus [sic]“. Síðan fylgir ámóta munn­söfn­uður (á miður góðri íslensku) og því fagnað að styttur af „morð­ingj­anum“ Krist­ó­fer Kól­umbusi hafi verið felldar af stalli.

Hér og miklu víðar tekur Sólveig undir öfga í menn­ing­ar­efnum sem hafa verið áber­andi meðal sós­í­alista vest­an­hafs síð­ustu miss­eri. Forverar Sól­veigar Önnu á stóli for­manns stærsta verka­manna­fé­lags lands­ins voru vel lesnir menn þrátt fyrir enga form­lega menntun. Guð­mundur J. Guð­munds­son, for­maður Dags­brúnar, tal­aði kjarn­yrt mál og þekkti Íslend­inga­sög­urnar jafn­vel betur en bók­mennta­fræð­ing­arnir í Háskól­anum. Þá stóðu menn föstum fótum í veru­leika íslensks alþýðu­fólks sem búið hafði við kröpp kjör um aldir og skynj­uðu um leið nið ald­anna — en löptu ekki upp amer­íska lág­menn­ingu.“

Björn Jón nefnir að „sjálf segir Sólveig Anna að hún hafi verið afar hik­andi við að gefa kost sér í fram­boð til Eflingar en látið til leið­ast eftir þrá­beiðni Gunnars Smára Egils­sonar. Hann hefði á end­anum sagt við sig: „Þú veist að þú verður að gera þetta.“ Þetta urðu að sönnu áhríns­orð. Daginn fyrir kjör­dag í nýliðnum alþing­is­kosn­ingum skrif­aði Sólveig Anna á sam­fé­lags­miðla:

„Í fyrra­málið mun ég vakna spennt. Og ég hlakka til að fara og kjósa með börn­unum mínum. Við ætlum öll að kjósa Sós­í­alista­flokk­inn. Skila rauðu. Kjósa með hjart­anu. Af því að við trúum á rétt allra til að lifa frjáls undan kúgun og arðráni. Og til að lifa frjáls undan róg­burði þeirra sem ótt­ast ekk­ert meira en að loks­ins sé tæki­færið runnið upp til að raun­veru­lega breyta þjóð­fé­lag­inu okkar til hins betra. Ég vona að þið ætlið að gera slíkt hið sama. Sjáumst í bar­átt­unni. Hún er rétt að byrja.“

Sólveig Anna reynd­ist hafa rangt fyrir sér. Þjóðinni hugn­að­ist ekki öfga­fullur mál­flutn­ingur Sós­í­alista­flokks­ins. Hóf­sam­ari öfl unnu á og flokk­ur­inn náði ekki manni inn á þing. Og svo er að sjá sem ógn­ar­öld­inni í Eflingu sé líka lokið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Húsið var reist árið 2014
Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Myndir
Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum