Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Elín Aradóttir byrjaði á að framleiða 100 púða: „Stefni á að selja 50 þúsund stykki fyrir árslok“

Elín Aradóttir byrjaði á að framleiða 100 púða: „Stefni á að selja 50 þúsund stykki fyrir árslok“
Elín Ara­dóttir

Ævin­týra­heimur þar sem ýmsir nytja­hlutir sem flestir eru skreyttir myndum tengdum íslenskri nátt­úru er að finna í lít­illi verslun á jörð­inni Hólabaki um 22 km fyrir vestan Blönduós. Þar eru til sölu vörur fyr­ir­tæk­is­ins Tundru sem Elín Ara­dóttir rekur en hún og eig­in­maður hennar, Ingvar Björns­son, eru bændur á bænum, þar sem rekið er kúabú, auk þess sem tengda­for­eldrar hennar reka þar hrossa­rækt.

Heyrst hefur að Tundra skili meiri hagn­aði heldur en kúa­búið. Er eitt­hvað til í þeim sögu­sögnum? „Nei, það er ekki svo, kúa­bú­skap­ur­inn hefur sigið fram úr Tundru á und­an­förnum miss­erum en við erum að reyna að auka fram­leiðsl­una í mjólk­inni. Tundra er samt rekstur sem stendur undir um það bil tveimur árs­verkum.“

Elín ólst upp á bænum Hrísum í Reykja­dal í Þing­eyj­ar­sýslu. Hún er kenn­ara­menntuð og tók mynd­list sem aðal­grein. Hún er auk þess rekstr­ar­fræð­ingur og með meist­ara­próf í skipu­lags- og þró­un­ar­fræði og vann um ára­bil meðal ann­ars sem við­skipta- og atvinnu­ráð­gjafi. Hjónin höfðu búið á Akureyri í 10 ár þegar þau tóku við kúa­búi for­eldra Ingvars.

Nei, það er ekki svo, kúa­bú­skap­ur­inn hefur sigið fram úr Tundru á und­an­förnum miss­erum en við erum að reyna að auka fram­leiðsl­una í mjólk­inni.

Hrúturinn

Það var árið 2011 sem Elín fékk hug­mynd að gjöf fyrir föður sinn og föð­ur­bróður. Faðir hennar átti hrút og var til fal­leg mynd af honum og datt Elínu í hug að láta fram­leiða nokkra púða með mynd af hrútnum og gefa bræðr­unum. „Svo reynd­ist fram­leiðslan svo­lítið flókn­ari og það þurfti stærra upp­lag heldur en fyrir ætt­mennin og þannig vatt þetta upp á sig,“ segir Elín sem lét fram­leiða 100 púða með mynd af hrútnum framan á. Hún stofn­aði í kjöl­farið fyr­ir­tækið Lagð og fór að fram­leiða púða með myndum af fleiri dýrum og á sumum þeirra eru lands­lags­myndir. Í dag eru til um 40 gerðir af púða­verum og segir Elín að von­andi náist það fyrir lok árs að vera búin að selja 50.000 púða­ver.

Fyrstu árin var lögð áhersla á heild­sölu­dreif­ingu á púða­verum. Lagður er enn til sem vöru­merki en árið 2018 ákvað Elín að stíga það skref að stofna annað merki, Tundru, og fór þá að fram­leiða tals­vert fjöl­breytt­ari vörur, meðal ann­ars sæng­ur­fatnað, og í tengslum við það fór hún að leggja meiri áherslu á smá­sölu í gegnum sína eigin vef­verslun, tundra.is. Áður hafði hún mest verið að dreifa í genum aðra sölu­að­ila. „Við höfum síðan 2018 smátt og smátt bætt við vörum og reynt að vinna mark­aði í smá­söl­unni. Árið 2020 var eins og gefur að skilja mjög erfitt ár í heildu­sölu­dreif­ingu á vörum til ferða­manna­versl­ana sem eru lyk­il­við­skipta­vinir fyrir púða­verin þannig að í fyrra setti ég tals­verðan kraft í mark­aðs­setn­ingu á öðrum vörum og þá í beinni sölu í gegnum vef­versl­un­ina mína.“

Í dag eru til um 40 gerðir af púða­verum og segir Elín að von­andi náist það fyrir lok árs að vera búin að selja 50.000 púða­ver.

Í hæstu gæðum

Hún sem ólst upp í sveita­sæl­unni og býr núna í sveita­sæl­unni leggur áherslu á íslenskar nátt­úru­ljós­myndir; myndir af gróðri og dýrum og í ein­hverjum til­vikum lands­lagi. „Góðar ljós­myndir eru grunn­ur­inn í vöru­hönn­un­inni en síðan leggjum við mikla áherslu á að vera með gæða­efni en öll vefn­að­ar­vara sem við notum er í hæstu gæðum. Við höfum líka verið mjög lánsöm með það að ná góðum við­skipta­tengslum við flott fyr­ir­tæki sem prenta fyrir okkur,“ segir Elín og bætir við að meðal ann­ars púða­verin séu saumuð á Íslandi. „Mér finnst skipta miklu máli að íslenskar sauma­konur sjá um sauma­skap­inn; það liggur við að ég geti sagst geta stært mig af því að vera með íslenska fram­leiðslu þótt svo sé ekki með allar vör­urnar en púða­verin hafa alla­vega verið saumuð á Íslandi síð­ast­liðin níu ár. Ég legg mikið upp úr því að vera með það besta sem ég get fundið og sem dæmi þá eru te- eða kraffikrúsir fram­leiddar fyrir mig í Stoke á Mið-Englandi þar sem er alda­löng hefð fyrir fram­leiðslu á því sem þeir kalla Fine Bone China.“

Hún sem ólst upp í sveita­sæl­unni og býr núna í sveita­sæl­unni leggur áherslu á íslenskar nátt­úru­ljós­myndir; myndir af gróðri og dýrum og í ein­hverjum til­vikum lands­lagi.

Silkifjallið

Náttúran. Þessi nátt­úra. Hvað er íslensk nátt­úra í huga Elínar sem býr í sveita­sæl­unni og selur nytja­hluti skreytta þess­ari dásemd sem nátt­úran er?

„Ég ólst upp í sveit og hef búið á lands­byggð­inni nán­ast allt mitt líf. Náttúran er órjúf­an­legur hluti af til­ver­unni. Við sem búum í dreif­býl­inu finnum meira fyrir henni vegna þess að við erum háð­ari henni. Við sem bændur erum háð veðri, vindum og upp­skeru­að­stæðum. Við finnum líka fyrir nátt­úr­unni þegar hún byrstir sig. Við höfum til dæmis lent í því að vera raf­magns­laus í tals­verðan tíma í ill­viðri. Maður er ansi nærri nátt­úru­öfl­unum þegar maður býr svona í íslenskri sveit á norð­ur­hjara.“

Útsýnið frá Hólabaki er fal­legt. Vatns­dals­fjall stendur tign­ar­legt í austri og skreytir mynd af því silki­slæður sem Elín fram­leiðir. Í vestri blasir Víði­dals­fjall við. Mynd af því skreytir eina gerð­ina af sæng­ur­ver­unum frá Tundru. Vetr­ar­kyrrð er það sæng­ur­ver kallað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ