Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hildur Eir sem glímir við krabbamein fékk loksins góðar fréttir: „Ég er engin hetja“

Hildur Eir sem glímir við krabbamein fékk loksins góðar fréttir: „Ég er engin hetja“

Hildur Eir Bolla­dóttir, prestur í Akur­eyr­ar­kirkju, hefur glímt við krabba­mein síð­asta eina og hálfa árið. Nú hefur hún loks­ins fengið góðar fréttir, en Hildur er hugsi og ritar ein­lægan pistil á heim­síðu sinni, Hildu­reir.is.

Pistill Hildar hefst á eft­ir­far­andi hátt:

„Þú ert nú meiri hetjan“ er setn­ing sem ég hef heyrt oftar en ég hef tölu á und­an­farið eitt og hálft ár í mínum krabba­meins­veik­indum.“

Hildur seg­ist telja að margir krabba­meins­sjúk­lingar deili þeirri reynslu með henni, að vera kall­aðir hetjur. „Fólk segir þetta af heilum og hlýjum hug til upp­örv­unar og í til­raun til að tjá aðdáun sína og sam­líðan. Það má alls ekki mis­skilja mig, mér þykir afar vænt um að vera kölluð hetja og enn vænna um elsku­sem­ina að baki nafn­bót­inni um leið og ég verð að við­ur­kenna að mér hefur alls ekki liðið sem hetju und­an­farið ár, að minnsta kosti ekki sé miðað við hetjur Íslend­inga­sagna eða amer­ískra bíó­mynda.“

Hún heldur áfram: „Við mann­fólkið höfum auð­vitað til­hneig­ingu til að bera höf­uðið hátt á opin­berum stöðum og svara spurn­ing­unni stóru „Hvað seg­irðu?“ með stutta svar­inu „ bara fínt“.  Á sam­fé­lags­miðlum hef ég oftar en ekki tjáð mig um þann styrk sem ég hef fundið í trúnni á þess­ari veg­ferð minni og þar er sko engu logið, trúin á nær­veru Jesú Krists hefur verið mér gríð­ar­legur styrkur og ég veit hrein­lega ekki hvar geð­heilsa mín væri ef ég ætti ekki þann fjár­sjóð að sækja í þegar mér finnst ég verða aftur að ung­barni, ósjálf­bjarga í þessum ógn­vekj­andi aðstæðum. Það þýðir samt ekki að ég nái alltaf að halda höfði, ekki frekar en hvít­voð­ung­ur­inn nýfæddi.“

Hildur lýsir því hvernig hún hafi, fyrir um það bil mán­uði síðan, fengið góðar fréttir. Sneið­mynda­taka sýndi að ekk­ert krabba­mein væri að finna í lík­ama hennar, „lík­ama sem á einu ári hefur greinst tvisvar með þann vágest. Það er engum blöðum um það að fletta að betri fréttir er vart hægt að fá og fyrir þann sem stendur hjá hlýtur það að þýða algjöra umpólun á lífi þess sem hefur staðið í bar­átt­unni, nú má ótt­inn og kvíð­inn hafa sig á brott og bjart­sýnin ein brosa við bænum, sem er því miður ekki raunin. Þar kemur kannski hug­myndin um hetj­una til skjal­anna. Það er nefni­lega nokkuð inn­gróið í mann­legt eðli að stíga öld­una, bretta upp ermarnar og berj­ast fyrir lífi sínu, við gerum það flest þegar á reynir.“

Reynir kannski mest á þegar storminn lægir

Hildur vekur máls á því hvað taki við þegar lík­am­inn er laus við krabba­meinið. Er þá allt orðið gott? Hún vill meina að svo ein­falt sé það nefni­lega ekki. „Á heims­vísu hafa margar millj­ónir manna farið gegnum alls­konar miður skemmti­legar krabba­meins­með­ferðir í gegnum tíð­ina og bara látið sig hafa það. Í sjálfu sér reynir kannski mest á þegar storm­inn lægir og maður stendur eftir ringlaður í alveg nýjum veru­leika, með gjör­breytta fram­tíð­ar­sýn.

Um þetta er kannski minna fjallað en krabba­meinið sjálft og bar­átt­una við það. Við fjöllum yfir­höfuð meira um áföll en úrvinnslu þeirra ef út í það er farið. Og samt er það í raun úrvinnslan sem skiptir öllu máli varð­andi það hvernig fram­tíðin þró­ast.“

Hildur útskýrir að þetta eigi ekki aðeins við um krabba­mein, heldur áföll almennt. Hún talar í því sam­hengi einnig um fram­tíð­ina sem bíði okkar eftir heims­far­ald­ur­inn, „hvenær sem þeirri bar­áttu end­an­lega lýkur, ég er sann­færð um að þá tekur ekki við minna álag á heil­brigð­is­kerfið, ekki síst geð­heil­brigð­is­kerfið, við þurfum að búa okkur vel undir það í tíma.“

„Ég er engin hetja.“

Hildur Eir seg­ist í raun hafa verið bjart­sýnni þegar meinið var enn til staðar og hún í lyfja­með­ferð. „Ég get að minnsta kosti deilt því með þér kæri les­andi að ég var mun upp­lits­djarfari um mitt sumar þegar ég var hálfnuð með lyfja­með­ferð en nú þegar henni er lokið og ekk­ert tekur við nema eft­ir­fylgd á nokk­urra mán­aða fresti í von um að meinið komi aldrei aftur.

Nú þegar storm­inn hefur lægt er ég skelf­ingu lostin. Skelf­ingu lostin yfir því sem ég hef farið í gegnum og horfi nú á í bak­sýn­is­spegl­inum í róleg­heit­unum í skamm­deg­inu ein heima þar sem aðrir eru í vinnu og skóla. Ég er engin hetja. Nema að hetja sé að vera sá sem ákveður í kvíða sínum og dep­urð að panta tíma hjá sál­fræð­ingi og hafa um leið sam­band við heim­il­is­lækn­inn og fá þung­lynd­is­lyf og reynir að hreyfa sig eitt­hvað á hverjum degi til að auka fram­leiðslu gleði­horm­óna í lík­am­anum.“

Hún heldur áfram: „Nema að það að vera hetja sé að segja við fólk sem spyr hvernig ég hafi það, að ég sé ótta­lega döpur og ólík sjálfri mér og þegar fólk bíður eftir jákvæðu rús­ín­unni í pylsu­end­anum að segja þá bara, en ég á bjarg­ráð sem ég get notað og ég hlýt  að kom­ast í gegnum þetta.

Nema það að vera hetja sé að gráta fyrir framan 19 ára son sinn á kaffi­húsi þar sem hann rifjar upp góðar minn­ingar og veit ekki að þær hreyfa við varn­ar­leysi móður hans.

Nema það að vera hetja sé að fara á bráða­mót­töku sjúkra­húss­ins með bólgna öxl og gera sig þar að fífli af því að maður gerir fast­lega ráð fyrir að um mein­varp sé að ræða en ekki heið­ar­lega vöðva­bólgu.

Ef þetta er að vera hetja, nú þá er ég það en ekki eins og í Íslend­inga­sögum eða amer­ískum bíó­myndum eða eins og fólk oft heldur að krabba­meins­sjúk­lingar séu í meintu æðru­leysi sem ég á enn eftir að finna gagn­vart þessum óboðna gesti sem rudd­ist inn í líf mitt og sneri því á hvolf,“ segir Hildur að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ