Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Eldi Elís bjargað á síðustu stundu: „Bíða eftir að einhver myndi deyja svo barnið þitt myndi lifa“

Eldi Elís bjargað á síðustu stundu: „Bíða eftir að einhver myndi deyja svo barnið þitt myndi lifa“
Mynd. Skjáskot/Stöð 2 Mynd: Salome

„Þetta er örugg­lega martröð allra for­eldra að fá að vita að það er eitt­hvað að en þeir eru ekki alveg vissir til að byrja með. Fljót­lega kemur í ljós að þeir fara að tikka í mörg box sem er gott, það er margt annað að virka en það er mikil óvissa. Óvissan er hrika­lega erfið,“ segir Kristín, móðir Elds í þætt­inum Íslandi í dag.

Í fréttum í síð­ustu viku var sagt frá ótrú­legri bata­sögu hins 8 mán­aða Elds Elís sem gekkst undir lifr­ar­skipta­að­gerð nú í lok sum­ars á sjúkra­húsi í Gauta­borg. Hægt er að segja að aðgerðin og aðdrag­and­inn að henni hafi verið krafta­verki lík­ust.

Í þætt­inum Ísland í dag var rætt við for­eldra Elds, þeim Bjarka Eysteins­syni og Kristínu Gunn­ars­dóttur til að heyra sög­una alla en það er óhætt að segja að Eldur hafi verið hárs­breidd frá því tapa þess­ari bar­áttu í sumar þangað til að líf­færa­gjafi fannst, bók­staf­lega á ell­eftu stundu, þegar Eldur var kom­inn í önd­un­ar­vél og litli kropp­ur­inn hans við það að gef­ast upp eftir margra mán­aða veik­indi.

Eldur Elí hafði rétt fjög­urra mán­aða gam­all verið lagður inn á barna­spít­ala Hrings­ins vegna lifr­ar­bólgu sem hann hafði fengið af völdum veiru­sýk­ingar, en hún hafði í för með sér skerta lifr­ar­starf­semi drengs­ins sem gerði það að verkum að hann þarfn­að­ist stuðn­ings­með­ferðar á barna­deild Land­spít­al­ans.

„Við erum á vöku­deild­inni í þrjár vikur til að byrja með.“

Honum fer að hraka

„Þá er bara að fara heim og við lifum ágæt­lega eðli­legu fjöl­skyldu­lífi þangað til honum fer að hraka aðeins meira í kring um þriggja mán­aða ald­ur­inn. Þá förum við aftur upp á spít­ala og erum búin að vera þar í viku þegar lækn­ir­inn segir við okkur: Heyrðu, þið eruð lík­lega bara að fara út á mið­viku­dag­inn. Og hann segir það við okkur á mánu­degi,“ segir Bjarki, faðir Elds.

Kristínu og Bjarka var til­kynnt það með tveggja daga fyr­ir­vara að þau þyrftu að fara út til Sví­þjóðar með Eld.

„Við fáum í raun bara einn og hálfan sól­ar­hring til að pakka í hand­far­ang­urstösku og erum bara á leið­inni út. Á þeim tíma­punkti var enn von um að við gætum farið út og hann fengi betri aðhlynn­ingu frá sér­fræð­ingum. En það kom í ljós viku eftir að við komum út að þetta var ekki að fara að snú­ast við.“

Líffæragjöf

Þá var orðið ljóst að Eldur Elí þurfti að fá lifur frá öðrum ein­stak­lingi og þá er alltaf plan A hjá spít­al­anum að slík líf­færa­gjöf komi frá látnum aðila en slíkar aðgerðir eru ekki óal­gengar þarna úti í Svíþjóð.

Lifrin virkar svo þannig að hún skipt­ist í raun og veru í tvö hólf og þá er yfir­leitt hægt að taka minna hólfið og græða það í barn og stærra hólfið í full­orðin ein­stak­ling. Ástand Elds var fljótt orðið það alvar­legt að hann var strax settur efstur á biðlist­ann á Norð­ur­lönd­unum en í sumar leið hins vegar óvenju langur tími án þess að nokkur lifur fynd­ist og var þá tekið til þess ráðs að kanna hvort for­eldr­arnir gætu passað sem líf­færa­gjafar en eftir ítar­legt rann­sókn­ar­ferli voru þau því miður bæði úti­lokuð.

„Maður var mjög lengi að ná utan um til­finn­ing­una að maður væri að bíða eftir að ein­hver myndi deyja svo barnið þitt myndi lifa. Það er mjög, mjög spes til­finn­ing,“ segir Bjarki.

Umönn­unin í Svíþjóð til fyr­ir­myndar

Örvæntingin magnaðist

Sem fyrr segir var upp­runa­lega planið bara að fá aðhlynn­ingu fyrir Eld Elí í Svíþjóð og von­ast til að lifrin hans mundi jafna sig. Síðan tók við biðin eftir líf­færa­gjöf og þegar sá tími lengd­ist og lengd­ist tóku for­eldrar hans eftir hvernig stöðugt dró meira af litla drengnum og hann varð ólík­ari sjálfum sér. Eldur var orðin mjög lasin á þessum tíma og örvænt­ingin magn­að­ist.

Kristín og Bjarki þurftu að skilja eldri börnin sin tvö, Brynju Dís og Daníel Breka, eftir heima á Íslandi. Þau fengu þó að koma út til Sví­þjóðar í heim­sókn við mik­inn fögnuð.

Þau segja aðstæður og umönnun alla hafa verið til fyr­ir­myndar og eru þakk­lát hvernig heil­brigð­is­kerfið í Svíþjóð virkar sem góð fram­leng­ing á því íslenska þegar nauð­syn krefur.

„Starfs­fólkið þarna er alveg ynd­is­legt og maður sá líka mann­legar hliðar af þessu starfi. Að þau tengd­ust honum öll mjög mikið á þessum tíma. Hann var nátt­úru­lega lengi og hann verður alltaf verri og verri. Þau voru bara dásam­leg, lækn­arnir voru ynd­is­legir,“ segir Kristín.

Vinkonuhópurinn tók sig til og bauðst til að bjóða fram lifur

Af sið­ferð­is­legum ástæðum er for­eldrum í þeirri stöðu, sem Kristín og Bjarki stóðu í, ekki heim­ilt að kalla eftir því frá fjöl­skyldu eða vinum að gefa líf­færi, en þegar Eldi Elí hrak­aði stöðugt og það fór að spyrj­ast út tók ein vin­kona Krist­ínar, sem býr í Stokk­hólmi, sig til og bað um að fá að athuga hvort hún gæti mögu­lega komið til bjargar.

Lækn­arnir tóku því vel og var vin­konan rann­sökuð en reynd­ist því miður ekki heppi­legur líf­færa­gjafi í þessa aðgerð. Þetta varð hins vegar til þess að málið var rætt í Facebook-hópi vin­kvenna Krist­ínar og fór svo á end­anum að það tóku að hrann­ast inn umsókn­irnar um að fá að gefa Eldi Elí lifur.

„Þetta eru mínar bestu vin­konur, okkar hópur, sem tekur sig til,“ segir Kristín.

Lifrin hennar virtist vera fullkomin fyrir Eld Elí

En þrátt fyrir þennan mikla vilja og sam­taka­mátt vin­kvenna Krist­ínar þá reynd­ist hver þeirra á eftir annarri ýmist ekki vera í réttri stærð eða blóð­flokki allt þar til að síð­asta vin­konan komst í tékk, en það var hún Rúna Sif Rafns­dóttir, sem þurfti að koma sér alla leið frá Tálkna­firði til að kom­ast í skoðun á Lands­spít­al­anum og var örvænt­ingin á þessum tíma­punkti orðin mikil þar sem heilsu Elds Elís hrak­aði mjög ört á þessum tíma.

Rúna hafði strax frá því að hug­myndin kom upp fengið sterkt á til­finn­ing­una að hún yrði að koma sér suður sem fyrst þar sem eitt­hvað sagði henni að hún ætti eftir að verða sú rétta. Við spjöll­uðum við Rúnu og eig­in­mann hennar, Jónatan Guð­brands­son lög­reglu­mann, sem stóð sem klettur á bak við sína konu í gegnum allt þetta ferli en Rúna sagði okkur að henni hefði raun fund­ist hún hafa unnið stóran Lottó­vinn­ing þegar henni var til­kynnt að lifrin hennar virt­ist vera full­komin fyrir Eld Elí.

Rúna var sú sem gaf Eld hluta úr lifur sinni. Jónatan, mað­ur­inn hennar, segir miklar til­finn­ingar hafa verið í spil­inu.

„Gekk að vinnu­fé­laga mínum og spurði hvort ég mætti fá knús“

Fyrsta verk Rúnu var að hringja í mann­inn sinn, Jónatan, og segja honum gleði­frétt­irnar.

„Hún hringir í mig og til­kynnir mér að hún sé með stórar fréttir, að hún sé „match“. Þetta var mjög skrítið allt saman.“

„Mér fannst hann svo rólegur, þetta var ein­hvern vegin allt: Þetta fer vel. Sem var hug­hreystandi,“ segir Rúna.

Jónatan seg­ist samt ekki hafa verið rólegur yfir þessu öllu saman. Út á við hafi hann haldið ró sinni svo Rúna yrði ekki kvíðin fyrir fram­hald­inu.

Ekki hlaupið að því leggjast undir hníf í skurðagerð til að láta skera úr sér líffæri

Þegar Rúna og Jónatan komu svo loks til Gauta­borgar beið hennar teymi lækna og hjúkr­un­ar­fræð­inga sem höfðu und­ir­búið komu hennar allan dag­inn og var hún strax drifin í rann­sóknir og við­töl þar sem henni var betur gert grein fyrir hvað hún væri að fara gang­ast undir en það er auð­vitað ekki hlaupið að því leggj­ast undir hníf í skurða­gerð til að láta skera úr sér líf­færi.

„Hún var spurð í þrí­gang, fjór­gang: Þú áttar þig alveg á hvað þú ert að fara að gera? Og ef það kemur upp á ein­hverjum tíma­punkti, alveg fram að svæf­ingu, að þú viljir hætta við þá þarftu bara að láta vita af því og þarft ekki að gefa upp neina ástæðu og við setjum þá bara ein­hverjar lækn­is­fræði­lega for­sendur þannig að það kemur ekki þannig út eins og þú hafir bara orðið óör­ugg,“ útskýrir Jónatan.

Kristín og Rúna féllust í faðma þegar ljóst var að aðgerðin hafði heppn­ast.

„Svo bara hefst aðgerðin“

Kristín segir á þessum tíma­punkti mikla geðs­hrær­ingu hafa ríkt meðal þeirra for­eldr­anna og starfs­manna spít­al­ans.

„Hann er nátt­úru­lega bara ósta­bíll þannig að það er komið upp panikk hvort hann nái þessu eða ekki. Eina sem ég hugsa er að þú ert búinn að bíða svo lengi. Við erum búin að bíða í allar þessar vikur, þú mátt ekki gef­ast upp núna. Þú þarft bara að bíða í smá stund í við­bót, þú þarft að þrauka pínu­lítið lengur.“

Og sem betur fer náði Eldur Elí á síð­ustu stundu að finna þann styrk sem til þurfti til að halda áfram.

Augun hans orðin hvít í fyrsta sinn frá fæðingu

„Það sem ger­ist um nótt­ina er að Eldur snýr við og nær súr­efn­is­mettun í það að vera nógu sterkur, að þeirra mati, að hann geti farið í þessa aðgerð,“ segir Kristín.

Kristín segir að lækn­arnir hafi á þessum tíma­punkti sagt að ekk­ert annað væri í stöð­unni en að fara strax í aðgerð. Ef beðið væri með hana lengur væri tím­inn útrunn­inn fyrir Eld.

Þegar Eldur Elí vakn­aði, fjórum dögum eftir aðgerð, voru augun hans orðin hvít, í fyrsta sinn frá fæð­ingu.

„Þeir verða bara að meta það svo að hann sé akkúrat á lín­unni. Þeir rúlla honum inn í aðgerð og við vitum bara að þau eru lent en erum ekki búin að hitta þau eða neitt. Svo bara hefst aðgerðin,“ segir Kristín.

„Ég get ekki lýst því, þetta er súr­r­eal­ískt á alla vegu að vita af því að vin­kona þín var til­búin til þess að gera þetta. Ég á engin orð yfir það hvað hún var til­búin að gera,“ segir Kristín.

„Hann opnar augun og þau eru skjanna­hvít“

Aðgerð­irnar á Rúnu og Eldi Elí tóku sam­an­lagt yfir fjórtán klukku­stundir og var skurð­lækn­ir­inn sem sá um þær frekar búinn á því en í skýj­unum með árang­ur­inn þegar hann hringdi í Kristínu til að tjá henni nið­ur­stöð­urnar.

Lækn­ir­inn sagð­ist sann­færður um að Eldur Elí ætti eftir að verða hraustur og flottur strákur sem mundi gera flotta hluti í fram­tíð­inni, því aðgerðin hefði verið vel heppnuð og þeim hefði í raun tek­ist að gera stór­kost­lega hluti á skurð­stof­unni þennan dag.

„Ég var bara orð­laus að þetta sé komið og búið. Þetta er krafta­verk, ekk­ert annað en krafta­verk. Frá þeirra dyrum séð líka,“ segir Kristín.

„Til­finn­ingin þegar hann vaknar, honum er haldið sof­andi í fjóra daga til að verkja­stilla hann og svo honum líði vel. Þegar hann opnar augun, eftir fimm daga og er nátt­úru­lega búinn að vera með gul augu síðan hann fædd­ist, bara gulur út af lifr­ar­bil­un­inni og ég er einn inni á gjör­gæsl­unni, Kristín er að bíða fyrir utan. Hann opnar augun og þau eru skjanna­hvít. Þetta er augna­blik sem maður gleymir aldrei,“ segir Bjarki. „Þetta var dásam­legt.“

Bjarki og Kristín, for­eldrar Elds, segj­ast varla geta komið því í orð hve þakk­lát þau eru Rúnu fyrir líf­gjöf­ina.

„Þú getur aldrei end­ur­goldið þetta“

Þau segj­ast ekki geta komið í orð þakk­læt­inu í garð Rúnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ