Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jón Steinar er bandamaður Öfga: „Verði grein mín til þess að forða einni nauðgun yrði ég sáttur“

Jón Steinar er bandamaður Öfga: „Verði grein mín til þess að forða einni nauðgun yrði ég sáttur“
Jón Steinar Gunn­laugs­son

Á net­síðu Vísis í gær er birt opið bréf til mín í til­efni af litlum pistli sem ég fékk birtan í Morg­un­blað­inu 18. nóv­em­ber. Sendendur bréfs­ins eru sex konur sem vilja kenna sig við öfgar,“ skrifar lög­mað­ur­inn Jón Steinar Gunn­laugs­son í pistli og bætir við:

„Mér finnst að þær ættu ekki að gera það, enda fæ ég ekki betur séð en sjón­ar­mið þeirra séu að mörgu leyti öfga­laus, þó að mér sé gert rangt til og ætl­aðar mein­ingar sem ég kann­ast ekki við og hef aldrei borið fram.

Rétt er að hafa nokkur orð um þetta“ skrifar lög­mað­ur­inn og heldur áfram:

„Grein mín hafði inni að halda hvatn­ingu til þeirra sem útsettir eru fyrir hættu á að verða beittir kyn­ferð­is­of­beldi sem og hinna sem gætu orðið ofbeld­is­menn. Var þessu fólki bent á að gera fyr­ir­byggj­andi ráð­staf­anir til að koma í veg fyrir brotin eða að minnsta kosti að fækka þeim, því kannski getum við aldrei komið í veg fyrir að þau verði framin. Ég kann ekki að vísa til vís­inda­legra kann­ana máli mínu til stuðn­ings, en ég er samt sann­færður um að þorri kyn­ferð­is­brota er fram­inn af drukknum ofbeld­is­mönnum á drukknum fórn­ar­lömbum þeirra.“

Heldur áfram:

„Stundum er ástæða til að ætla að sá sem ofbeld­inu beitir, myndi ekki gera það ef hann væri ekki undir áhrifum vímu­gjafa. Brotin eru yfir­leitt ekki framin á veit­inga­húsum eða úti á götu. Þau eru mörg framin í heima­húsum, eftir að ofbeld­is­mann­inum hefur tek­ist að lokka fórn­ar­lambið með sér þangað. Stundum hefur hann að sögn líka blandað ólyfjan í drykki brota­þol­ans til að deyfa hann og draga úr afli hans til and­stöðu. Þetta er auð­vitað skelfi­legt og við ættum öll að sam­ein­ast í bar­áttu gegn þessu fram­ferði með eða án öfga.“

Jón Steinar bendir á að „ofbeldi innan fjöl­skyldna er erf­ið­ara við­fangs, því þar hafa hrott­arnir oft eins konar yfir­ráð yfir fórn­ar­lömbum sínum. Samt hljótum við að leita leiða til að draga úr heim­il­is­of­beld­inu. Það er auð­vitað grófur útúr­snún­ingur úr orðum mínu að telja mig vilja gera fórn­ar­lömbin ábyrg fyrir brot­unum, sem þau hafa mátt þola. Það er satt að segja furðu­legt að sjá ábyrgar öfga­konur gera þessu skóna. Fyrir mér vakti aðeins að reyna að fækka þessum alvar­legu brotum, þó að erfitt sé að finna leiðir sem virka í þá átt. Þegar álita­mál er uppi er oft gagn­legt að stilla upp öfga­dæmi, til að átta sig á grund­vall­ar­at­rið­unum.

Segjum til að mynda að konur stund­uðu það að inn­byrða sjálf­vilj­ugar, áður en þær færu út á skemmta sér, lyfin sem ofbeld­is­menn nota til að koma vilja sínum fram við þær. Væri ekki við hæfi að hvetja konur til þess að hætta því, svo þær væru ekki varnar- og með­vit­und­ar­lausar á skemmti­stöðum borg­ar­innar?“

Spyr líka hvort sú hvatn­ing væri „fallin til þess að varpa ábyrgð kvenna á þeim glæpum sem þær yrðu fyrir á þær sjálfar? Nei, því jafn­vel þá bæru þolendur enga ábyrgð á verkn­aði ger­end­anna, þótt draga hefði mátt úr líkum á brot­unum. Ég er sam­mála öfga­konum um að hvorki karlar né konur eigi að fremja ofbeld­is­brot á öðru fólki. Best væri ef unnt yrði að upp­ræta þau með öllu en því miður er ekki sjá­an­legt að slíkt sé hægt. Grein mín var skrifuð í þeim til­gangi að reyna að fækka slíkum brotum. Ábyrgð á ofbeld­inu hvílir á brota­manni en ekki öðrum. Með vin­semd beini ég því til ykkar að ætla mér ekki skoð­anir í aðra átt.“

Hann nefnir einnig að „ástandið í þessum málum er hins vegar klár­lega þannig að ég hvet stúlkur, sem mér þykir vænt um, að hafa var­ann á sér í umgengni við karl­menn sem þær eru kannski að hitta í fyrsta sinn á skemmti­stað. Ég hika ekki við að benda þeim á að þær geti stundum beitt aðferðum sem draga úr líkum á að brotið verði á þeim, m.a. með því að skerða ekki dóm­greind sína með neyslu vímu­gjafa. Og ég mun halda því áfram. Verði þær hins vegar fyrir því að brotið sé á þeim, mun ég gera það sem í mínu valdi stendur til að hjálpa þeim að fást við eft­ir­köstin m.a. með því að brýna fyrir þeim að ábyrgðin og skömmin sé ekki þeirra, heldur ein­göngu brota­manns­ins. Og það eins þó að þær hafi verið drukknar.“

Jón Steinar vonar að ástandið lag­ist.

Öfgar.

„Verði grein mín til þess að forða einni nauðgun yrði ég sáttur. En þetta munum við aldrei fá að vita, hvorki ég né öfga­kon­urnar. Við skulum samt taka höndum saman um að gera það sem við getum til að fækka ofbeld­is­brotum. Sumir telja það stundum geta orðið mál­stað til fram­dráttar að búa til and­stæð­ing jafn­vel með því að skrökva á hann sökum. Það er mis­skiln­ingur hjá ykkur ef þið haldið að þessi aðferð sé væn­leg gagn­vart mér. Ég hef skömm á ofbeld­is­mönnum og er miklu fremur sam­herji ykkar en fjand­maður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð